Fleiri fréttir

Flugslys í Reykjavík

Á morgun hefst á Reykjavíkurflugvelli flugslysaæfing sem stendur fram á sunnudaginn 26. september. Æfð verða viðbrögð við því þegar flugvél með 90 manns innanborðs hlekkist á við austurenda flugvallarins. Slysið verður sviðsett á laugardaginn.

Áhöfn ósátt við ummæli

Áhöfn Sólbaks EA-7 segir í yfirlýsingu að með orðum sínum geri forystumenn samtaka sjómanna, skipstjórnenda og vélstjóra, lítið úr áhöfn Sólbaks.

Geir ávarpar allsherjarþingið

Geir H. Haarde fjármálaráðherra kemur nú í stað Davíðs Oddssonar utanríkisráðherra við almenna umræðu 59. allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna í New York.

Samstarf við írsk flugmálayfirvöld

Ritað hefur verið undir nýtt samkomulag um undirbúning samstarfs flugmálastjórna Írlands og Íslands um fjarskiptaþjónustu á Norður-Atlantshafi. Nýtt hlutafélag hefur verið stofnað til að taka við öllum rekstri flugfjarskiptamiðstöðvarinnar í Gufunesi.

Stál í stál

Mikið ber í milli í deilu grunnskólakennara og launanefndar sveitarfélaganna og sáttafundur hefur ekki verið boðaður fyrr en á fimmtudag. Kennarar lögðu fram sáttatillögu sem þeir töldu hafa 16 prósenta kostnaðarhækkun í för með sér fyrir sveitarfélögin. Launanefnd sveitarfélaga taldi hækkunina nær 24 prósentum.

40 miljónir sparast á dag

Sveitarfélögin spara um fjörutíu milljónir króna í launagreiðslur á dag vegna verkfalls rúmlega fjögur þúsund kennara. Launakostnaður sveitarfélaganna vegna grunnskólakennara og skólastjóra á þessu ári var áætlaður 16,2 milljarðar króna, en ljóst er að hann lækkar eftir því sem verkfallið dregst á langinn.

Illskiljanleg kjaradeila

Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri segir að upp sé komin mjög erfið staða í viðræðum kennara og sveitarfélaga. ,,Það ber mikið á milli aðila og ég tel að það sé ógjörningur fyrir sveitarfélögin að verða við kröfum kennara. Það bætir ekki úr skák að umræðan um kröfugerðina er illskiljanleg venjulegu fólki."

BUGL sækir um undanþágu

Um tíu undanþágubeiðnir vegna yfirstandandi kennaraverkfalls höfðu borist svokallaðri undanþágunefnd í gær, að sögn Þórörnu Jónasdóttur fulltrúa Félags grunnskólakennara og Skólastjórafélags Íslands í nefndinni. Sótt hefur verið um undanþágu vegna þeirra nemenda sem dvelja á Barna- og unglingageðdeildinni á Dalbraut og fá kennslu frá Brúarskóla.

Tugir fatlaðra barna án vistunar

Um 75 fötluð börn, sem stunda nám í Öskjuhlíðarskóla eru á köldum klaka í yfirstandandi kennaraverkfalli. Þau fá enga skóladagvist og geta ekki farið í sameiginlega gæslu. Verkfallið veldur miklu róti í lífi fötluðu nemendanna. </font /></b />

Aukin óvissa frístundaheimila

Færri börn skiluðu sér inn á frístundaheimili borgarinnar á fyrsta degi verkfalls kennara. Soffía Pálsdóttir, fræðslustjóri Íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkur, segir það valda ugg þar sem frístundaheimilin leiti starfsfólks til að bjóða þeim 100 börnum sem eru á biðlista pláss.

Verðir í Valsheimilinu

Verkfallsverðir kennara fóru í alla skóla á höfuðborgarsvæðinu í gær til að kanna hvort þar væri unnið í trássi við verkfall grunnskólakennara. Þá heimsóttu þeir einnig tuttugu fyrirtæki og stofnanir í Reykjavík, þar á meðal leikjanámskeið KB banka í Valsheimilinu.

