Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Höfuðpaurinn sprengdi sig Höfuðpaur hryðjuverkanna í Madrid þann 11. mars er einn mannanna 7 sem sprengdu sig í loft upp þegar lögregla gerði rassíu í höfuðstöðvum þeirra fyrir skömmu. Morðdeild lögreglunnar í Madrid segist hafa borið kennsl á lík mannsins, sem varð lögreglumanni að bana og særði 15, þegar hann sprengdi sig upp ásamt 6 félögum sínum. 16.10.2004 00:01
Fjöldi deyr vegna reykeitrunnar Á aðra milljón manna lætur lífið á ári hverju vegna reykeitrunar af völdum innanhúskyndinga og frumstæðra eldavéla. Alþjóða Heilbrigðismálastofnunum ætlar að fara af stað með átak, sem ætlað er að draga úr dauðsföllum af þessu tagi í fátækum löndum, þar sem slík eitrun er ein algengasta orsök dauða og sjúkdóma. 16.10.2004 00:01
20% eru óákveðnir Einn af hverjum fimm kjósendum í Bandaríkjunum er óákveðinn um það hvern skuli kjósa í forsetakosningunum. Aðeins 17 dagar eru í kosningarnar og fylgi þeirra Bush og Kerrys er hnífjafnt sem stendur. Það stefnir því í æsispennandi kosningar og veltur allt á óákveðnum kjósendum. 16.10.2004 00:01
Eiga að hætta í aukaatriðum Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra og varaformaður Framsóknarflokksins segist hafa þungar áhyggjur af áhrifum verkfalls grunnskólakennara á fjölskyldurnar í landinu. Hann segir nausynlegt að deiluaðilar hætti að hugsa um aukaatriði og fari að snúa sér að því að leysa deiluna. 16.10.2004 00:01
Líklega öll farin Landhelgisgæslan telur allar líkur á að Rússaskipin sem voru austur fyrir landi séu farin. Gæslan er nú í könnunarflugi yfir staðinn. Á miðvikudag bárust þau skilaboð að skipin myndu verða á Þistilfjarðargrunni fram á sunnudag. 16.10.2004 00:01
Persaflóaheilkennið staðfest Vísindamenn í Bandaríkjunum segjast hafa sýnt fram á tivist svokallaðs Persaflóa-heilkennis sem er hugtak, sem notað hefur verið yfir kerfisbundin veikindi bandarískra hermanna sem börðust í fyrra Íraksstríðinu. Þúsundir hermanna þjást af veikindum sem ekki hefur tekist að útskýra. Meðal einkenna eru minnistap, síþreyta og stöðugur svimi. 16.10.2004 00:01
Ramadan byrjar með blóðbaði Þrír bandarískir hermenn létu lífið í sjálfsmorðsárás í Írak, nálægt landamærum Sýrlands, sem átti sér stað í morgun. Þá létust 4 Írakar og 30 slösuðust í árás skæruliða í Baghdad í morgunsárið. Að auki hafa borist fregnir af mannsláti í borgunum Kirkuk og Mosul í dag. 16.10.2004 00:01
Fimm ára afmæli Krafts Lífið er núna var yfirskrift fimm ára afmælishátíðar Krafts sem haldin var í miðborg Reykjavíkur í dag. Kraftur er stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur þeirra. Félagsmenn hvöttu fólk til að fagna lífinu og minnast þess að átta þúsund Íslendingar sem greinst hafa með krabbamein eru á lífi á Íslandi í dag. 16.10.2004 00:01
Ísraelar yfirgefa Gasa Ísraelsher yfirgaf norðanverða Gazaströnd í nótt eftir 17 daga hernað. Að minnsta kosti 110 Palestínumenn hafa látist, og hundruðir særst í árásunum, sem komu í kjölfar þess að tvö ísraelsk börn létust í eldflaugaárás herskárra Palestínumanna. Bandaríkjastjórn hefur gagnrýnt framgöngu Ísraelsmanna, og sagt hana of harkalega. 16.10.2004 00:01
Geimskutla í vandræðum Rússnesk Soyus geimskutla með þrjá geimfara innanborðs lenti í vandræðum við alþjóðageimstöðina í morgun. Geimfararnir komu til að leysa tvo menn af, sem hafa verið í stöðinni í hálft ár. Þegar skutlan nálgaðist fór hún skyndilega of hratt, án þess að neinn viti hvers vegna. Geimfararnir tóku sjálfstýringuna af og stýrðu skutlunni sjálfir. 16.10.2004 00:01
