Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Bóluefni í vinning Vegna mikils skorts á bóluefni gegn inflúensu hafa bæjaryfirvöld í Bloomfield í New Jersey ákveðið að efna til happdrættis til að ákvarða hvaða íbúar fá bóluefni. 18.10.2004 00:01
10 þúsund minna í vasann Skattprósentan á að lækka niður í um 35% í lok kjörtímabilsins eða svipað og hún var 1988 þegar staðgreiðslukerfið var tekið upp. Hins vegar hefur maður sem hafði 50 þúsund krónur á mánuði 1988 10 þúsund krónum minna eftir í vasanum nú en hann hefði haft ef skattkerfið hefði haldist óbreytt. 18.10.2004 00:01
Hressir eftir að Vaidas dó Jónas Ingi Ragnarson og Tomas Malakauskas virtust hressir og kátir og alls ekki áhyggjufullir, eftir að Vaidas Jucevicius lést í Kópavogi og þar til honum var komið fyrir í sjóinn við netagerðabryggjuna í Neskaupstað, að sögn vitna í aðalmeðferð Líkfundarmálsins í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. 18.10.2004 00:01
Rússar tjá sig um æfingu Í svari rússneska utanríkisráðuneytisins til íslenskra stjórnvalda kemur fram að æfingu rússneskra herskipa sem héldu sig skammt norðaustur af Íslandi hafi lokið síðasta föstudag og að í framhaldinu hafi skipin haldið á braut. 18.10.2004 00:01
Hermönnum bjargað úr pytti Fimm varnarliðsmönnum í skemmtiferð var bjargað skammt frá Kerlingafjöllum skömmu fyrir klukkan hálf sjö í gær þar sem þeir höfðu fest Ford 450 pikkupjeppabifreið sína í krapapytti. 18.10.2004 00:01
Lög ekki til umræðu Lög á kennaraverkfall eru ekki á borðum ríkisstjórnarinnar sem stendur, segir menntamálaráðherra, og telur sveitarfélögin hafa töluvert svigrúm til að leysa deiluna. Deilendur eru sammála um að lagasetning leysi ekki vandann. Þeir sátu árangurslausan sáttafund í dag en til nýs fundar hefur verið boðað á morgun. 18.10.2004 00:01
Peningar í hjálparstarf Í nýjustu Stiklum utanríkisráðuneytisins kemur fram að ríkisstjórnin hafi ákveðið að veita 5 milljónum króna til mannúðar-og uppbyggingarstarfs í ríkjunum sem verst hafa orðið úti af völdum fellibylja í Karabíska hafinu. 18.10.2004 00:01
Vissi ekki af líkinu Einn sakborninganna í líkfundarmálinu segist ekki hafa haft hugmynd um að lík væri vafið í teppi og geymt aftur í, í jeppa sem hann ók um 700 kílómetra leið austur á firði. Hinir sakborningarnir tveir staðhæfa að allir þrír hafi átt þátt í að koma líkinu fyrir í höfninni í Neskaupstað. Aðalmeðferð málsins hófst í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. 18.10.2004 00:01
Varnarhugmyndir gagnrýndar Hugmyndir framtíðarhóps Samfylkingarinnar um varnarmál eru gagnrýndar bæði frá hægri og vinstri. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, varaformaður Samfylkingarinnar kynnti nýjar hugmyndir framtíðarhóps á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar um helgina. Óhætt er að segja að "umræðuplagg" hópsins í varnarmálum hafi vakið mesta athygli. 18.10.2004 00:01
Allt logar í málaferlum Það virðist ekki fjarri lagi að kalla megi komandi forsetakosningar í Bandaríkjunum kosningar hinna miklu málaferla. Aldrei áður í sögunni hafa jafn mörg mál verið höfðuð í tengslum við kosningar og aldrei hafa jafn margir lögmenn verið fengnir til að fylgjast með framgangi kosninganna að því er fram kemur í The New York Times. 18.10.2004 00:01
Lægstu símgjöldin hér á landi Íslendingar borga minnst norrænu þjóðanna fyrir að tala í síma. Þetta kemur fram í viðamikilli skýrslu norrænu samkeppnisstofnananna sem kynnt var í dag. Höfundar skýrslunnar telja of mikla fákeppni á símamarkaði á Norðurlöndum og æskilegt að stefna að einum norrænum símamarkaði. 18.10.2004 00:01
