Fleiri fréttir

Frakkar kaupa olíu sem aldrei fyrr

Frakkar láta hátt olíuverð ekki trufla sig ef marka má nýlegar sölutölur þaðan. Frakkar, sem vanalega eru afar harðir neitendur, nota bensín og olíu sem aldrei fyrr, þrátt fyrir hið háa verð. Ákveðnir hópar í Frakklandi hafa þó staðið fyrir mótmælum eins og vænta mátti, en hafa ekki náð eyrum almennings.

Skógarbjörn gengur berseksgang

Einn maður lést og sjö slösuðust þegar skógarbjörn gekk berseksgang í Rúmeníu. Skógarhöggsmenn skutu björninn niður þegar mesta æðið var runnið af honum, en þá hafði hann auk fyrrgreindrar árásar á fólk sem var við sveppatýnslu einnig ráðist á sjúkrabíl sem kom á staðinn.

Mega skjóta niður dópflugvélar

Lög sem heimila flugher Brasilíu að skjóta niður flugvélar sem grunaðar eru um að flytja eiturlyf taka gildi í dag. Stjórnvöld í Brasilíu segja fíkniefnavandann orðinn það alvarlegan í landinu að nausynlegt sé að grípa til harkalegra aðgerða.

Ættu ekki að ala upp börn

"Í hverri einustu viku er í DV svo sóðaleg lygi og svo yfirgengilegur sóðaskapur og bull að ég myndi ekki láta sjá mig í sjónvarpi,væri ég ritstjóri þess blaðs, hvað þá taka að mér að ala upp börn," sagði Bjarni Harðarson, ritstjóri Sunnlenska fréttablaðsins í Silfri Egils á Stöð 2 í dag. Bjarni beindi orðum sínum til annars tveggja ritstjóra DV sem var gestur í Silfrinu.

Níu létust í árásum skæruliða

Níu írakskir lögreglumenn létust þegar skæruliða réðust á bíl þeirra fyrr í dag. Lögregumennirnir voru að koma af æfingu suðvestur af Baghdad, þegar skæruliðarnir létu til skarar skríða og drápu alla lögreglumennina sem í bílnum voru.

Kerry saxar á fylgi Bush

John Kerry saxar á fylgi George Bush samkvæmt nýrri skoðanakönnun Reuters/Zogby. Einungis rúmar tvær vikur eru þar til bandarískir kjósendur velja sér forseta annan nóvember. Bandaríska stórblaðið The New York Times lýsti í dag yfir stuðningi við Kerry í leiðara.

Hvítrússar kjósa í dag

Í dag kjósa Hvítrússar um það hvort Alexander Lukashenko, forseti landsins, skuli hefja sitt þriðja kjörtímabil í embætti. Strangt til tekið er Lukashenko fallinn á tíma, því að hann má aðeins sitja tvö kjörtímabil, en honum leyfist þó að boða til þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhald sitt, beri þannig undir og það hefur hann gert nú.

Fljótsdalshérað talið best

Fljótsdalshérað er nafnið sem kjósendur í sveitarstjórnarkosningunum á Austur Héraði vilja sjá sem nafn á nýju sveitarfélagi. Þau nöfn sem kosið var um í gær voru Egilsstaðabyggð, Fljótsdalshérað og Sveitarfélagið Hérað, en jafnframt gafst kjósendum kostur á að leggja fram annað nafn frá eigin brjósti.

Slökkviliðsmenn styðja kennara

Stjórn og fulltrúaráð Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna lýsir fullum stuðningi við kjarabaráttu kennara, sem landssambandið telur mikilvægt að leysist hið allra fyrsta, enda geti langvinnt verkfall haft mjög alvarlegar afleiðingar í för með sér.

Indland sigrar klæðskiptingakeppni

Litrík og íburðarmikil fegurðarsamkeppni klæðskiptinga var haldin í höfuðborg Perús í gær. Fulltrúi Indlands sigraði með yfirburðum. 21 maður tók þátt í keppninni, sem haldin var í höfuðborg Perú, Líma í gær. Keppendur komu fram í baðfötum, sumarkjólum og kvöldkjólum, á vel sóttri sýningu og það var indverski keppandinn, Lidia Zaray, bar sigur úr bítum.

