Fleiri fréttir

Samþykkt tilboð í tengivirki

Landsvirkjun hefur samið við Keflavíkurverktaka um að taka að sér gerð tengivirkis í Fljótsdal, en þaðan koma til með að liggja Fljótsdalslínur 3 og 4 sem eru háspennulínur þær sem flytja raforku úr Kárahnjúkavirkjun, 50 kílómetra leið að fyrirhuguðu álveri í Reyðarfirði.

Keppir í fegurð í Kína

Halldóra Rut Bjarnadóttir verður fulltrúi Íslands í keppninni Miss International 2004, sem fram fer í Peking í Kína 16. október næstkomandi, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá Fegurðarsamkeppni Íslands.

Lækur varð að fljóti

Bæjarlækurinn við Fagranes í Fagranesdal breyttist nánast í beljandi fljót í úrhellisrigningu í gær og í fyrrinótt.

Aurflóð lokuðu vegi

Aurflóð runnu úr austurhlíðum Tindastóls og yfir Reykjastrandarveg á um þriggja kílómetra kafla í fyrrinótt vegna mikillar úrkomu og hvassviðris.

Ókeypis að taka strætó í dag

Frítt verður að ferðast með Strætó í dag í tilefni af bíllausa deginum. Bíllausi dagurinn er hápunktur Evrópskrar samgönguviku 2004 og er haldinn til að hvetja fólk til að nota aðrar lausnir í samgöngum en einkabílinn og draga þannig úr mengun.

Sagðist hrædd við sakborninga

Sautján ára drengur vitnaði í gær gegn Stefáni Loga Sívarssyni sem er ákærður fyrir þrjár líkamsárásir. Drengurinn sagði Stefán Loga hafa ógnað sér með öxi skömmu áður en líkamsmeiðingarnar hófust. Stúlka sem bar vitni í málinu var mjög hrædd við Stefán Loga og annan mann sem einnig er ákærður fyrir tvær árásanna.

Þróunarstarf á réttri braut

Þróunarstarf Alþjóðabankans er á réttri braut að því er fram kemur í ársskýrslu skrifstofu Norðurlanda og Eystrasaltsríkja hjá Alþjóðabankanum. Þorsteinn Ingólfsson sendiherra er aðalfulltrúi kjördæmisins í stjórn Alþjóðabankans og ritar inngang skýrslunnar.

Hundur gerði húsráðanda viðvart

Bruni varð í einbýlishúsi á Tálknafirði í fyrrinótt og mátti litlu muna að húsið yrði alelda. Heimilishundur lét húsráðanda vita um eldinn.

Mónakó í Evrópuráðið

Mónakó verður 46. aðildarríki Evrópuráðsins 5. október næstkomandi, að því er fram kemur í Stiklum utanríkisráðuneytisins. Ísland varð aðili að Evrópuráðinu 7. mars árið 1950. Hvíta-Rússland er nú eina Evrópuríkið sem stendur utan ráðsins.

Stálu og skemmdu

Brotist var inn í félagsmiðstöðina Tópas í Bolungarvík um síðustu helgi en í sama húsi er heilsdagsskóli grunnskólans.

Vilja sjúkraskýrslur frá Litháen

Beiðni verjenda í líkfundarmálinu í Neskaupstað um að ákæruvaldið aflaði sjúkraskýrslna frá Litháen um hugsanleg veikindi Vaidasar Jucevicius, var hafnað af dómara Héraðsdóms Reykjavíkur í gær. Verjendurnir óskuðu eftir úrskurði í málinu.

Skriður féllu á Múlaveg

Nokkrar stórar skriður féllu á Múlaveg á milli Dalvíkur og Ólafsfjarðar snemma í morgun. Talið er að sú stærsta hafi verið um fimmtíu metra breið.

Ríki og sveit ræðast loks við

Mikillar gremju gætir nú meðal sveitarstjórnarfólks vegna bágrar fjárhagsstöðu sveitarfélaganna. Pattstaða var komin upp í samskiptum þeirra og ríkisins þar sem nefnd á vegum félagsmálaráðuneytisins sem átti að skoða tekjustofna sveitarfélaganna, og sveitarstjónarmenn bundu vonir sínar við, hafði ekki komið saman síðan í vor.

Vilja meiri tekjur

Bæjarstjóri Mosfellsbæjar, segir löngu kominn tíma á að nefnd félagsmálaráðuneytisins sem á að endurskoða tekjustofna sveitarfélaganna komist að niðurstöðu og skili af sér hugmyndum. Bæjarstjóri á Blönduósi, segist fagna samkomulagi félagsmálaráðherra og fjármálaráðherra við sveitarfélögin þótt hún sjái þar ekkert fast í hendi.

Hátt í þúsund manns létust

Hátt í eitt þúsund manns týndu lífi í gríðarmiklum flóðum í kjölfar fellibylsins Jeanne á Haíti. Þetta mikla manntjón er rakið til gróðureyðingar landsins sem aftur er rakin til fátæktar og pólitískrar óstjórnar.