Þak fauk og bátur sökk Vitlaust veður var í Vestmannaeyjum í gær og hlaust af talsvert tjón. Rýma þurfti nokkra vinnustaði í bænum eftir að hluti þaks á einu af húsum Ísfélags Vestmannaeyja hófst á loft og skall af miklum þunga á jörðina. Engan sakaði. </font /></b /> 18.10.2004 00:01
Dimmt og kalsalegt Rafmagn fór af Höfn í Hornafirði um miðjan dag í gær og voru bæjarbúar án rafmagns fram undir kvöld. Bilun varð í báðum línunum sem bera rafmagnið inn í bæinn en orsakir þeirra eru ókunnar. </font /></b /> 18.10.2004 00:01
Staðan betri í Darfur en í Írak Súdönsk stjórnvöld hafa tekið betur á ástandinu í Darfur en Bandaríkjamenn á ástandinu í Írak, sagði Mustafa Osman Ismael, utanríkisráðherra Súdans, í viðtali við BBC. Hann sakaði bandaríska stjórnmálamenn um að notfæra sér ástandið í Darfur til að bæta ímynd sína í aðdraganda komandi þing- og forsetakosninga í Bandaríkjunum. 18.10.2004 00:01
Hlunnfarin um hlunnindajarðir Þjóðkirkjan vill að ríkið greiði henni þrjá milljarða króna í bætur fyrir prestssetur sem seld hafa verið á síðustu áratugum án þess að nokkuð hafi komið í staðinn. Ríkið vill hins vegar aðeins greiða 150 milljónir enda styðst það við aðra skilgreiningu á hvaða jarðir teljist til prestssetra. </font /> 18.10.2004 00:01
Sinnuleysi um varnir landsins Rússnesku herskipin höfðu verið innan íslensku efnahagslögsögunnar í hálfan mánuð áður en krafist var skýringa frá yfirvöldum í Moskvu. Þetta töldu stjórnarandstæðingar bera vott um sinnuleysi ríkisstjórnarinnar um varnir landsins í umræðum um málið á Alþingi í dag. Ótti við kjarnorkuknúna, rússneska ryðdalla virtist þó ekki fylgja flokkslínum. 18.10.2004 00:01
Höfuðborgarbúar flýja atvinnuleysi Síðustu mánuði hafa fleiri flutt frá höfuðborgarsvæðinu en til þess. Prófessor í félagsfræði segir þessa þróun afar óvenjulega og telur að betra atvinnuástand á landsbyggðinni en í höfuðborginni sé líklegasta skýringin. </font /></b /> 18.10.2004 00:01
Vestfirðir eitt prófastsdæmi Á kirkjuþingi í gær var lagt til að Barðastrandarprófastsdæmi og Ísafjarðarprófastsdæmi sameinist og heiti hins sameinaða prófastsdæmis verði Vestfjarðaprófastsdæmi. 18.10.2004 00:01
Líflegt á kirkjuþingi Líflegt var í Grensáskirkju á öðrum degi kirkjuþings í gær. Umræður spunnust um stöðu samningamála við ríkið eftir að kirkjumálaráðherra vék að prestssetrum í ræðu sinni á sunnudag. Bent var á var að vilja hafi skort til að ræða þessi mál af hálfu ráðamanna og því hafi verið erfitt að þoka þeim áfram. 18.10.2004 00:01
Pyntingar rannsakaðar í Georgíu Yfirvöld í fyrrum Sovétlýðveldinu Georgíu kanna nú mál fjórtán lögreglumanna sem grunaðir eru um að hafa pyntað fjölda fanga á síðastliðnum árum. Ríkissaksóknari landsins sagði að fleiri lögreglumenn væru grunaðir um pyntingar. 18.10.2004 00:01
Vetrardekkin viðruð Annir voru á dekkjaverkstæðum í gær þar sem fjöldi ökumanna vildi losna af sumarbörðunum í fyrstu vetrarhálkunni sunnan heiða. Lausleg athugun Fréttablaðsins sýndi að nagladekkin væru á undanhaldi, heilsársdekk og grófmynstruð vetrardekk nytu æ meiri vinsælda. 18.10.2004 00:01
Þaki haldið í skefjum Þaki á einbýlishúsi á Höfn í Hornarfirði var haldið í skefjum með skurðgröfu í gær. Hávaðarok var í bænum, líkt og víða um land, og fylgdust björgunarsveitarmenn árvökulum augum með því sem hugsanlega gat tekist á loft. 18.10.2004 00:01
