Innlent

Vestfirðir eitt prófastsdæmi

Á kirkjuþingi í gær var lagt til að Barðastrandarprófastsdæmi og Ísafjarðarprófastsdæmi sameinist og heiti hins sameinaða prófastsdæmis verði Vestfjarðaprófastsdæmi. Þetta er í fjórða sinn sem biskupafundur flytur tillögu þessa efnis en vonast er til að breytingin styrki kirkjulegt samstarf í fjórðungnum. Góður rómur var gerður að tillögunni en þó kom fram ábending þess efnis að þrátt fyrir sameininguna yrði Vestjarðaprófastsdæmi fámennt. Málinu var vísað til löggjafarnefndar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×