Erlent

Íranar þróa kjarnorkueldflaugar

Bandarísk stjórnvöld hafa undir höndum gögn sem gefa til kynna að Íranar vinni að þróun eldflauga sem geta flutt kjarnorkusprengjur til skotmarka sinna, sagði Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Hann sagðist í engum vafa um að Íranar hefðu áhuga á að koma sér upp kjarnorkuvopnum og eldflaugum sem gætu flutt þau. Íranskir stjórnarandstæðingar í París héldu því fram í fyrradag að írönsk stjórnvöld starfræktu leynilega kjarnorkuverksmiðju nærri Teheran þar sem þeir ynnu að þróun kjarnorkuvopna. Þeir sögðu líka að yfirmaður pakistönsku kjarnorkuáætlunarinnar hefði selt Írönum hönnun að kjarnorkusprengju og auðgað úraníum sem mætti nota til að framleiða kjarnorkuvopn. "Ég neita þessum staðhæfingum alfarið. Þetta er ekki kjarnorkustöð og hefur ekkert með kjarnorku að gera," sagði Hossein Moussavian, samningamaður Írana í kjarnorkumálum. Hann sagði Alþjóða kjarnorkumálastofnunina fá að kanna staðinn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×