Hundrað skip á sjó Um eitt hundrað skip og bátar voru á sjó undir kvöld í gær samkvæmt upplýsingum frá tilkynningaskyldunni. Smærri bátar höfðu komið sér í land vegna veðursins en hinir stærri létu ekki vagg og veltu á sig fá og héldu fast við sinn keip. Skip voru víða að veiðum, á grynningu fyrir sunnan land, meðfram norðurströndinni og eins á Halamiðum. 18.10.2004 00:01
Komst sjálfur heim Bónda í Berufirði var saknað um skeið í gær og voru björgunarsveitir kallaðar út til leitar. Skilaði hann sér sjálfur heim, heill á húfi, áður en leit hófst af þunga. Maðurinn fór að líta eftir fé snemma í gær og skilaði sér ekki heim á tilsettum tíma. 18.10.2004 00:01
Veturinn kom í gær Vindur blés hressilega víða um land í gær og sums staðar var dágóð snjókoma. Nokkurt tjón hlaust af þegar hluti þaks feyktist af mjölgeymslu í Vestmannaeyjum, rafmagn fór af á Höfn í Hornafirði og snjóþyngsli öftruðu færð á Austfjörðum. 18.10.2004 00:01
Óákveðnir og nýir ráða úrslitum Þeir kjósendur sem ennþá eru óákveðnir og þeir sem aldrei hafa kosið áður koma til með að ráða úrslitum forsetakosninganna vestan hafs. Þetta er mat Davids Rohdes sem er einhver þekktasti sérfræðingur í kosningahegðun í Bandaríkjunum. 18.10.2004 00:01
Óvissa um umsóknir Reykjavíkur Um 20 undanþágubeiðnir liggja fyrir undanþágunefnd kennara og sveitarfélaganna sem fundar klukkan ellefu. 18.10.2004 00:01
Málaferli gegn borginni Oddviti sjálfstæðismanna í borgarstjórn telur fráleitt að líta svo á að hömlur sem settar voru á uppbyggingu matvöruverslana í Grafarvogi gildi enn. Engum geti dottið í hug að þær hafi átt að gilda að eilífu. Verið er að undirbúa málaferli gegn Reykjavíkurborg vegna samninga um einokun Baugs á matvöruverslun í hverfinu. 18.10.2004 00:01
Öftust í forgangsröðinni Sum börn innan veggja almennra grunnskóla eiga við mun alvarlegri fötlun að stríða en börnin í sérskólum, segir Halldór Gunnarsson formaður Landssamtakanna Þroskahjálpar. 18.10.2004 00:01
Einhverf börn á leið í skólann Reykjavíkurborg hefur látið undirbúa nýjar umsóknir fyrir um tíu einhverf grunnskólabörn í borginni. Stefán Jón Hafstein formaður Fræðsluráðs Reykjavíkur segir að farið verði að kröfum kennara. Allir þeir 20 til 30 sem komi að kennslu barnanna verði kallaðir út og fái laun samkvæmt ráðningarsamningi. 18.10.2004 00:01
Loka þurfti Oddsskarði Vonskuveður var á austanverðu landinu í gær og voru björgunarsveitir á Egilsstöðum og Reyðarfirði kallaðar út til að aðstoða ökumenn bíla sem lent höfðu í vandræðum í Fagradal vegna ófærðar. 18.10.2004 00:01
Olíuvinnsla hér við land? Eftir því sem olíuverð hækkar og ófriður eykst á helstu olíuvinnslusvæðum veraldar leita menn nýrra olíuvinnslusvæða á norðurhveli. Ýmsar vísbendingar eru um olíu og gas á íslensku hafsvæði. 18.10.2004 00:01
29. dagur verkfalls Landsbankinn hefur hætt dagvistun barna starfsmanna í verkfalli kennara. Atli Atlason framkvæmdastjóri starfsmannasviðs segir að í byrjun verkfalls þegar staða foreldra hafi verið könnuð hafi verið talið að um 40 til 50 börn þyrftu gæslu. 18.10.2004 00:01
Fasteignaskattstekjur aukast mikið Tekjur sveitarfélaga af fasteignasköttum gætu aukist um meira en einn milljarð króna á næsta ári vegna hækkunar fasteignaverðs. Fasteignaskattar eru næststærsti tekjustofn sveitarfélaganna á eftir útsvarinu og skila þeim u.þ.b. 11 milljörðum króna á þessu ári í sveitarsjóðina. Þeir taka hins vegar mið af fasteignaverði. 18.10.2004 00:01