Færri látast í stríðsátökum

Enda þótt styrjaldir séu stöðugt í heimsfréttunum þá er það staðreynd að stríðsátökum fer fækkandi og dregið hefur úr mannfalli af þeirra völdum

Biskup: Kennaraverkfall óþolandi

Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, var ómyrkur í máli þegar hann ræddi verkfall grunnskólakennara í setningarræðu sinni á kirkjuþingi. Sagði hann að samfélagið flokkaði börn sem afgangsstærð og að óþolandi væri að kennarar fyndu sig knúa til að beita verkfallsvopninu.

Ávaxtablanda á þrjúþúsundkall

Fjöldi Íslendinga kaupir tæpan líter af djúsi á þrjú þúsund krónur í þeirri von að grennast. Verkefnisstjóri næringarmála hjá lýðheilsustöð segir kúrinn ekki skila meiri árangri en tveir til þrír ávextir, fjölvítamíntafla og nokkur vatnsglös.

Hætt eftir að Jón komst í málið

Skömmu eftir að Jón Steinar Gunnlaugsson komst á snoðir um gerð sjónvarpsþáttar um prófessorsmálið svokallaða var hætt við gerð þáttarins. Dagskrárstjóri sjónvarps segir Jón Steinar ekki hafa komið nálægt þeirri ákvörðun.

Íraksstríðinu mótmælt

Tuttugu þúsund manns streymdu um götur Lundúnaborgar í dag til að mótmæla Íraksstríðinu. Mannfjöldinn krafðist þess að hernaði í Írak yrði hætt og hersveitir bandamanna kallaðar heim.

Héraðslistinn vann

Héraðslistinn var sigurvegari sveitarstjórnarkosninganna í sameinuðu sveitarfélagi á Héraði í gær. Þá völdu kjósendur hinu nýja sveitarfélagi nafnið Fljótsdalshérað. Kjörsókn var heldur dræm í gær, eða 66,38%. Minnst var kjörsókn meðal íbúa Austur Héraðs þar sem 1600 afþeim 2100 sem voru á kjörskrá búa.

Nýtt fiskasafn

Til stendur að opna fiskasafn í Húsdýragarðinum og er sjó dælt í garðinn í því skyni. Nú stendur yfir kynning á deiliskipulagi sem felur í sér mikla stækkun á garðinum. Samkvæmt nýju deiluskipulagi sem nú er til kynningar verður garðurinn stækkaður umtalsvert og gert er ráð fyrir yfirbyggðum hluta sem gæti orðið allt að tíu þúsund fermetrar.

Biskup mjög ósáttur

Biskup Íslands, Karl Sigurbjörnsson, segir óþolandi að kennarar finni sig knúna til að beita verkfallsvopninu. Það sé brýnt að fundin verði leið til að tryggja kennurum viðunandi kjör. Börnin séu afgangsstærð í einu ríkasta samfélagi heims.

Kirkjan í mál við ríkið?

Kirkjan gæti þurft að höfða mál á hendur ríkinu vegna deilna um Prestsetur. Kirkjan sakar Landbúnaðarráðuneytið um að selja eignir kirkjunnar meðan samningum um þær sé ólokið. Dómsmálaráðherra segir að jarðir sem alþingi hafi samþykkt að selja séu í gíslingu.

Einokun ekki aflétt

Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarfulltrúi Reykjavíkurlistans segir ekki standa til að aflétta skipulagskvöðum í Grafarvogi sem meina lóðareigendum í Fossaleyni að starfrækja matvöruverslun. Hún segir slíkar kvaðir ríkjandi alls staðar í borginni til að stýra skipulagi svo ekki skapist óreiða.

Bróðurparturinn er lesblindur

Bróðurpartur þeirra fimmtán þúsund manna sem ætla má að eigi við verulega lestrarörðugleika að etja hér á landi er lesblindur. Skýrslu um leiðir til að takast á við vandann hefur verið stungið ofan í skúffu.

