Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Nýr ráðherra í Bosníu Darko Matijasevic, hefur verið skipaður nýr innanríkisráðherra í serbneska hluta Bosníu-Hersegóvínu í staðinn fyrir Zoran Djeric. 16.9.2004 00:01
Skreiðarhjallar lögðust á hliðina Nokkurt tjón varð í Vestmannaeyjum í óveðri í fyrrinótt og var erilsamt hjá lögreglunni frá miðnætti til klukkan níu í gærmorgun. Björgunarfélag Vestmannaeyja hjálpuðu lögreglu að festa þakplötur og lausa muni. 16.9.2004 00:01
Tré fuku upp með rótum Mikið hvassviðri var á Hvolsvelli og í nágrenni í fyrrinótt og gærmorgun að sögn lögreglu. Nokkur stór tré fuku upp með rótum, gervihnattadiskar skemmdust og þakplötur fuku. 16.9.2004 00:01
Sjálfbær þróun í samgöngum Áherslur í samgöngumálum borgarinnar byggja á hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar. Þetta sagði Árni Þór Sigurðsson, forseti borgarstjórnar, við setningu Evrópskrar samgönguviku í Ráðhúsi Reykjavíkur í gær. 16.9.2004 00:01
Taívanar ætla til Peking Forsetafrú Taívans segir að Taívanar muni taka þátt í Ólympíuleikunum í Peking árið 2008. Yfirlýsingin kemur í kjölfar þess að forsetafrúnni, sem er fötluð og í hjólastjól, er bannað að leiða hóp Taívana á opnunarhátíð Ólympíuleika fatlaðra í Aþenu á morgun. 16.9.2004 00:01
Uppskerubrestur í Afganistan Uppskerubrestur blasir við í Afganistan. Matvælastofnun Sameinuðu þjóðanna telur að milljónir Afgana þurfi á aðstoð að halda á næstu mánuðum ef ekki á illa að fara. 16.9.2004 00:01
Óðu ána upp að mitti Fjórir franskir ferðamenn sem leit var hafin að skiluðu sér til byggða heilir á húfi rétt eftir klukkan tólf í hádeginu í gær. 16.9.2004 00:01
Forseti fékk óblíðar móttökur Ferenz Madl, forseti Ungverjalands, fékk fremur kaldar móttökur þegar hann kom í opinbera heimsókn til Serbíu-Svartfjallalands í gær. 16.9.2004 00:01
Atlantsolía fær lóð Borgarráð staðfesti í gær breytingu á borgarskipulaginu sem gerir ráð fyrir að reist verði sjálfsafgreiðslustöð fyrir bensín og olíu við Bústaðaveg. Atlantsolía hefur þegar fengið fyrirheit um lóðina, sem stendur norðan við veitingastaðinn Sprengisand og austan hesthúsa Fáks á svæðinu. 16.9.2004 00:01
Risastór virkjun á Norðurlandi? Forystumenn í Skagafirði vilja að raforka sem framleidd verður á Norðurlandi vestra verði nýtt til stóriðju á Brimnesi við Kolkuós og hafna því að hún verði nýtt til atvinnusköpunar utan héraðs. Viðræður eru að hefjast milli Landsvirkjunar og Skagfirðinga um að reisa eina stærstu virkjun landsins, Skatastaðavirkjun. 16.9.2004 00:01
Pétur W. Kristjánsson jarðsunginn Pétur W. Kristjánsson tónlistarmaður var jarðsunginn frá Grafarvogskirkju í gær. Hann fæddist 7. janúar 1952 og lést á Landspítalanum 3. september eftir skammvinn veikindi. Pétur var í hópi þekktustu tónlistarmanna sinnar kynslóðar og söng með mörgum vinsælum hljómsveitum, t.d. Pops, Náttúru og Pelikan. 16.9.2004 00:01
Kári ritstjóri Fréttablaðsins Kári Jónasson hefur verið ráðinn ritstjóri Fréttablaðsins og tekur til starfa 1. nóvember. Kári var fréttastjóri á fréttastofu Útvarps í sautján ár en vann þar samfleytt í 31 ár, fyrst sem fréttamaður og svo varafréttastjóri. Áður var hann blaðamaður á Tímanum. 16.9.2004 00:01
Óska frekari aðstoðar Forseti Íraks hefur óskað eftir því að NATO og Evrópusambandið aðstoði enn frekar til að binda enda á stríðsástandið í Írak og hjálpi til að byggja upp landið. Tugir óbreyttra borgara létu lífið í áframhaldandi átökum í landinu í gær. </font /></b /> 15.9.2004 00:01
Framhjáhald verði ekki refsivert Hundruð tyrkneskra kvenna gengu í mótmælaskyni um götur Ankara í gær til að sýna í verki andúð sína á fyrirætlan ríkisstjórnarinnar um að gera framhjáhald að refsiverðu athæfi samkvæmt lögum. 15.9.2004 00:01
Tek við góðu búi Sigríður Anna Þórðardóttir tekur við embætti umhverfisráðherra í dag. Hún hlakkar til að takast á við starfið enda umhverfismálin vaxandi málaflokkur. </font /></b /> 15.9.2004 00:01