Áhyggjufullir en óbugaðir

Kennarar búa sig undir fjárhagsáhyggjur og þunglyndi eftir því sem líður á verkfallið. Þeir stappa stálinu hverjir í annan í verkfallsmiðstöðvum um allt land. </font /></b />

Skylda deilenda að flýta málinu

Menntamálaráðherra lýsir þungum áhyggjum af verkfalli grunnskólakennara og segir það skyldu deilenda að ná samkomulagi á stuttum tíma. Forseti borgarstjórnar segir brýnt að samningamenn fái ráðrúm til að leysa deiluna.

Foreldrar aðstoða í Ísaksskóla

Vökul augu verkfallsvarða fylgdust grannt með foreldrum sem fylltu upp í kennslustundir barna í Ísaksskóla í morgun. Skólinn er meðal þeirra einkaskóla sem starfa í verkfallinu en það gerist með hjálp foreldra.

Umboðin ráða úrslitum

Tvö fyrirtæki, Rekstrarfélag Véla og þjónustu hf. og nýstofnað fyrirtæki, Vélar og þjónusta ehf., reyna að tryggja sér sömu umboðin og sömu viðskiptavini, að sögn Stefáns Bjarnasonar, fjármálastjóra Véla og þjónustu ehf.

Án samþykkis atvinnurekenda

Samningur útgerðarfélagsins Sólbaks við sjómenn um breytt kjör var ekki gerður með samþykki Landssambands íslenskra útvegsmanna né Samtaka atvinnulífsins.

Tugur beiðna um undanþágur

Um það bil tugur beiðna um undanþágur vegna verkfallsins hafa borist kennurum en bið er á því að umsóknirnar verði teknar fyrir. Verkfallið gæti haft alvarlegar afleiðingar fyrir börn sem eiga við geðsjúkdóma að stríða.

Munur á launum kennara eftir kyni

Karlkyns kennarar hafa að meðaltali liðlega 12 þúsund króna hærri dagvinnulaun en starfssystur þeirra. Eiríkur Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, segir ástæðurnar vera þrennar.

Aðför eða framför?

Sjómannasambandið sakar útgerðarfélagið Brim um aðför að stéttarfélögunum með því að stofna rekstrarfélag um togarann Sólbak. Framkvæmdastjóri Brims segir kerfið vera framför.

Vill að fleiri hjálpi til í Írak

"Lýðræðislegt Írak á sér miskunnarlausa óvini," sagði George W. Bush Bandaríkjaforseti þegar hann ávarpaði allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna. Hann hvatti þjóðir heims til að aðstoða við uppbyggingu Íraks og varði þá ákvörðun sína að gera innrás í Írak þrátt fyrir að deilt væri um lögmæti hennar.

Flestum KGB-skýrslum eytt

Lettar munu eyða stærstum hluta þeirra skýrslna sem sovéska leynilögreglan, KBG, skildi eftir þegar Sovétmenn héldu frá Lettlandi eftir að Eystrasaltsríkin fengu sjálfstæði. Einu skýrslurnar sem verða gerðar opinberar eru þær sem fjalla um fólk sem hefði ljóstrað upp um andóf við Sovétríkin.

Varað við sýkingu

Gera má ráð fyrir að um það bil sex þúsund Bretum hafi brugðið þegar þeir lásu bréf frá heilbrigðisyfirvöldum þar sem þeir voru varaðir við því að þeir hefðu hugsanlega þegið blóð sem væri sýkt af Creutzfeldt-Jakob sjúkdómnum. Sjúkdómurinn er það afbrigði kúariðu sem leggst á menn.

Kaupa sprengjur á kostnað kana

Bandaríkjamenn ætla að selja Ísraelum nær 5.000 háþróaðar sprengjur og greiða sjálfir fyrir þær með peningum sem ætlaðir eru til hernaðaraðstoðar við Ísraela. Að sögn ísraelska dagblaðsins Haaretz er kaupverð sprengjanna tæpir 23 milljarðar króna.

Breyta sprengjum í rafmagn

Frakkar ætla að breyta plútóni úr bandarískum kjarnorkusprengjum í eldsneyti fyrir kjarnakljúfa. Kjarnorkueldsneytið verður síðan flutt aftur til Bandaríkjanna þar sem það verður notað til að framleiða rafmagn fyrir bandarísk heimili.

Enn neyðarástand í Darfur

"Þetta er neyðarástand sem er enn í gangi. Enn er verið að myrða fólk, nauðga og hrekja það frá heimilum sínum í Darfur," sagði Irene Khan, framkvæmdastjóri Amnesty International þegar samtökin kynntu niðurstöður rannsóknarnefndar sem kannaði ástandið í Darfur-héraði í Súdan.

Gremja í garð Jóns Steinars

Fyrrverandi Hæstaréttardómari telur dómara Hæstaréttar reyna vísvitandi að koma í veg fyrir að Jón Steinar Gunnlaugsson verði skipaður dómari. Hann telur gremju í garð Jóns Steinars ráða gerðum dómaranna en þeir röðuðu þremur umsækjendum framar honum í umsögn sinni um umsækjendur um dómaraembætti.