60 mínútur draga frétt til baka

Sjónvarpsstöðin CBS hefur dregið til baka umdeilda frétt sem birt var í fréttaskýringaþættinum 60 mínútur. Þar var fjallað um herþjónustu George Bush Bandaríkjaforseta og sagt að hann hefði komið sér undan herþjónustu í Víetnam og að faðir hans hafi tryggt honum sérmeðferð.

Þónokkur dæmi um verkfallsbrot

Trúnaðarmenn grunnskólakennara hafa bent Landsstjórn um verkfallsaðgerðir á þónokkur dæmi um hugsanleg verkfallsbrot í kennaraverkfallinu en verkfallsstjórn metur skipulagt skólastarf á vegum fyrirtækja og stofnana sem brot.

Rúmlega 500 látnir á Haítí

Fleiri en fimm hundruð hafa týnt lífi á Haítí í kjölfar þess að fellibylurinn Jeanne reið þar yfir og olli miklum flóðum. Óttast er að þessi tala muni hækka. Þriðjungur þeirra sem færðir hafa verið látnir á sjúkrahús í einum hluta landsins eru börn.

Aurskriða við Ólafsfjarðarmúla

Aurskriða féll á veginn um Ólafsfjarðarmúla í ausandi vatnsveðri sem geisaði þar um slóðir í nótt og er vegurinn lokaður. Enginn varð fyrir skriðunum og er búist við að vegagerðarmenn ljúki við að hreinsa veginn innan stundar.

Bandarískur gísl afhöfðaður

Bandarískur gísl írakskra mannræningja var drepinn í nótt. Mannræningjarnir skáru af honum höfuðið og birtu myndband af því á síðu íslamskra öfgamanna. Þeir hótuðu jafnframt að gera slíkt hið sama við tvo aðra gísla sína, yrði ekki orðið við kröfum þeirra innan sólarhrings.

Sprengdu núgildandi samninga

Áhöfnin á togaranum Sólbaki EA og útgerðarfélagið Brim hafa sprengt núgildandi samninga sjómanna og útvegsmanna með því að stofna einkahlutafélag um útgerð skipsins. Þetta er gert í trássi við vilja samtaka sjómanna en með samþykki Landssambands íslenskra útvegsmanna og Samtaka atvinnulífsins.

Mijailovic ekki lengur sænskur

Mijailo Mijailovic, morðingi Önnu Lindh, utanríkisráðherra Svíþjóðar, er ekki lengur sænskur ríkisborgari. Mijailovic er af serbnesku bergi brotinn og hefur hingað til verið með tvöfaldan ríkisborgararétt.

Rafmagnslaust í Skeifuhverfi

Rafmagnslaust varð í Skeifuhverfi og víðar á tíunda tímanum þegar grafið var í háspennustreng í Skeifunni. Unnið er að því að koma rafmagni á með öðrum leiðum og vonast er til að allir verði búnir að fá rafmagn innan tíðar.

Fékk ekki að leggjast að bryggju

Stórt skemmtiferðaskip, fullt af farþegum, fékk ekki að leggjast strax að bryggju í Reykjavík í gærdag þar sem viðeigandi skjöl varðandi svonefnda hafnarvernd gegn hryðjuverkum höfðu ekki borist Landhelgisgæslunni í tæka tíð fyrir komu skipsins.

Kaupa sprengjur fyrir 10 milljarða

Bandaríkjastjórn hefur lagt blessun sína yfir risa vopnasölu til Ísraels. Alls ætlar Ísraelsstjórn að kaupa bandarískar sprengjur fyrir tæplega tíu milljarða íslenskra króna. Á meðal vopnanna eru um 500 sprengjur sem geta borað sér ofan í jörðina og sprengt upp neðanjarðarbyrgi.