AVION hefur góð áhrif

Nýi, íslenski flugrisinn, Avion Group, hefur jákvæð áhrif á rekstur Iceland Express, að sögn eigenda þess síðarnefnda. Iceland Express stefnir í að verða réttum megin við núllið í ár, eftir 30 milljóna króna tap í fyrra. Óformlegar viðræður standa enn yfir við flugfreyjur félagsins, sem sagt var upp störfum fyrir skemmstu.

HVersdagslegir hlutir segja margt

Hversdagslegir hlutir á borð við baunadós og ópalpakka geta sagt til um tíðarandann og þankaganginn í samfélaginu. Í Listasafni Reykjavíkur stendur nú yfir Grafísk hönnunarsaga á Íslandi.

Fær hótanir vegna dóplista

Breiðhyltingurinn Björn Sigurðsson sem birtir nöfn dópsala á netinu hefur fengið hótanir í gegnum síma og á netinu frá þeim sem eru andsnúnir listunum. Tengdadóttir hans hefur einnig fengið hótanir.

Lög á verkfall eina leið ríkisins

Ekki er hægt að leysa verkfall kennara með því að ríkið setji fé í jöfnunarsjóð sveitarfélaganna svo illa stæð sveitarfélög geti mætt launakröfum kennara því samkomulag hafi náðst um fjármál milli sveitarfélaga og ríkisins, segir Gunnar I. Birgisson, formaður bæjarráðs Kópavogs og menntamálanefndar Alþingis.

28. dagur verkfalls

Samninganefndir kennara og sveitarfélaganna hittast á fundi ríkissáttasemjara klukkan eitt í dag. Kennarar ætla að fjölmenna fyrir utan Karphúsið og sýna samninganefnd sinni samstöðu.

Útilokar ekki málsókn gegn ríkinu

Þjóðkirkjuna og ríkið greinir á um eignarréttarstöðu prestssetra. Kirkjumálaráðherra undrast að deilur séu um málið en biskup segist ekki útiloka málsókn ef í harðbakkann slær.

Útilokar ekki málsókn gegn ríkinu

Þjóðkirkjuna og ríkið greinir á um eignarréttarstöðu prestssetra. Kirkjumálaráðherra undrast að deilur séu um málið en biskup segist ekki útiloka málsókn ef í harðbakkann slær.

Líklega í stjórn með D-lista

Héraðslistinn fékk fjóra menn kjörna í sveitarstjórnarkosningum á Héraði á laugardag. Nafnið Fljótdalshérað var efst á lista yfir hugsanlegt nafn á sameinuðum sveitarfélögum Austur- og Norður Héraðs og Fellahrepps.

Skoða lausn á námsmálum fatlaðra

Borgarstjórn Reykjavíkur og bæjarstjórn Akureyrar ætla að skoða hvort grundvöllur sé til að leysa vanda fjölskyldna fatlaðra barna. Það er í kjölfar frétta um samninga Kópavogs við Kennarasamband Íslands sem leiddi til undanþágu fyrir 13 kennara einhverfra barna í Digranesskóla.

Stöðumælagjöld greidd með gsm

Á næstunni verður hægt að greiða stöðumælagjöld í Reykjavík með gsm-símum. Samningur Reykjavíkurborgar um þetta við félögin Góðar lausnir ehf. og Farsímagreiðslur ehf. verður undirritaður í dag. Árni Þór Sigurðsson, formaður samgöngunefndar Reykjavíkur, segir að það muni líða tvær til fjórar vikur frá undirritun samningsins þar til kerfið verði tekið í notkun. "Við vonum að þetta verði komið fyrir jólatraffíkina," segir Árni.

Verðbólga verður rúm 6%

Verðbólga verður rúm sex prósent í upphafi árs 2007 samkvæmt hagspá Landsbankans fyrir árin 2004 til 2010. Í spám fjármálaráðuneytisins er hins vegar gert ráð fyrir að verðbólga haldist á bilinu þrjú til 3,5 prósent fram til ársins 2007, en þá muni hún lækka í tvö prósent.

Hryðjuverkamennirnir fíklar

Rannsóknir hafa sýnt að sumir hryðjuverkamannanna sem tóku yfir þúsund gísla í skóla í Beslan voru eiturlyfjaneytendur.