Boðið upp á skordýr Það er ekki víst að súkkulaðihúðaðir termítar eða hvítlauksristaðir ormar freisti allra, en slíkar kræsingar voru á borðum í Jóhannesarborg á dögunum, og vonast menn til að hinir gómsætu Mopane-ormar verði vinsæl útflutninsvara. Ákveðnar skordýrategundir innihalda nokkuð magn af næringarefnum, og eru alls ekki slæmar á bragðið. 16.10.2004 00:01
Tvær árásir í Afghanistan Þrjú börn og lögreglumaður létust í sprengjuárás í Afghanistan í gær. Þá létu tveir bandarískir hermenn lífið í sambærilegri sprengjuárás í landinu í dag. Árásirnar eru gríðarlegt áfall, þar sem vonast hafði verið til að óöldin í Afghanistan væri loks að lokum komin. 16.10.2004 00:01
Stýrir tækjum með hugarorku Maður á þrítugsaldri, sem er lamaður á báðum fótum og höndum, getur stýrt tölvu og sjónvarpi og spilað tölvuleiki fyrir tilstilli hugarorkunnar. Örsmár tölvukubbur ígræddur í heila mannsins áframsendir boð heila hans og gerir honum þar með kleift að stjórna fyrrgreindum tækjum heima hjá sér. 16.10.2004 00:01
Kjúklingabaunir valda bruna Eldur kom upp í eldhúsi kaffihússins Café Puccini við Vitastíg seinnipart laugardags. Kokkurinn hafði skilið eftir pott með kjúklingabaunum á heitri hellu á meðan hann brá sér frá í Bónus 16.10.2004 00:01
Feðgar týnast á Esjunni Neyðarlínunni barst símtal úr farsíma um fimmleytið í gær frá karlmanni sem var týndur ásamt sex ára syni sínum á Esjunni og báðu þeir um hjálp. 16.10.2004 00:01
Rússarnir farnir Landhelgisgæslan ályktar að rússnesku herskipin sem hafa verið við æfingar við strendur landsins séu farin en flogið var yfir svæðið í gærmorgun þar sem þau höfðu haldið sig og sást ekki lengur til skipanna. 16.10.2004 00:01
Tækjakostur sýndur fólki Í tilefni af 30 ára afmæli gjörgæslunnar við Hringbraut var boðið upp á opna dagskrá á Landspítalanum í gær. 16.10.2004 00:01
Tölur liggja fyrir upp úr 11 Sveitarstjórnarkosningar voru haldnar í nýja sveitarfélaginu á Héraði í dag. Ekki er von á fyrstu tölum fyrr en upp úr klukkan ellefu í kvöld. Kjörsókn í sveitarstjórnarkosningunum í nýja sameinaða sveitarfélaginu á Héraði fór rólega af stað, en tók þó við sér þegar líða tók á daginn. Ríflega 2100 manns eru á kjörskrá og geta þeir valið á milli fjögurra lista. 16.10.2004 00:01
Auðvelt að klúðra uppeldi hunda Ekki eru allir á eitt sáttir að banna eigi innflutning á Doberman og Rottweiler-hundum, en hundar þessarar tegundar ollu ótta í Seljahverfinu fyrir rúmri viku þegar þeir rifu í sig kött og veltu barnavagni með barni í. 16.10.2004 00:01
Mótmælir einkarétti verslana Bónus og Hagkaup hafa haft einkarétt á því í átta ár að versla með matvörur í Spönginni í Grafarvogi. Nóg er komið af einokunarverslun segir fyrrverandi borgarfulltrúi sem stefnir borginni fyrir hönd íbúa og fyrirtækis í grenndinni. 16.10.2004 00:01
Ólæsi er enn mikið á Íslandi Starfshópur á vegum menntamálaráðuneytisins komst að þeirri niðurstöðu fyrir tveimur árum að líklega ættu um fimmtán þúsund Íslendingar á fullorðinsaldri við umtalsverða lestrarörðugleika að stríða. Starfshópurinn lagði til hugmyndir um úrbætur en síðan þá hefur ekkert gerst þó svo að kostnaðurinn við úrlausn vandans sé ekki mikill. 16.10.2004 00:01
Geðheilbrigðisþjónusta í ólestri Sveinn Magnússon framkvæmdastjóri Geðhjálpar segir geðheilbrigðisþjónustu í fangelsum á Íslandi óviðunandi. Hann segir að stofnanir sem heyri undir ólík ráðuneyti verði að vinna saman og sníða lausnir sem henti þörfum fólks en ekki varpa því út á götu ef það á ekki heima á viðkomandi stofnunum. 16.10.2004 00:01
