Fleiri fréttir

Varar við sjálfskipuðum öflum

Arthur Bogason formaður Landssambands smábátaeigenda varar við afskiptum sjálfskipaðra afla, sem berjast gegn fiskveiðum með órökstuddum fullyrðingum.

Bólusetning við malaríusmiti

Vísindamenn telja sig í fyrsta sinn geta bjargað börnum frá malaríusmiti eða dauða með bólusetningu. Þótt enn sé langt í að menn telji baráttunni gegn þessum skæða sjúkdómi lokið, segja sérfræðingar Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar skrefið stórt.

Íslenskt félag með 3200 starfsmenn

Verið er stofna íslenskt eignarhaldsfélag, sem hefur yfir 60 flugvélar á sínum snærum í öllum heimsálfum og 3200 starfsmenn. Félagið heitir Avion group og er stofnað um Rekstur Atlanta í Bretlandi, breska félagið EXEL airways, Íslandsflug og Atlanta á Íslandi. Félagið tekur formlega til starfa um áramótin og verður Magnús Þorsteinsson stjórnarformaður þess.

Nóg komið af bullinu

Stjórn Foreldrafélagsins í Grandaskóla hvetur foreldra til að senda borgarfulltrúum Reykjavíkur bréf í dag þar sem þeim er sagt að axla ábyrgð sína í verkfallinu. Stjórnarmaður félagsins segir að borgarfulltrúum beri skylda til að bregðast við óskum foreldra og hann segir nóg komið af þessu bulli.

Shröder hittir Gaddafi

Gerhard Schröder, kanslari Þýskalands fundar nú með Gaddafi lýbíuleiðtoga í Tripoli. Fundurinn er sögulegur, því að þetta er í fyrsta sinn sem kanslari Þýskalands hittir leiðtoga Lýbíu. Fundurinn er líka táknrænn fyrir batnandi samskipti Evrópuríkja og Lýbíu, en eins og fram hefur komið aflétti Evrópusambandið í síðustu viku viðskiptahömlum á Lýbíu

Deilt um fordæmi fyrir sektum

Olíufélögin höfnuðu tilboði Samkeppnisstofnunar í janúar um að greiða sektir á bilinu 300 til 480 milljónir því þau töldu víst að dómstólar lækki sektina umtalsvert. Það sé í samræmi við fordæmi í dómum á Norðurlöndunum. Samkeppnisráð lítur hins vegar til EES-reglna um sektir.

Aukin samvinna Rússa og Kínverja

Gömlu Sósíalistastórveldin Rússland og Kína ætla að bindast tryggari böndum á nýjan leik. Vladimir Pútín, forseti Rússlands heimsækir Kína þessa dagana og leggur á ráðin með starfsbróður sínum í austri, Hu Jintao, um það hvernig auka megi samskipti og viðskipti á milli stórveldanna tveggja.

Skatttekjur aukast um tíund

Skatttekjur ríkisins fyrstu átta mánuði ársins voru 170 milljarðar sem er um tólf prósentum meira en á sama tímabili í fyrra. Innheimtir skattar á tekjur og hagnað einstaklinga og lögaðila námu 53,4 milljörðum króna og hækkuðu um 10,4% frá sama tíma í fyrra, að því er fram kemur í Vefriti fjármálaráðuneytisins.

Gjöld til félagsmála hækka

Gjöld ríkissjóðs vegna félagsmála hækkuðu um 11,5 milljarða á milli ára og mest allra málaflokka, en um tveir þriðju hlutar allra útgjalda ríkisins fara til félagsmála.

Samskráning heimiluð

Geir H. Haarde fjármálaráðherra lagði fram frumvarp á Alþingi í gær um breytingu á lögum um virðisaukaskatt sem heimilar skattstjóra að samskrá tvö eða fleiri skráningarskyld hlutafélög og einkahlutafélög á virðisaukaskattsskrá.

Bullandi verðstríð í bensíni

Verðstríð er skollið á á eldsneytismarkaðnum. Í gær og fyrradag breyttist enn verð hjá olíufélögunum, sem lækkuðu fullt þjónustuverð um 2 krónur á lítrann, auk annarra verðbreytinga til lækkunar.

