Fleiri fréttir

Chirac og Blair stilltir

Jacques Chirac og Tony Blair sýndu á sér sínar prúðustu hliðar á sameiginlegum blaðamannafundi sem þeir héldu í Bretlandi í dag. Undanfarna daga hefur Chirac látið móðann mása um daprar afleiðingar innrásarinnar í Írak, en á fundinum í dag lögðu leiðtogarnir báðir áherslu á að Írak væri eini stóri ágreiningsvettvangur þjóðanna

Dæmdur fyrir umboðssvik

Jón Ragnarsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri og stjórnarformaður Lykilhótela, var í Héraðsdómi Reykjavíkur, dæmdur í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir umboðssvik. En hann tók 37 milljóna króna lán í nafni félagsins hjá Framkvæmdasjóði Íslands.

Krefst afsökunar vegna auglýsingar

Friðbjörn Möller, faðir grunnskólabarna á Akureyri, krefst þess að kennarar við Brekkuskóla biðjist formlega afsökunar á auglýsingu sem þeir settu í Dagskrána, rits sem dreift er í hús. Auglýsingin ber yfirskriftina Andlátsfregn, en í henni er gefið í skyn að með lagasetningu á verkfall kennara hafi skólastefna, ánægðir kennarar og góður skóli beðið bana.

600 milljóna tekjuaukning

Jóhanna Sigurðardóttir alþingismaður telur að tekjur ríkisins af virðisaukaskatti á eldsneyti hafi aukist um um það bil sexhundruð milljónir vegna ólögmæts samráðs olíufélaganna. Nauðsynlegt sé að framkvæmd verði úttekt á því hvað mikið af því sem hún kallar ránsfeng olíufélaganna rann í ríkissjóð.

Flutti inn fíkniefni í vösunum

Tæplega fertugur maður hefur verið ákærður fyrir innflutning á tæpu kílói af kókaíni og tæpu kílói af amfetamíni. Hann var handtekinn á Keflavíkurflugvelli þegar hann var að koma hingað til lands í maí.

Stakk mann fjórum sinnum

Tveir menn, nítján og tuttugu ára, hafa verið ákærðir, annar fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás, fyrir framan Broadway í Ármúla í september í fyrra. Annar mannanna stakk þolandann fjórum sinnum með hnífi víðs vegar um líkamann. Aðalmeðferð í málinu var í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.

Verðið var lækkað segir Hjörleifur

Hjörleifur Jakobsson, forstjóri Olíufélagsins, segir það rangt að Esso standi ekki við áður gefin fyrirheit um að láta útsöluverð á bensíni hérlendis fylgja verðþróun í heiminum. Félagið hafi þannig lækkað verð sl. fimmtudag.

Mestur hagvöxtur á Íslandi

Mestum hagvexti á Norðurlöndunum er spáð á Íslandi næsta ár samkvæmt nýútkominni skýrslu norrænu efnahagsnefndarinnar. Nefndin spáir 5,5 prósenta hagvexti hér á landi á þessu ári og 4,9 prósenta hagvexti árið 2005. Heldur minni hagvexti er spáð á hinum Norðurlöndunum.

Ráðinn í forsætisráðuneytið

Steingrímur Ólafsson hefur verið ráðinn upplýsingafulltrúi í forsætisráðuneytinu. Steingrímur nam fjölmiðlafræði við blaðamannaháskólann í Osló og hefur starfað um árabil við blaða- og fréttamennsku. Hann hefur að undanförnu starfað sem kynningarstjóri Fróða.

Léttklæddum dvergum stolið

Léttklæddum garðdvergum hefur verið stolið úr skemmtigarði í Þýskalandi. Dverganna er sárt saknað en þeir eru helsta aðdráttarafl Dwarf Park Trusetal þar sem gægjuhneigð gesta er fullnægt. Í gegnum skráargöt sést í hold garðdverganna sem þekktir eru fyrir djarfar stellingar.