Eiríkur útilokar lagasetningu Ekki er í bígerð að setja lög á verkfall kennara, segir Eiríkur Jónsson formaður Kennarasambands Íslands: "Lagasetning er út úr myndinni. Ég treysti þeim heimildum sem ég hef." 18.10.2004 00:01
Stjórnarskrá breytt í kosningum Umdeildur forseti Hvíta-Rússlands verður að líkindum um hríð í embætti því stjórnarskrá landsins var breytt í þjóðaratkvæðagreiðslu. Eftirlitsmenn gera athugasemdir við framkvæmdina, en hann blæs á gagnrýni. 18.10.2004 00:01
Samræmd próf burt Umfangsmestu breytingar á bresku skólakerfi í sextíu ár voru kynntar í gær. Samkvæmt þeim verður dregið mjög úr notkun samræmdra prófa til að mæla árangur nemenda á menntaskólaaldri. 18.10.2004 00:01
Frammíköll, skvaldur og fliss Geir H. Haarde fjármálaráðherra sakaði Samfylkinguna um málefnaskort þegar hann var gagnrýndur fyrir það í upphafi þingfundar að skipa einungis karlmenn í nýja framkvæmdanefnd um stofnanakerfi og rekstur verkefna ríkisins. 18.10.2004 00:01
Kóreumenn verða áfram í ár Suður Kóreskar hersveitir verða áfram í Írak í að minnsta kosti ár. 2800 Suður Kóreskir hermenn hafa verið sendir til Írak í mánuðinum og 800 í viðbót koma í nóvember. Þeir munu aðallega vinna við hjálparstörf og endurreisn. 17.10.2004 00:01
Héraðslistinn fékk flest atkvæði Héraðslistinn fékk flest atkvæði í sveitarstjórnarkosningunum í nýja sveitarfélaginu á Héraði í gær. Fékk listinn 417 atkvæði og fjóra menn kjörna. Framsóknarflokkurinn og Sjálfsstæðisflokkurinn fengu hvor þrjá menn kjörna og listi Áhugafólks um sveitarstjórnarmál einn mann. Alls nýttu 1410 atkvæðisrétt sinn en á kjörskrá voru ríflega 2100 manns. 17.10.2004 00:01
7 handteknir Sjö hafa verið handteknir í Kína fyrir að pakka og selja gervi-mjólkurduft fyrir kornabörn. Þrettán börn hafa látist eftir neyslu duftsins, og á annað hundrað hafa veikst. Fólkið hafði selt duftið mánuðum saman í norðurhluta landsins áður en athæfið komst upp. Sumt af duftinu var raunverulegt mjólkurduft, en í það vantaði mörg lífsnauðsynleg næringarefni. 17.10.2004 00:01
Skorinn á háls, en lifir af Maður á þrítugsaldri var skorinn á háls með brotnu glasi á veitingastaðnum Nellys á gatnamótum Bankastrætis og Þingholtsstrætis í nótt. Betur fór en á horfðist því hann mun að sögn lögreglu lifa árásina af en átökin byrjuðu sem slagsmál fjögurra manna. Allir eru mennirnir á þrítugsaldri. 17.10.2004 00:01
Í vandræðum á Esjunni Feðgar lentu í vandræðum í gönguferð upp Esjuna um fimm leytið í gær þegar svarta þoka skall á. Björgunarsveitir Slysavarnarfélagsins Landsbjargar voru kallaðar út eftir að faðirinn náði símasambandi við Neyðarlínuna. Feðgunum var sagt að halda kyrru fyrir. 17.10.2004 00:01
Karzai byrjar vel Nú hafa 5% atkvæða í forsetakosningunum í Afganistan verið talin, og hefur Hamid Karzai, bráðabirgðaforseti landsins, fengið 67% þeirra. Búist er við að það taki nokkra daga að ljúka talningunni. Góð kjörsókn var í þessum fyrstu frjálsu þingkosningum í landinu. 17.10.2004 00:01
70 þúsund látnir í Súdan? Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin segir að sjötíu þúsund flóttamenn hafi látist í Darfur héraði í Súdan á síðustu mánuðum. Yfirvöld í Súdan segja töluna ekki nærri svona háa. Starfsmenn alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar segja hinsvegar engan vafa, farsóttir hafi breiðst út og malaríutilfellum fjölgað mjög. Þá hafi margir látist af vannæringu. 17.10.2004 00:01