Deilan mjög snúin

"Kennarar tóku ákvörðun um að fara í verkfallið, það ákváðu ekki sveitarfélögin, og kennarar ákveða hvenær því lýkur," segir Birgir Björn Sigurjónsson, formaður Launanefndar sveitarfélaganna.

Bannað að skilja útundan

Kjarnaríki Evrópusambandsins mega ekki skilja ný aðildarríki útundan að neinu leyti segja Tony Blair og Ferenc Gyurcsany, leiðtogi Ungverja. Talið er að í yfirlýsingu leiðtoganna tveggja felist skilaboð til Frakka og Þjóðverja, sem ásamt Ítalíu hafa verið í fararbroddi sambandsins frá stofnun þess.

Cheney ævareiður

Dick Cheney, varaforseti Bandaríkjanna og konan hans eru ævareið út í John Kerry, forsetaframbjóðanda Demókrata, fyrir að hafa gert samkynhneigð dóttur þeirra að umræðuefni í síðustu kappræðum forsetaframbjóðendanna í Arizona á miðvikudaginn. Kerry tók dóttur Cheneys sem dæmi þegar hann var spurður út í afstöðu sína til samkynhneigðra.

Google með nýjan leitarbúnað

Fyrirtækið Google hefur komið á fót nýjum leitarbúnaði, sem gefur notendum kost á því að leita að efni á harða drifi tölvunnar jafnauðveldlega og leitað er á Netinu. Nýi búnaðurinn leitar í skjölum, skrám, tölvupósti og skyndiskilaboðum sem vistuð er á harða drifinu.

Samtímis þjóðaratkvæðagreiðsla

Evrópuþingið hefur lagt til að öll 25 ríki Evrópusambandsins haldi samtímis þjóðaratkvæðagreiðslu um stjórnarskrá sambandsins í byrjun maí á næsta ári. Þó er gert ráð fyrir því að Spánn þjófstarti og haldi þjóðaratkvæðagreiðsluna þann 20. febrúar næstkomandi.

Ósammála um inngöngu Tyrkja

Forseti Frakklands og forsætisráðherra landsins eru ósammála um ágæti þess að Tyrkir gangi í Evrópusambandið. Innganga Tyrkja í Evrópusambandið var til umræðu á franska þinginu í gær að frumkvæði Jaques Chirac, forseta Frakklands, sem styður inngöngu Tyrkja heilshugar. Umræðurnar voru gríðarlega heitar og hefur annað eins ekki sést á þinginu franska í háa herrans tíð.

Vill aðhald í ríkisfjármálum

Starfsgreinasambandið óttast að ríkisvaldið ætli ekki að axla þá ábyrgð í ríkisfjármálum, sem sé nauðsynleg á næstunni vegna aukinnar verðbólgu. Sambandið segir að ríkisvaldið verði að beita skynsamri og ábyrgri hagstjórn á næstu misserum, þannig að koma megi í veg fyrir að Seðlabankinn hækki vexti um of og þrengi þar með að heimilunum og fyrirtækjunum í landinu.

Vildi frægð og frama

Morðingi bítilsins Johns Lennon segist hafa ráðið honum bana til þess að stela frægð hans. Mark Chapman segist hafa orðið merkilegri meðaljón eftir morðið heldur en fyrir það og það hafi verið hans eina hvatning fyrir aðgerðinni.

Eiga að hætta eggjainnflutningi

Bretar eiga að hætta að flytja inn egg frá Spáni að mati eggjaframleiðenda og heilbrigðisyfirvalda í landinu. Á síðastliðnum 2 árum hafa komið upp 6 þúsund salmonellutilvik í Bretlandi og er stór hluti þeirra rakinn beint til átu á spænskum eggjum.

Boða byltingu í meðferð geðsjúkra

Hópur geðsjúkra í Hugarafli boðar byltingu í meðferð geðsjúkra, eftir að hafa unnið verkefni á geðdeildum Landspítala. Sviðsstjóri á geðsviði leggur til að gengið verði í lagfæringar á atriðum sem bent er á í niðurstöðum verkefnisins. </font /></b />

Actavis mótmælir ásökunum

Actavis hefur vísað á bug fullyrðingum Starfsgreinasambands Íslands þess efnis að félagið kúgi starfsmenn sína í Búlgaríu og brjóti á þeim. Í tilkynningu frá Actavis segir að á síðasta ári hafi fyrirtækið þurft að segja upp starfsmönnum í Búlgaríu, en ekki hafi verið hafðar uppi neinar hótanir, eins og formaður Starfsgreinasambandsins lýsti yfir í fréttum Stöðvar 2 í gær.

