Stjórnmálamenn eru óheiðarlegir 18. nóvember 2004 00:01
Stjórnmálamenn eru óheiðarlegir og haga sér ósiðlega. Þeir hafa of mikil völd og ábyrgð og láta aðra valdamikla menn hafa of mikil áhrif á sig. Þetta eru meginniðurstöður alþjóðlegrar könnunar, sem kynnt var í dag. Niðurstöður könnunar sem Gallup gerði fyrir World Economic Forum eru ekki jákvæðar fyrir stjórnmálamenn þessa heims. Fimmtíu þúsund manns tóku þátt í könnuninni, sem gerð var um víða veröld, og 63 prósent þeirra telja að stjórnmálamenn séu óheiðarlegir. Hér á landi virðist þó almenningur bera mun meira traust til stjórnmálaleiðtoga, því aðeins tuttugu prósent aðspurðra voru á því að þeir væru óheiðarlegir. Tveir þriðju aðspurðra eru á því að stjórnmálamenn hafi of mikil völd á heimsvísu og um helmingur var á þeirri skoðun hérlendis. Íslendingar hafa þó meiri áhyggjur en aðrir af því að stjórnmálaleiðtogar láti undan þrýstingi þeirra sem hafa meiri völd, 66% samanborið við 57% á heimsvísu. 43% aðspurðra Íslendinga er á því að siðferðisbrestur sé vandamál meðal stjórnmálamanna, eða að þeir hagi sér ekki siðferðislega rétt. Meðaltalið í könnuninni erlendis var 52%, svo að Íslendingar virðast hafa minni áhyggjur af siðferði stjórnmálamanna en aðrir. Þeir sem þátt tóku í könnuninni virðast einnig hafa töluverðar áhyggjur af framtíðinni og þróun mála í heiminum. 45 prósent eru á því að heimurinn yrði hættulegri í framtíðinni og um þriðjungur var á því að á næstu árum myndi hættan aukast töluvert. Íslendingar eru ívið bjartsýnni en aðrir Vestur-Evrópubúar. Um 48% þjóðarinnar telja að næsta kynslóð muni lifa í óöruggari heimi, 18% telja að heimurinn verði öruggari og 29% telja að heimurinn verði samur og í dag. Í efnahagsmálum eru Íslendingar jafnframt bjartsýnni en aðrir, þar sem 30% landsmanna telja að efnahagsleg velsæld verði meiri, 49% að hún verði söm og í dag og 14% að hún verði minni hjá komandi kynslóðum.
Erlent Fréttir Mest lesið Fjölskyldan í sárum og biður foreldra um að fylgjast með netnotkun barna Innlent Starmer segir af sér Erlent Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Innlent „Við náðum í hnakkadrambið á þeim“ Innlent Telur að það eigi að gera bíla upptæka vegna utanvegaaksturs Innlent Einn kærður fyrir stórfellda líkamsárás Innlent Ekki lengur flestir sem útskrifast af náttúrufæðibraut Innlent Lést í umferðarslysi við Vík í Mýrdal Innlent Leggja bönn á áfengisneyslu vegna hitabylgjunnar Erlent Fyrstu lotu friðarviðræðna Bandaríkjanna og Íran lokið Erlent Fleiri fréttir Vandræðagangur í breskum stjórnmálum allt frá Brexit Starmer segir af sér Fundu nærri þrjú tonn af kókaíni í neðanjarðarbyrgi í Ástralíu Starmer muni segja af sér í dag Fyrstu lotu friðarviðræðna Bandaríkjanna og Íran lokið Leggja bönn á áfengisneyslu vegna hitabylgjunnar „Konur eru svangari, fátækari og örvæntingarfyllri en nokkru sinni fyrr“ Sagður ætla að tilkynna afsögn á morgun Vance þreifar fyrir sér í Sviss Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Sjá meira