Þrýstingi létt af ríkisstjórninni

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, skrifaði undir viljayfirlýsingu sambandsins, félagsmálaráðherra og fjármálaráðherra um áhersluatriði í samningaviðræðum ríkis og sveitarfélaga án þess að bera hana undir stjórn sambandsins eða fulltrúa sambandsins í svonefndri tekjustofnanefnd. Fjallar sú nefnd meðal annars um tekjuskiptingu ríkis og sveitarfélaga.

Ættu að draga úr áhyggjum

Utanríkisráðherra Rússlands, Sergei Lavrov, sagði að Íran ætti að gera ráðstafanir til þess að draga úr alþjóðlegum áhyggjum af kjarnorkuáætlunum þeirra.

Sex létust í 11 bíla árekstri

Sex manns létust og 15 slösuðust alvarlega þegar trukkur fullur af ólöglegum innflytjendum olli 11 bíla árekstri við flótta frá lögreglu í Phoenix, Arizona.

Stefnir í stórsigur Karzai

Hamid Karzai, bráðabirgðaforseti Afganistan, hefur fengið tæplega 64 prósent þeirra atkvæða sem talin hafa verið síðan þingkosningar fóru fram 9. október.

New York Times styður Kerry

Dagblaðið New York Times styður John Kerry sem forseta Bandaríkjanna. Blaðið greindi frá þessu í sunnudagsútgáfu sinni og kemur stuðningsyfirlýsingin ekki á óvart.

Bandaríkjaher umkringir Falluja

Bandarískir hersveitir eru búnar að umkringja borgina Falluja og bandarískar herflugvélar gerðu loftárásir á svæði uppreisnarmanna um helgina. Staðfest hefur verið að þrír borgarar hafi látist í átökunum í gær en óttast er að þeir hafi verið mun fleiri.

Segir herþoturnar óþarfar

Framtíðarhópur Samfylkingarinnar undir forystu Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur varaformanns skilaði af sér áfangaskýrslum á flokksstjórnarfundi á laugardag. Þar kemur meðal annars fram sú skoðun að Íslendingar eigi að taka við rekstri flugvallarins í Keflavík.

Herþoturnar mikilvægar

Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra og einn helsti talsmaður Sjálfstæðisflokksins í utanríkismálum, segir að pólitískt gildi varnarbúnaðar, eins og orrustuþotna, skipti verulegu máli við öryggisgæslu.

Lögsóknum anstöðunnar vísað frá

Hæstiréttur Myanmar hefur vísað frá lögsóknum stjórnarandstöðuflokks Aun San Suu Kyi þar sem þess er krafist að henni verði gefið frelsi á ný. Þá vildi flokkurinn fá umfjöllun dómstóla um lokun yfirvalda á skrifstofum þeirra. Dómarar við Hæstaréttinn tóku sér einungis nokkrar klukkustundir til að fjalla um lögsóknirnar áður en þeim var vísað frá.

Hléið varð til happs

Betur fór en á horfðist þegar eldur kom upp í þjóðleikhúskjallaranum í gærkvöldi. Um 800 manns voru í þjóðleikhúsinu á tveimur leiksýningum en greiðlega gekk að rýma hússið. Það vildi til happs að hlé var á leiksýningunni þegar brunavarnakerfið fór í gang.

Teknir fyrir að hafa í haldi dóp

Lögreglan í Kópavogi handtók í gær tvo menn og gerði upptæk tæplega 400 grömm af kannabisefnum, e-töflum og amfetamíni í húsi í austurbæ Kópavogs. Þá fannst líka töluvert af landa í húsinu. Mönnunum var sleppt að loknum yfirheyrslum og telst málið upplýst. Einn ökumaður var tekinn í Kópavogi grunaður um ölvun við akstur, og annar í Keflavík.

Hrefna heldur suður um höf

Ingibjörg Helga heitir hrefna ein sem merkt var með gervihnattamerki í Faxaflóa í haust. Samkvæmt upplýsingum Hafrannsóknarstofnunar hefur hún nú haldið suður í höf, yfir þúsund sjómílna leið. Hrefnan Ingibjörg var merkt þann 14. september, en rúmri viku síðar synti hún hratt vestur að landgrunnsbrún og hélt sig þar í nokkra daga.

Sjá næstu 50 fréttir