Steingrímur í forsætisráðuneytið

Steingrímur Sævarr Ólafsson hefur verið ráðinn upplýsingafulltrúi í forsætisráðuneytinu. Starfið er nýtt og undir það fellur meðal annars umsjón með heimasíðu ráðuneytisins, upplýsingagjöf af ýmsu tagi og afgreiðsla fyrirspurna og skýrslubeiðna.

Nýr árgangur af rauðvínum

Frakkar sjá rautt þessi dægrin því fyrstu flöskurnar af nýjum rauðvínsárgangi eru komnar á markað. Það er ævinlega kátt á hjalla þegar Beaujolais Nouveau flöskurnar streyma inn á bari í Frakklandi, þriðja fimmtudag í nóvember, og það sama var uppi á teningunum í morgun.

Lítið traust á leiðtogum

Tveir af hverjum þremur Íslendingum telja að stjórnmálaleiðtogar láti undan þrýstingi þeirra sem hafa meiri völd en þeir sjálfir og góður meirihluti landsmanna telur að viðskiptaleiðtogar hafi of mikil völd og ábyrgð. Næstum þrír af hverjum tíu telja íslenska viðskiptaleiðtoga óheiðarlega og tveir af hverjum tíu segja það sama um stjórnmálaleiðtoga.

Kyoto-sáttmálinn tekur brátt gildi

Eftir langa bið og endalaust japl, jamm og fuður stendur nú ekkert í vegi fyrir því að Kyoto-sáttmálinn um hlýnun jarðar taki gildi 16. febrúar næstkomandi. Rússar skrifuðu í morgun undir sáttmálann og því verða þær þjóðir, sem áður höfðu undirritað sáttmálann, skuldbundnar til að hlýta skilmálum hans og að draga úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda.

Stjórnmálamenn eru óheiðarlegir

Stjórnmálamenn eru óheiðarlegir og haga sér ósiðlega. Þeir hafa of mikil völd og ábyrgð og láta aðra valdamikla menn hafa of mikil áhrif á sig. Þetta eru meginniðurstöður alþjóðlegrar könnunar, sem kynnt var í dag.

Ónýt eftir nauðhemlun

Gríðarlegur hvellur varð til þess að flugmenn á breiðþotu Atlanta-flugfélagsins hættu við flugtak í Sameinuðu arabísku furstadæmunum, á dögunum. Mikinn reyk lagði frá vélinni þegar flugmennirnir nauðhemluðu og beygðu svo út af flugbrautinni.

Samræmdum prófum frestað

Menntamálaráðherra hefur ákveðið að samræmdum prófum í fjórða og sjöunda bekk verði frestað fram í febrúarbyrjun vegna verkfallsins.

BHM harmar lagasetninguna

Bandalag háskólamanna harmar að Alþingi hafi bundið enda á verkfall grunnskólakennara með lagasetningu.

Uppsagnir á Ólafsfirði

Stjórnendur sveitarfélaganna leita ráða dyrum og dyngjum til að mæta 30 prósenta kostnaðarauka sem samningur kennara hefur í för með sér. Víða verður niðurskurður í þjónustu. Á Ólafsfirði verða uppsagnir starfsmanna. </font /></b />

Karl prins vekur reiði Breta

Karl prins vakti mikla óánægju í Bretlandi þegar efni minnismiða varð opinbert, þar sem hann fer hörðum orðum um leti, hæfileikaleysi og óeðlilegan metnað landa sinna.

Framkvæmdastjórnin loks samþykkt

Þingmenn á þingi Evrópusambandsins samþykktu í gær nýja framkvæmdastjórn sambandsins, þremur vikum eftir að andstaða þeirra við upphaflega tillögu að skipan framkvæmdastjórnarinnar varð til þess að hún var dregin til baka.

Skutu þrjá egypska hermenn

Ísraelskir hermenn skutu þrjá egypska lögreglumenn til bana á landamærum Gaza og Egyptalands í gærmorgun. Ísraelarnir urðu varir við mannaferðir nærri landamærunum og töldu að þar væru á ferð Palestínumenn að smygla vopnum. Þeir skutu því á þá úr skriðdreka.