Umber ástandið í bili Íslensk stjórnvöld voru ekki með puttana í kaupum Landssímans á meirihluta bréfa í Skjá einum, segir Geir H. Haarde fjármálaráðherra. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra segist umbera þetta um tíma þar sem Landssíminn verði seldur. 16.10.2004 00:01
Voru komnir óþægilega nálægt Æfingar rússneska flotans voru óþægilega nærri ströndum landsins, að mati íslenskra stjórnvalda. Því var beðið um upplýsingar frá rússneskum stjórnvöldum. Flotinn hefur lokið æfingum sínum og er farinn. Rússnesk stjórnvöld segjast ekki hafa ætlað að ógna öryggi landsins. Skipin hafa undanfarna daga verið á Þistilfjarðargrunni. 16.10.2004 00:01
Sjálfstæðismenn misnota verkfallið Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, sakar Sjálfstæðisflokkinn um að nýta sér kennaraverkfallið til að ýta undir hugmyndir um einkavæðingu skólakerfisins. 16.10.2004 00:01
Össur gagnrýnir aðgerðarleysi Sjálfstæðisflokkurinn er að notfæra sér verkfallið til að ýta undir hugmyndir um einkavæðingu skólakerfisins að sögn Össurar Skarphéðinssonar, formanns Samfylkingarinnar. 16.10.2004 00:01
Var ný sloppinn úr fangelsi Leiðtogi hryðjuverkahópsins sem sprengdi lestarnar í Madríd 11. mars var dæmdur í fjórtán ára fangelsi á Spáni árið 1997 vegna tengsla sinna við alsírskan hryðjuverkahóp en látinn laus úr haldi fyrir tveimur árum þegar dómurinn var styttur. 16.10.2004 00:01
Kirkjur eyðilagðar í Bagdad Kristnir íbúar Íraks eru skelfingu lostnir eftir að sprengjur sprungu við fimm kirkjur í Bagdad í gær. Fjöldi árása hefur verið gerður síðan Ramadan, heilagur mánuður múslíma, hófst á föstudaginn. 16.10.2004 00:01
Kjósendur velji lista Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, sagði í ræðu sinni á flokkstjórnarfundinum í gær að það væri sérstakt hlutverk hreyfingar jafnaðarmanna að bregðast við því sem hann kallaði "lýðræðislega firringu" eða áhuga- og þátttökuleysi almennings í stjórnmálum. 16.10.2004 00:01
Átján fíkniefnamál á tónleikum Átján ungmenn, flest um og undir tvítugu, voru tekin með fíkniefni fyrir utan Laugardalshöllina áður en tónleikar hljómsveitarinnar Prodigy hófust á föstudagskvöldið. 16.10.2004 00:01
Mikilvægast er að skipta máli Eitt það mikilvægasta fyrir geðsjúkt fólk er að skipta máli í lífinu, hafa hlutverk í samfélaginu og finna að hlustað sé á það, segja fjórir geðsjúkir viðmælendur. Allir eru þeir nú þátttakendur í samfélaginu, án innlagna, með stuðningi Hugarafls. 16.10.2004 00:01
Barist um hvert atkvæði Lokaspretturinn er hafinn í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum. Þriðju og síðustu kappræður þeirra George Bush og Johns Kerrys fóru fram í gær og þar var tekist á um innanríkismálin. Fylgi frambjóðendanna er hnífjafnt og því barist um hvert atkvæði. 15.10.2004 00:01
Kristján kjörinn formaður Kristján Gunnarsson var fyrir nokkrum mínútum kjörinn formaður Starfsgreinasambandsins. Fráfarandi formaður sambandsins er svartsýnn við þessi tímamót og óttast að forsendur kjarasamninga séu að bresta. 15.10.2004 00:01
Hundruð bíða eftir meðferð Fleiri hundruð manns bíða eftir meðferð vegna geðsjúkdóma og sumstaðar eru læknar hættir að taka fólk á biðlista, segir Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir Samfylkingunni. Heilbrigðisráðherra vísar því á bug að stór hópur þessa fólks sé á götunni. 15.10.2004 00:01
Tóbaksuppljóstrarinn á Íslandi Maðurinn sem vann sér frægð fyrir að ljóstra upp um tóbaksframleiðendur er staddur hér á landi til að halda fyrirlestur um skaðsemi reykinga. 15.10.2004 00:01