Sóbakssamningurinn fyrir Félagsdóm

Framkvæmdastjórn Sjómannasambands Íslands ákvað í dag að fara með Sólbakssamninginn svokallaða fyrir Félagsdóm til að freista þess að fá ákvæði hans sem brjóta í bága við gildandi kjarasamning milli SSÍ og LÍÚ dæmd ógild.

Bara hluti framkvæmda stöðvaður

Byggingarfulltrúinn í Reykjavík gerði í dag framkvæmdaraðilum nýs hótels sem rísa á í gamla Eimskipahúsinu skylt að stöðva framkvæmdir við endurnýjun innveggja í húsinu. Að öðru leyti hafnaði Byggingarfulltrúinn kröfum nágranna hússins um stöðvun framkvæmda. töluvert er síðan byrjað var að bóka inn á hótelið og er gert ráð fyrir að það opni í mars á næsta ári.

Pólverjar fara brátt heim

Pólverjar ætla að fækka í herliði sínu í Írak frá og með byrjun næsta árs, að sögn Marek Belka, forsætisráðherra Póllands. Belka segir Pólverja ekki ætla að vera klukkutímanum lengur en nauðsynlega þurfi í Írak, enda sína nýlegar kannanir að 70% landsmanna séu á móti veru herliðsins pólska í Írak.

Guðjón nýr framkvæmdastjóri

Guðjón Guðmundsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sparisjóða og tekur hann við framkvæmdastjórastarfinu af Sigurði Hafstein 1. nóvember Þetta kom fram á aðalfundi Sambands íslenskra sparisjóða í dag, föstudaginn 15. október.

Of lágar greiðslur til Torfastaða

Félagsmálaráðuneytið telur hvorki raunhæft né ráðlegt að mæla með því að Barnaverndarstofa og meðferðarheimilið á Torfastöðum geri nýjan samning um áframhaldandi rekstur. Þetta kemur fram í skýrslu Ríkisendurskoðunar fyrir Félagsmálaráðuneytið sem birt var í gær.

Brot olíufélaganna sögð fyrnd

Olíufélögin halda því fram að meint brot á samkeppnislögum á rúmlega sjö ára tímabili af níu sem Samkeppnisstofnun rannsakar séu fyrnd. Dómur hæstaréttar í grænmetismálinu svokallaða er sagður styðja staðhæfingu olíufélaganna. </font /></b />

Ánægja með sýknuna

Sýknudómur yfir Morgan Tsvangirai leiðtoga stjórnarandstöðunnar í Zimbabwe hefur endurnýjað trú manna á lýðræðið þar í landi. Robert Mugabe hefur farið með völd í landinu síðasta aldarfjórðung og voru réttarhöldin yfir helsta andstæðingi hans talin enn eitt dæmið um einræðistilburði hans.

Átök skyggja á föstumánuð

Föstumánuður múslima hófst í dag en skugga ber á vegna átaka. Þetta er mikill helgimánuður, tími pílagrímaferða, bæna og hugleiðinga og múslimar fá sér hvorki vott né þurrt frá sólarupprás til sólarlags. Í Írak halda átök hins vegar áfram, meðal annars í Fallujah þar sem bandarískar herþotur gerðu loftárásir í nótt.

Eldurinn í Mexikó gýs

Eldfjallið Eldur í Mexikó ber nafn með rentu, í það minnsta þessa dagana. Það hefur gosið reglulega frá því í lok september og eru gosin afar tilkomumikil. Vægir skjálftar hafa fylgt eldsumbrotunum en sérfræðingar telja byggð í nágrenni eldfjallsins í lítilli sem engri hættu.

Skilur ekki ráðningu þessa manns

Stúlkan sem sakaði föður sinn um kynferðisofbeldi í prófessorsmálinu svokallaða hvetur fórnarlömb í slíkum málum til að kæra þau ekki á meðan Jón Steinar Gunnlaugsson situr í Hæstarétti.

Setur Nader strik í reikninginn

Neytendafrömuðurinn og sjálfstæði forsetaframbjóðandinn Ralph Nader gæti eyðilagt vonir Johns Kerry um að komast í Hvíta húsið. Ef kosningaúrslit verða í átt við niðurstöður skoðanakannana má búast við spennandi kosninganótt og þá skiptir allt máli.