Hálfu tonni af humri stolið

Fimm hundruð kílóum af humri var stolið úr frystigeymslu í sjöstjörnuhúsunum við Hafnarbakka í Njarðvík um helgina og er áætlað verðmæti þýfisins um ein milljón króna. Eigandinn varð þjófnaðarins var í gærmorgun og er ekkert vitað hvenær um helgina innbrotið hefur verið framið.

Undanþágubeiðnir vegna verkfalls

Um tíu undanþágubeiðnir hafa borist vegna verkfalls grunnskólakennara, bæði frá einstaklingum og skólum. Svo virðist sem bið verði á svörum þar sem ekki hefur tekist að koma saman svokallaðri undanþágunefnd.

Saddam vill búa í Svíþjóð

Saddam Hússein, fyrrverandi einræðisherra í Írak, sækir nú fast að fá að búa í Svíþjóð, Austurríki eða Sviss. Hann krefst þess að hann verði náðaður og fái að búa í útlegð í einhverju af þessum þremur löndum.

Réttarhöld hefjast 18. október

Réttarhöld í líkfundarmálinu hefjast 18. október í Héraðsdómi Reykjavíkur. Dómurinn hafnaði í dag kröfu verjenda um að ákæruvaldið aflaði sjúkraskýrslna frá Litháen um hinn látna, Vaidas Jusevicius.

Biðla til Blairs vegna gísls

Írakskir öfgamenn tóku bandarískan gísl af lífi í nótt og hóta að myrða tvo til viðbótar verði ekki orðið við kröfum þeirra. Ættingjar Kenneth Bigley, bresks gísls sem er í haldi mannanna, hafa þrábeðið Tony Blair, forsætisráðherra Breta, um að gera allt sem hann getur til að bjarga lífi Bigleys.

Aðför að stéttarfélögum landsins

Formaður Sjómannasambandsins segir að samningur áhafnarinnar á togaranum Sólbaki EA og útgerðarfélagsins Brims, um stofnun einkahlutafélags um rekstur skipsins til að sniðganga kjarasamninga, sé aðför að stéttarfélögum í landinu. 

Þriðji hver 30 ára Dani glæpamaður

Þriðji hver Dani um þrítugt er glæpamaður. Ný könnun sem danska dómsmálaráðuneytið hefur látið gera um Dani sem fæddir eru árið 1970 leiðir í ljós að um þrjátíu prósent þeirra hafa komist í kast við lögin. Og þá eru umferðarlagabrot þar sem sektin er undir tíu þúsund krónum og hjólreiðatúrar á ljóslausu hjóli ekki talin með.

Grípur ekki til aðgerða

Verkfallanefnd grunnskólakennara hefur ákveðið að grípa ekki til aðgerða að sinni vegna meintra verkfallsbrota þar sem önnur verkefni þyki brýnni.

Maðurinn sem ruggar bátnum

Guðmundur forstjóri Kristjánsson er umdeildur maður líkt og aðrir sem láta að sér kveða. Þrátt fyrir að hafa verið kallaður Guðmundur vinalausi á Vestfjörðum er hann vinalegur í viðkynningu. </font /></b />

Skriður féllu úr fjallshlíðum

Skriður féllu úr fjallshlíðum sumstaðar á Norðurlandi í nótt í úrhellisrigningu sem víða er enn. Miklar skemmdir hafa orðið á veginum í Ólafsfjarðarmúla og er óvíst hvenær hægt verður að opna hann fyrir umferð á ný.

Hjólbörufylli af jafnréttismálum

Femínistafélag Íslands afhenti Halldóri Ásgrímssyni forsætisráðherra hjólbörufylli af lesefni um jafnréttismál í dag sem félagið telur mikilvægt að hann kunni góð skil á, tileinki sér og miðli til þjóðarinnar.