Eftirliti í Íran ekki lokið Alþjóðakjarnorkumálastofnunin hefur ekki enn fundið örugg merki þess að Íranar búi yfir kjarnavopnum eða séu að undirbúa smíð þeirra. Stofnunin fundar nú um málefni Írana. Bandaríkjamenn og bandamenn þeirra í Evrópu hafa sett þau skilyrði að Alþjóðakjarnorkumálastofnunin ljúki eftirliti sínu fyrir 1. nóvember. 15.9.2004 00:01
Starfsfólk fylgir foringjunum Nánustu samstarfsmenn Davíðs Oddssonar munu fylgja honum úr stjórnarráðinu við Lækjargötu í utanríkisráðuneytið við Rauðarárstíg þegar forystumenn stjórnarflokkanna hafa stólaskipti í dag. Sömu sögu er að segja um nánustu samverkamenn Hallldórs Ásgrímssonar. 15.9.2004 00:01
Frá Viðey til Rauðarár Þrettán ára viðburðaríkur forsætisráðherraferill Davíðs Oddssonar er á enda. Eftirmæli AP um Davíð: "Markaðssinni sem misreiknaði sig". </font /></b /> 15.9.2004 00:01
Eldsvoði í Hafnarfirði Íbúar sluppu ómeiddir út þegar eldur kviknaði í íbúðarhúsi við Dalshraun í Hafnarfirði um klukkan þrjú í nótt. Einn var fluttur á slysadeild Landspítalans með vott af reykeitrun en hresstist fljótt. Slökkvistarf gekk vel en reykræsta þurfti húsið. Nokkrar skemmdir urðu af reyk en eldsupptök eru ókunn. 15.9.2004 00:01
Neyðarástand í þremur ríkjum Neyðarástandi hefur verið lýst yfir í Flórída, Louisiana og Alabama og að minnsta kosti tvær milljónir manna eru hvattar til að yfirgefa heimili sín af ótta við að fellibylurinn Ívan gangi þar yfir. Gríðarlega þung umferð er frá þessum svæðum og miklar teppur hafa myndast. 15.9.2004 00:01
Fleiri fyrirtæki með barnagæslu Mun fleiri stórfyrirtæki en Íslandsbanki og Sjóvá-Almennar íhuga að koma á einhvers konar barnagæslu ef til kennaraverkfalls kemur en Kennarasambandið líkir slíku við verkfallsbrot og áskilur sér allan rétt til aðgerða í slíkum tilvikum. 15.9.2004 00:01
Fyrsta opinbera heimsóknin Hinn nýgifti krónprins Dana, Friðrik, og kona hans, Mary Donaldson, eru nú stödd í Bretlandi í sinni fyrstu opinberu heimsókn frá því þau giftu sig í maí. Hjónakornin brostu sína blíðasta til ljósmyndara þegar þau mættu á opnun í Konunglegu listaakademíuna í London. Þar voru þau viðstödd sýningu á málverkum og skúlptúrum í eigu Dana. 15.9.2004 00:01
Þyrla sótti slasaðan Rússa Rússneskur sjóliði, sem slasaðist um borð í herskipi djúpt suður af landinu í gær og þyrla Varnarliðsins sótti, er enn á Landspítalanum við Fossvog. Hann hlaut innvortis blæðingar eftir þungt högg á brjósthol og hafði verið í aðgerð á sjúkrastofunni um borð í skipinu í þrjár klukkustundir þegar óskað var eftir aðstoð. 15.9.2004 00:01
Lamb hljóp fyrir mótorhjól Lamb drapst eftir að það hljóp í veg fyrir mótorhjól í Hvalfjarðarbotni laust fyrir kvöldmat í gær. Við áreksturinn féll ökumaður vélhjólsins í götuna og slasaðist en þó ekki alvarlega. Hann var fluttur á sjúkrahúsið á Akranesi til aðhlynningar. 15.9.2004 00:01
Tíundi maðurinn handtekinn Norska lögreglan handtók í nótt tíunda manninn sem viðriðinn er vopnaða ránið úr vopnabúri hersins í Jostad-moen í sumar. Komið er í ljós að liðsforingi úr hernum er höfuðpaur í málinu en rænt var um 70 vélbyssum, yfir 40 skambyssum og miklu af skotfærum. Ekki liggur fyrir hvað ræningjarnir hugðust fyrir með öll þessi vopn. 15.9.2004 00:01
Rjúpnaveiðibanninu aflétt? Skotveiðimenn fagna mjög jákvæðum niðurstöðum úr rjúpnarannsóknum sem sýna ört vaxandi stofn og ætla að knýja á um að rjúpnaveiðibanninu, sem sett var í fyrrahaust, verði aflétt strax í haust. Þeir eru á móti tilbúnir til þess að sæta einhverjum takmörkunum, eins og til dæmis að ekki megi veiða rjúpu nema fjóra daga í viku. 15.9.2004 00:01
Þrjú höfuðlaus lík í Bagdad Þrjú höfuðlaus lík fundust norður af Bagdad, höfuðborg Íraks, í morgun. Ekki er búið að bera kennsl á líkin en talið er að þau séu af útlendingum. Írakska lögreglan fann líkin sem öll eru karlkyns. 15.9.2004 00:01
