Innlent

Átök framundan

Kristján Gunnarsson, formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur, sem var kjörinn formaður Starfsgreinasambandsins til næstu tveggja ára á ársfundi sambandsins í gær, segir að framundan séu átök um tilverurétt verkalýðshreyfingarinnar. Signý Jóhannesdóttir formaður Verkalýðsfélagsins Vöku á Siglufirði, sem líka bauð sig fram til formanns, laut í lægra haldi í formannskjörinu. Hún bauð sig líka fram til varformanns, en Björn Snæbjörnsson formaður Einingar- Iðju á Akureyri var kjörinn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×