Hlutabréfin í 507 krónur Hlutabréf í KB banka hækkuðu upp í 507 krónur á markaði í gær eftir hlutafjárútboðið í fyrradag og hafa aldrei verið jafn hátt skráð. Lokagengi var 500 krónur og nam hækkun dagsins 1,1%. Gegngi í útboðinu var 480 krónur á hlut þannig að þeir sem keyptu þá fyrir væna fúlgu, hafa ávaxtað pund sitt vel á einum sólarhring. Seldir voru hlutir í bankanum fyrir rúma fimmtíu milljarða króna sem bankinn ætlar að nýta til frekari útrásar til Finnalnds og Bretlands. 15.10.2004 00:01
Enn jafnir Fylgi bandarísku forsetaframbjóðendanna er hnífjafnt samkvæmt nýjustu könnunum. Þeir George Bush og John Kerry háðu þriðju og síðustu kappræður í fyrradag og var þar hart tekist á um innanríkis- og velferðarmál. 15.10.2004 00:01
Harðar árásir í Fallujah Bandaríkjamenn hafa haldið úti hörðum loftárásum og á borgina Fallujah í morgun. Árásirnar vour gerðar í kjölfar sprenginga í Bagdad í gær. Írösk stjórnvöld krefjast þess að fá jórdanska uppreisnarmanninn Abu Mussab al-Zarqawi framseldan. Átta manns féllu og minnst fjórir særðust þegar tvær öflugar sprengingar urðu í miðborg Bagdad í Írak í gærmorgun. 15.10.2004 00:01
Átök framundan Kristján Gunnarsson, formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur, sem var kjörinn formaður Starfsgreinasambandsins til næstu tveggja ára á ársfundi sambandsins í gær, segir að framundan séu átök um tilverurétt verkalýðshreyfingarinnar. 15.10.2004 00:01
Skjálfti upp á 7 í Taiwan Jarðskjálfti upp á sjö á richter skók Norður-Tævan í morgun og skulfu þar hús og mannvirki í hátt í mínútu. Háhýsi sveifluðust til og reyndi fólk að forða sér, enda eru ekki nema tæp fimm ár síaðn að þúsundir fórust í hörðum jarðskjálfta á Tævan. Upptök skjálftans voru undir hafsbotni, í um það bil 110 kílómetra fjarlægð frá eyjunni. 15.10.2004 00:01
Norðmenn vilja enn konung Norðmenn láta sér í léttu rúmi liggja í hvaða rekkju Ólafur Noregskonungur var getinn og hver var faðir hans, samkvæmt skoðanakönnun í kjölfar fréttar þess efnis í gær, að konungurinn hafi verið rangfeðraður. Ólafur var dáður og virtur alla sína konungstíð. 15.10.2004 00:01
Lögreglustöðin endurvígð Lögreglustöðin á Akureyri verður endurvígð í dag eftir gagngerar breytingar á húsnæðinu. Þar verður jafnframt opnuð einskonar varabjörgunarmiðstöð fyrir björgunarmiðstöðina í Skógarhlíð, ef allt færi þar úrskeiðis á hamfaratímum. Þar er hægt að svara neyðarlínunni og þar er varafjarskiptamiðstöð fyrir ríkislögreglustjóra. 15.10.2004 00:01
Varar við afskiptum Arthur Bogason formaður Landssambands smábátaeigenda varaði í ræðu sinni á ársfundi Landssambands smábátaeigenda, við afskiptum sjálfskipaðra afla, sem berjast gegn fiskveiðum með örökstuddum fullyrðingum. Vitnaði hann þar til þess að alþjóðlegt bann vð við trollveiðum væri nú komið til umfjöllunar hjá Sameinuðuþjóðunum 15.10.2004 00:01
Sýknaður af ákæru um landráð Morgan Tsvangiræ leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Zimbabwe var í morgun sýknaður af ákæru um landráð. Hann var fyrir rétti sakaður um að brugga Robert Mugabe forseta launráð og taka völdin í landinu fyrir kosningarnar árið 2002. 15.10.2004 00:01
Andreotti sýknaður Guilíó Andreotti fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu hefur verið formlega hreinsaður af öllum ásökunum um tengsl við mafíuna. Andreotti sem sjö sinnum var forsætisráðherra Ítalíu hefur í mörg árið barist gegn ásökunum um spillingu fyrir dómstólum en í morgun staðfesti æðsti dómstóll landsins tvo sýknudóma undirréttar og er málinu því endanlega lokið. 15.10.2004 00:01