Fá sjúkraskýrslu Arafats

Palestínska heimastjórnin fær sjúkraskýrslu Jassers heitins Arafats í sínar hendur þrátt fyrir að frönsk lög heimili einungis að nánir ættingjar hans hafi aðgang að þeim. Ástæðan er sú að frændi Arafats, Nasser al-Qidwa, sem er fulltrúi Palestínu hjá Sameinuðu þjóðunum, á rétt á að fá gögnin og ætlar að afhenda Palestínustjórn þau.

Afganistan að verða fíkniefnaríki

Afganistan er komið langt á leið með að verða fíkniefnaríki og til marks um það er að ópíumframleiðsla hefur aukist um nær tvo þriðju á einu ári. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu sem unnin var fyrir Sameinuðu þjóðirnar. Þar er hvatt til þess að hersveitir Atlantshafsbandalagsins í Afganistan ráðist gegn fíkniefnaframleiðslu.

Óvíða meiri lífsgæði en hérlendis

Ísland er sjöunda besta land í heimi til að búa í samkvæmt úttekt breska tímaritsins The Economist á lífsgæðum í 111 ríkjum. Best er að búa á Írlandi en verst eru lífsgæðin í Simbabve samkvæmt könnuninni sem unnin er fyrir "World in 2005", árlegt rit sem The Economist gefur út.

Ráðherra sagður sniðganga þing

Kolbrún Halldórsdóttir, vinstri-grænum gagnrýndi menntamálaráðherra harkalega á Alþingi í gær fyrir að hafa átt hlut að stofnun Íþróttaakademíu í Reykjanesbæ án þess að hafa svo mikið sem kynnt málið á þingi

Á annan tug létust

Í það minnsta sautján Írakar létust í gær vegna ofbeldisöldunnar sem riðið hefur yfir landið frá því að bandarískar og íraskar hersveitir réðust til atlögu í Falluja fyrir tæpum tveimur vikum. Sjö létust í sprengjuárásum á þjóðvegum nærri Samarra og Baiji.

Varaformaður veldur írafári

Sjálfstæðismaðurinn Einar Oddur Kristjánsson, varaformaður fjárlaganefndar, olli talsverðu írafári á Alþingi í gær þegar hann lýsti því yfir að nýundirritaðir samningar kennarasambandsins og sveitarfélaganna væru skelfilegir, eins og hann orðaði það.

Óveður hamlar samgöngum í Danmörku

Loka þurfti brúnni yfir Stóra belti næturlangt vegna óveðurs sem gekk yfir Danmörku í fyrrinótt. Vindurinn reif upp tré og feykti þökum af húsum auk þess sem sjávarborð hækkaði um allt að fjóra metra í mörgum höfnum á vesturströnd Danmerkur.

Íranar þróa kjarnorkueldflaugar

Bandarísk stjórnvöld hafa undir höndum gögn sem gefa til kynna að Íranar vinni að þróun eldflauga sem geta flutt kjarnorkusprengjur til skotmarka sinna, sagði Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Hann sagðist í engum vafa um að Íranar hefðu áhuga á að koma sér upp kjarnorkuvopnum og eldflaugum sem gætu flutt þau.

Skildi við mömmu sína

Sautján ára stúlka hefur fengið lögskilnað frá móður sinni. Lögskilnaðinn fékk hún á grundvelli nýrra laga sem gefa börnum að segja skilið við foreldra sína ef þeim er ómögulegt að búa saman.

Skelfileg mistök?

Sveitarstjórnarmenn hafa gert skelfileg mistök með samningum sínum við kennara, segir Einar Oddur Kristjánsson varaformaður fjárlaganefndar Alþingis. Ríkisstjórnin hafi verið búin að draga þá í land með því að setja deiluna í gerðardóm en þeir hafi sjálfviljugir kosið að fara sér að voða.

Kosið um sameiningu á morgun

Kosið verður um sameiningu hreppanna sunnan Skarðsheiðar á morgun. Það verður í fyrsta sinn sem íbúum sveitarfélaganna gefst kostur á að kjósa um sameininguna en sameiningarviðræður hafa verið uppi á borðinu í um það bil fimmtán ár.

