Umber ástandið í bili 16. október 2004 00:01
Íslensk stjórnvöld voru ekki með puttana í kaupum Landssímans á meirihluta bréfa í Skjá einum, segir Geir H. Haarde fjármálaráðherra. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra segist umbera þetta um tíma þar sem Landssíminn verði seldur. Hún segir þó öllum ljóst að ríkisstjórnin sé ekki fylgjandi mörgum fyrirtækjum í ríkiseigu þegar komi að fjölmiðlum. Þorgerður segir unnið að sölu Landssímans og hún treysti stjórnendum Landsímans til að þetta auki verðmæti fyrirtækisins þegar fram í sækir. Hún það innantómt hjal að Sjálfstæðisflokkurinn sé að misnota aðstöðu sína eins og formaður Samfylkingar og fleiri hafi látið í veðri vaka. Slíkt tal sé helbert kjaftæði, sem sé ekki merkilegt í sínum huga. Hún segir ríkisstjórnina ekki hafa verið með puttana í kaupunum og hún hafi ekki vitað að kaupin stæðu til. Hún segist telja ástandið í lagi um tíma, en ekki til lengri tíma litið. Geir H. Harde fjármálaráðherra segir að stjórnendur Landsímans þurfi ekki að leita leyfis stjórnvalda til að fjárfesta. Hann segist þó ætla að kynna sér málið frekar enda verði það rætt utan dagskrár í þinginu í næstu viku. Hann segir kenningar þær sem Össur Skarphéðinsson hafi sett fram séu fráleitar og lýsi því fyrst og fremst hvernig staðið yrði að málum ef flokkur hans væri við völd. Geir segir ekki verið að ríkisvæða einkafyrirtæki, enda starfi Síminn á frjálsum markaði, þó að ekki sé enn búið að selja hann.
Fréttir Innlent Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Erlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Innlent Fleiri fréttir Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ Sjá meira