Innlent

Skriður féllu úr fjallshlíðum

Skriður féllu úr fjallshlíðum sumstaðar á Norðurlandi í nótt í úrhellisrigningu sem víða er enn. Miklar skemmdir hafa orðið á veginum í Ólafsfjarðarmúla og er óvíst hvenær hægt verður að opna hann fyrir umferð á ný. Þar féllu þónokkrar skriður og á veginn á nokkrum stöðum. Meðal annars sópuðust vegrið af vegkantinum og sumstaðar varð vegurinn svo vatnsósa að stórar skakir hreinlega skoluðust úr honum. Að sögn vegagerðarmanna er mikill vatnsagi á svæðinu og aðstæður því varasamar en ljóst er að framundan eru miklar framkvæmdir við hreinsun og vegabætur. Með öllu er óljóst hvort vegurinn verður fær fyrir kvöldið en nú er aðeins fært á milli Ólafsfjarðar um Lágheiði í Skagafjörðinn. Talið er að stærsta skriðan sé allt að 50 metra breið og tveggja metra djúp en að sögn vegagerðarmanns eru skriður af þeirir stærðargráðu afar fátíðar á þessum slóðum. Þess má geta að þetta er Dalvíkurmegin við Ólafsfjarðargöngin. Þá hefur stór skriða falllið á þjóðveginn norðan við Bjarnarfjörð á Ströndum en ekkert verður farið að eiga við hana fyrr en á fimmtudag. Í morgun lokuðust svo þrír bæir af á Reykjaströnd, norðan við Sauðárkrók, í morgun eftir að aurspýjur féllu á veginn. Hann er orðinn fær en víða má sjá ár eftir spýju í hlíðum Tindastóls og í brattanum niður undir láglendi virðist jarðvegurinn hreinlega hafa sigið niður undan vatnsaganum. Sex ár eru síðan umtalsverð skriða féll úr Tindastóli. Ár og lækir hafa víða bólgnað upp en ekki svo tjón eða vandræði hafi hlotist af svo vitað sé. Spáð er að draga fari úr rigningunni upp úr hádegi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×