Nauðgari kærður fyrir hótanir

Maður sem dæmdur var í þriggja og hálfs árs fangelsi í sumar fyrir að nauðga sambýliskonu sinni hefur verið kærður fyrir að hóta henni. <font face="Helv"></font>

Tveir bandarískir gíslar aflífaðir

Myndband sem sýnir þegar írakskir öfgamenn taka bandarískan gísl af lífi var í dag birt á Netinu. Mennirnir hótuðu í morgun að drepa tvo aðra gísla innan sólarhrings og létu verða af því að drepa annan þeirra rétt fyrir fréttir, samkvæmt arabísku sjónvarpsstöðinni Al Jazeera.

Engar aðgerðir að sinni

Kennarar ætla ekki að grípa til aðgerða vegna meintra verkfallsbrota að sinni, af tillitssemi við börnin. Þeir segja fyrirtæki standa fyrir kennslu í íþróttahúsi í Mosfellsbæ, sem sé klárt verkfallsbrot, og svíður sárt að þar skuli starfa nemi í Kennaraháskólanum.

Ekki samúð með kennurum?

Foreldrar virðast ekki hafa mikla samúð með grunnskólakennurum í verkfalli, ef marka má þá sem fréttastofan hitti í dag.

Gatnamótin söltuð í borgarstjórn

Meirihlutinn í borgarstjórn Reykjavíkur saltaði mislæg gatnamót Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar í dag og markaði þá stefnu í staðinn að betrumbæta ljósastýrð gatnamót með fleiri akreinum. 

Ástþór listamaður segir Mikael

Ástþór Magnússon forsetaframbjóðandi mætti með körfubíl að ritstjórn DV í dag til að geta legið á gluggunum hjá blaðamönnunum og ljósmyndað þá í bak og fyrir.

Bush varði stefnu sína í Írak

George Bush Bandaríkjaforseti varði stefnu sína í Írak í ræðu á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í dag.

Fé rýrara en í fyrra

"Það hefur gengið mjög vel að heimta fé þar sem búið er að rétta," segir Özur Lárusson, framkvæmdastjóri Landssamtaka sauðfjárbænda, en víða hefur verið mikið um að vera í réttum að undanförnu. Þó er minna fé sótt á fjall en í fyrra, sérstaklega á Suðurlandi þar sem fé hefur fækkað mikið vegna riðu og niðurskurðar.

Aðför að stéttarfélögum sjómanna

Nýtt útgerðarfélag utan um ísfiskstogarann Sólbak frá Akureyri er háalvarleg aðför að stéttarfélögum sjómanna, segir Árni Bjarnason, forseti Farmanna og fiskimannasambands Íslands og formaður í félagi skipstjórnarmanna. "Þetta er það grófasta sem ég hef horfst í augu við í kjaramálum sjómanna," segir Árni.</< /> >

Hækkuðu kröfurnar á lokasprettinum

Launanefnd sveitarfélaga segir grunnskólakennara hafa hækkað kröfur sínar verulega rétt fyrir boðað verkfall. Á heimasíðu Sambands sveitarfélaga segir að kröfur kennara hefðu þýtt  8,7 til 10,4 milljarða króna kostnaðarauka á ársgrundvelli. Heildarlaunakostnaður sveitarfélaga vegna grunnskólakennara á þessu ári nemur 16,2 milljörðum.

Höfnuðu lokaútspili kennara

Grunnskólakennarar segja Launanefnd sveitarfélaga hafa hafnað lokaútspili kennara um skammtímasamning og þar með sé sú hugmynd ekki lengur á borðinu. Verkfall skall á um miðnætti og verður verkfallsmiðstöð opnuð í fyrramálið í gamla Karphúsinu við Borgartún 22.

Meirihluti á móti ríkisstjórninni

Samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins er meirihluti landsmanna andvígur ríkisstjórninni. Ríkisstjórnarflokkarnir hafa þó sótt í sig veðrið frá því í síðustu könnun en hafa ekki náð því fylgi er þeir fengu í síðustu kosningum. </font /></b />

Þráðlaust dreifikerfi úti á landi

Fjarskiptafélagið eMax vill byggja upp þráðlaust dreifikerfi á landsbyggðinni í samkeppni við Símann. Framkvæmdastjóri eMax segir umræðu stjórnmálamanna um uppbyggingu Símans á villigötum. </font /></b />

Umdeild slysahætta

Borið hefur á óánægju meðal ferðamanna við Bjarnarflag við Mývatn í sumar, þar sem bannað hefur verið að baða sig í lóninu.

Forvarnir gegn sjálfsvígum barna

Landlæknisembættið segir börn hér á landi, allt niður í 12-13 ára, gera tilraunir til sjálfsvígs. Yngsti einstaklingurinn sem fallið hefur fyrir eigin hendi var 15 ára. Embættið vinnur að öflugu forvarnarstarfi gegn sjálfsvígum. </font /></b />

Sjá næstu 50 fréttir