Hafnir við Faxaflóa sameinaðar

Fjórar hafnir á Faxaflóasvæðinu hafa verið sameinaðar í einu sameignarfélagi, Faxaflóahafnir. Samningur um þetta var undirritaður í gær.

Mótmæli ítrekuð á Seltjarnarnesi

Áhugahópur um betri byggð á Seltjarnarnesi hefur mótmælt samþykkt meirihluta bæjarstjórnar Seltjarnarness um breytingu á aðalskipulagi bæjarins. Telur hópurinn að hún gangi þvert gegn vilja 1.100 Seltirninga sem mótmæltu breytingunni.

Olíustjórnendur enn að störfum

Þrátt fyrir að olíufélögin Essó, Skeljungur og Olís hafi skipt um eigendur frá því að verðsamráði þeirra lauk í kjölfar húsleitar Samkeppnisstofnunar þá starfa margir stjórnenda enn hjá félögunum sem taldir eru eiga aðild að samráðinu.

Afskipti utan verksviðs ráðherra

Björn Bjarnason dómsmálaráðherra ætlar ekki að hlutast til um rannsókn efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra á þætti einstaklinga í verðsamráði olíufélaganna. Þetta kom í svari hans við fyrirspurn Jóhönnu Sigurðardóttur á Alþingi í fyrradag.

Kennarar ekki á eitt sáttir

Laun kennara hækka um 18% að jafnaði á þremur og hálfu ári, samkvæmt nýja samningnum. Það er um 1,5% meira en í miðlunartillögu ríkissáttasemjara, sem var kolfelld. Svívirða, segir sumir kennarar og hafa strax ákveðið að hafna samningnum. Aðrir eru óvissir og segjast frekar vilja slæman samning en ennþá verri úrskurð gerðardóms.

Ætla að kæra „andlátsfregn

Foreldrar á Akureyri hyggjast kæra kennara vegna auglýsingar þeirra um andlát skólastefnu Brekkuskóla, sem birt var í sjónvarpsdagskrá þar í bæ. Andlátsfregnina undirrituðu kennarar í Brekkuskóla.

Ekki rætt um olíubrennslu

Nemendum í meistaranámi í umhverfisfræði finnst lítið gert úr þeirri staðreynd að rafskautaverksmiðja á Grundartanga brennir sextíu tonnum af olíu á dag samkvæmt upphaflegu umhverfismati. Forsvarsmenn verksmiðjunnar ætla að draga meira en helming úr framleiðslunni vegna aðstæðna á markaði.

SÞ myndu stofna rannsóknarnefnd

Forðast ber hættuleg svæði. Þetta segir Steinar Berg Björnsson um atburðina í Kabúl fyrir nokkru. Hann hefur að líkindum meiri reynslu en nokkur annar Íslendingur af friðargæslu og segir að Sameinuðu þjóðirnar myndu stofna rannsóknarnefnd til að kanna hvað hafi gerst.

Fái greitt búsetugjald mánaðarlega

Nefnd á vegum Byggðastofnunar leggur til að íbúar í Árneshreppi fái mánaðarlega greitt sérstakt búsetugjald. Rafmagn verði niðurgreitt og sérstökum aflaheimildum úthlutað til hreppsins sem verður svo deilt á milli útgerðarmanna á svæðinu.

Var vel tekið

Það munaði minnstu að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir yrði troðin undir, þegar hún heimsótti leikskólann Hof, í dag. Ráðherrann lét sér það vel líka.

Ágreiningur um Íraksstríðið

Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, segir að vissulega sé ágreiningur milli Breta og Frakka um réttmæti Íraksstríðsins en það sé bara ágreiningur.

Vill hreindýr vestur

Skotveiðifélag Íslands vill að hreindýrastofninum á Austurlandi verði skipt í tvennt og hluti hreindýranna fluttur á Vestfirði eða í Barðastrandarsýslu.

Sjá næstu 50 fréttir