Tala látinna nálgast 700

Tala látinna í flóðum og aurskriðum á Haítí í kjölfar fellibylsins Jeanne er komin yfir 660 og er búist við að fleiri lík eigi eftir að finnast. Það er aðallega norðurhluti landsins sem varð illa úti og í strandbænum Gonaives sem liggur að mestu undir vatni hafa fundist fimm hundruð lík.

Tillaga um mislæg gatnamót

Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Frjálslynda flokksins flytja sameiginlega tillögu um mislæg gatnamót Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar á fundi borgarstjórnar sem nú er nýhafinn. Í síðustu viku fluttu fulltrúar Sjálfstæðisflokksins tillögu í samgöngunefnd um hönnun mislægra gatnamóta og var sú tillaga felld af R-listanum.

Hafa tilnefnt fulltrúa í nefndina

Samband sveitarfélaga hefur tilnefnt fulltrúa í sérstaka nefnd sem tekur til umfjöllunar beiðnir um undanþágu til kennslu í verkfalli grunnskólakennara. Um tugur beiðna hefur borist nefndinni.

Framsóknarkonur í hringferð

Framsóknarkonur munu leggja af stað í hringferð um landið með yfirskriftinni „Konur til áhrifa!“ frá Stjórnarráðinu á fimmtudaginn. Þar verður ferðaáætlunin kynnt og táknrænn gjörningur fer fram að því er segir í fréttatilkynningu frá Landssambandi framsóknarkvenna.

Verða að vera bólusettir

Embætti yfirdýralæknis segir að þrátt fyrir margra mánaða baráttu hafi ekkert gengið að hrekja kröfur Evrópusambandsins um að Ísland skuli bólusetja alla hunda og ketti gegn hundaæði sem flutt eru til aðildarríkjanna. Reglurnar taka gildi 1. október.

76 prósent vilja mislæg gatnamót

Um 76 prósent landsmanna telur brýnna að ráðast í gerð mislægra gatnamóta við Miklubraut og Kringlumýrarbraut en byggingu Sundabrautar. Þetta kemur fram í nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins.

Hani gerðist laumufarþegi

Myndarlegur hani tók sig upp og fékk sér far sem laumufarþegi með rútu frá Teiti Jónassyni úr Skorradal í Borgarfirði til Reykjavíkur. Enn er það hulinn leyndardómur hvernig hann  komst í bæinn.

Líst illa á stór mislæg gatnamót

Það liggur fyrir að farið verður í endurbætur á gatnamótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar að sögn Alfreðs Þorsteinssonar, borgarfulltrúa R-listans og formanns borgaráðs. Hann segir það stefnu R-listans að fjölga akreinum og beygjuljósum. Mislæg gatnamóta verði hins vegar að bíða.

R-listinn ábyrgur fyrir slysum

Það ætti löngu að vera búið að gera mislæg gatnamót við Miklubraut og Kringlumýrarbraut að sögn Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar, oddvita Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn.

Vilja 20 þúsund milljarða bætur

Mál bandaríska ríkisins gegn stærstu tóbaksfyrirtækjum Bandaríkjanna hefst fyrir rétti í dag. Tóbaksfyrirtækin er sökuð um að hafa blekkt almenning og reynt að leyna því hvaða hættur fylgja reykingum þótt þau hefðu vitneskju um þær.

Hundruð látnir á Haítí

Nú er talið að tæplega 700 manns hafi látist eftir að fellibylurinn Jeanne gekk yfir Haítí um helgina. Jeanne hafði áður kostað nokkra lífið í Dóminíska lýðveldinu og Púertó Ríkó.

Viðvörun vegna orkufólks

"Orkufólkið" sem hélt námskeið hér á landi um síðustu helgi kennir þátttakendum meðal annars að nota sýni úr fólki til að meta orku þess. Sýnin eru nefnd "blóð, neglur og hár," í námsgögnum en einnig er notast við myndir, rödd og skrift. Landlæknir hefur sent út sérstaka viðvörun. </font /></b />

Sjá næstu 50 fréttir