Erlent

Óveður hamlar samgöngum í Danmörku

Loka þurfti brúnni yfir Stóra belti næturlangt vegna óveðurs sem gekk yfir Danmörku í fyrrinótt. Vindurinn reif upp tré og feykti þökum af húsum auk þess sem sjávarborð hækkaði um allt að fjóra metra í mörgum höfnum á vesturströnd Danmerkur. Ferjusiglingum milli dönsku eyjanna og frá Hirtshals í norðvestur Danmörku og Kristiansand í Noregi var hætt meðan óveðrið gekk yfir. Talsverðar skemmdir urðu á Borgundarhólmi í Eystrasalti þegar veðrið gekk þar yfir í gærmorgun þrátt fyrir að menn hafi verið viðbúnir því og hafið aðgerðir til að bregðast við veðrinu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×