Sagðist vera systir sín

Tæplega þrítug kona var dæmd, í Héraðsdómi Reykjavíkur, í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að aka ölvuð og þykjast vera systir sín þegar lögreglan stöðvaði hana.

Hélt hnífi að hálsi konu

Rétt rúmlega tvítugur maður hefur verið ákærður af Ríkissaksóknara fyrir vopnað rán, ásamt óþekktum samverkamanni, í myndbandaleigu í mars 2002. Málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.

Ákærðir fyrir hasssmygl

22 ára maður er ákærður af Ríkissaksóknara fyrir innflutning á samtals fimmtán kílóum af hassi í þremur skipaferðum frá Danmörku frá júní í fyrra þar til í janúar á þessu ári. Þrír menn eru ákærðir fyrir að hafa staðið að innflutningnum að hluta með manninum. Málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.

Geðsjúkum fanga vísað á brott

Geðsjúkum kvenfanga var vísað frá geðdeild Landspítala eftir klukkustundardvöl þar, þrátt fyrir tvær alvarlegar sjálfsvígstilraunir. Landlæknir rannsakar málið. Sex til átta fangar í íslenskum fangelsum eru í raun ófærir um að afplána refsingu sína þar inni.

Bræður sjá um sig sjálfir

Jónas Þórir Þórisson, framkvæmdastjóri Hjálparstarfs kirkjunnar, er nýkominn frá Úganda þar sem hann fylgdist með og mat árangur hjálparstarfsins. Hann hitti bræðurna Muwango, sextán ára, og Peter, fjórtán ára, sem fengið hafa hjálp til sjálfshjálpar.

Haldið sofandi

Maður slasaðist alvarlega eftir að hafa ekið út af með þeim afleiðingum að bíll hans valt á Biskupstungnavegi í Þrastarskógi, rétt ofan við Þrastarlund, um hálf sjöleytið í gærmorgun.

Nýr flugrisi tekur til starfa

Nýr risi á alþjóðlegum flugmarkaði, Avion Group, tekur til starfa hér á landi um áramótin. Félagið mun eiga 63 breiðþotur. Áætluð heildarvelta er 72 milljarðar króna, sem er tvöfalt meira en velta Flugleiða, og er stefnt að skráningu félagsins í Kauphöll Íslands.

Jafnræðis ekki gætt

Fulltrúi launanefndar sveitarfélaga í undanþágunefnd vegna verkfalls grunnskólakennara, sakar fulltrúa kennara í nefndinni um að gæta ekki jafnræðis við afgreiðslu á undanþágum vegna fatlaðra barna. Digranesskóla var veitt undanþága í dag vegna sérdeildar fyrir einhverfa.

Barðist við samvisku sína og vann

"Ég reykti í átján mánuði. Ég er rétt rúmlega sextíu og tveggja ára og byrjaði að reykja þegar ég vann í tóbaksiðnaðinum," segir Jeffrey Wigand, prófessor og lífefnafræðingur. Hann berst nú geng fyrrum vinnuveitendum sínum og vill banna reykingar á veitingastöðum.

Skilur ekki doðann í fólki

Þjóðfélagið hefði farið á annan endann eftir nokkurra daga mjólkurskort segir Andri Snær Magnason, faðir grunnskóladrengs í Reykjavík. Hann skilur ekki hvers vegna fjögurra vikna verkfall grunnskólakennara veldur ekki meira uppnámi en raun ber vitni. Að hans mati hafa grunnskólabörn nú liðið andlegan næringarskort í mánuð.

26. dagur verkfalls

Ákveðið hefur verið að kennarar í sérdeild Digranesskóla fái full laun svo vandi fjölskyldna fatlaðra barna við skólann leysist.

Fá 14 milljónir í bætur

Félagsmálaráðherra ætlar að beita sér fyrir því að hjónin á Torfastöðum fái allt að því fjórtán milljónir króna í bætur þar sem meðferðarheimili þeirra hafi augljóslega fengið minna greitt frá ríkinu en önnur sambærileg heimili. Hann segir skarð fyrir skildi að samningi heimilisins við Barnaverndarstofu hafi verið sagt upp.

Sjá næstu 50 fréttir