Ný ríkisstjórn tekur við Ný ríkisstjórn undir forsæti Halldórs Ásgrímssonar tekur formlega við á ríkisráðsfundi sem hefst á Bessastöðum eftir klukkustund. Halldór, sem verður fimmtándi forsætisráðherra lýðveldisins, hefur stólaskipti við Davíð Oddsson en hann hefur gegnt embættinu lengst allra Íslendinga. 15.9.2004 00:01
Tvær milljónir flýja heimili sín Tvær milljónir Bandaríkjamanna flýja nú heimili sín í Flórída, Louisiana og Alabama-ríki af ótta við fellibylinn Ivan. Búist er við að Ivan gangi á land þar á morgun. 15.9.2004 00:01
Varað við stormi í kvöld Veðurstofan varar við stormi, meira en 20 metrum á sekúndu, sem fylgir fyrstu haustlægðinni á sunnanverðu landinu og hálendinu seint í kvöld og í nótt. Fólk er beðið um að hafa varann á og huga að lausum og léttum hlutum sem gætu fokið til og valdið tjóni. 15.9.2004 00:01
Björn telur sig vanhæfan Björn Bjarnason dómsmálaráðherra telur sig vanhæfan til að skipa í embætti hæstaréttardómara sem nú er laust vegna þeirra eftirmála sem urðu þegar hann skipaði Ólaf Börk Þorvaldsson dómara við réttinn í ágúst í fyrra. Það kemur í hlut Geirs H. Haarde fjármálaráðherra að taka ákvörðun um hver hlýtur embættið. 15.9.2004 00:01
Foreldrafélag útvegar barnagæslu Starfsfólk hjá Íslandsbanka og Sjóvá-Almennum hefur stofnað foreldrafélag til að sjá um að útvega barnagæslu ef til kennaraverkfalls kemur. Stjórn félaganna kemur ekkert að málinu. 15.9.2004 00:01
ESB hvetur Pútín til að semja Evrópusambandið hvetur Pútín Rússlandsforseta til að fara samningaleiðina til að vinna bug á hryðjuverkum í landinu, fremur en að stjórnvöld í Kreml taki sér einskonar alræðisvald í sjálfstjórnarlýðveldum Rússlands. 15.9.2004 00:01
Rússinn útskrifaður af gjörgæslu Áður óþekktar boðleiðir voru notaðar þegar óskað var eftir að rússneskur sjóliði, sem slasaðist um borð í herskipi djúpt suður af landinu í gær, yrði sóttur og fluttur á sjúkrahús hér á landi. 15.9.2004 00:01
Reikningsskil ráðherra ruglingsleg Formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands segir reikningsskil iðnaðarráðherra vegna losunar gróðurhúsalofttegunda samkvæmt Kyoto-bókuninni ruglingsleg. 15.9.2004 00:01
Fleiri konur í stjórnmál Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra, telur það mjög mikilvægt að konur komi í vaxandi mæli inn í íslensk stjórnmál og telur sig hafa reynt að stuðla að því. Hann fagnar jafnframt auknum áhuga kvenna á stjórnmálum. </font /></b /> 15.9.2004 00:01
Laun félagsmanna VR hækkuðu um 5% Heildarlaun félagsmanna VR hækkuðu um fimm prósent, úr 249 þúsundum á mánuði í 273 þúsund, samkvæmt launakönnun félagsins. Afgreiðslufólk á kassa hefur lægstu mánaðarlaunin, 154 þúsund. Athygli vekur að æðstu stjórnendur eru ekki lengur launahæstir. 15.9.2004 00:01
Útboð á eldsneyti fyrir ríkið Sex fyrirtæki gerðu tilboð í sölu á eldsneyti og smurolíu á skip og flugvélar ríkisins en heildarmagn eldsneytis er hátt í sex milljónir lítra. 15.9.2004 00:01
Nýja stjórnin tekin við Ný ríkisstjórn, undir forsæti Halldórs Ásgrímssonar, tók formlega við á ríkisráðsfundi sem nú stendur yfir á Bessastöðum. Halldór er fimmtándi forsætisráðherra lýðveldisins. Davíð Oddsson, sem gegnt hefur embætti forsætisráðherra lengst allra Íslendinga eða í þrettán ár, er nú utanríkisráðherra í ríkisstjórn Halldórs. Þá tók Sigríður Anna Þórðardóttir við embætti umhverfisráðherra af Siv Friðleifsdóttur.</font /> 15.9.2004 00:01
Fjárhús eyðilagðist í eldi Gamalt fjárhús sem ekki er lengur í notkun gjöreyðilagðist í eldi að bænum Ögmundarstöðum í Skagafirði, skammt frá Sauðárkróki, í nótt. Eldsins varð vart laust fyrir miðnætti og var slökkvilið kallað á vettvang. Það rauf torfþekjuna á fjárhúsinu til að slökkva í glæðum. Nálæg hús voru ekki í hættu. Eldsupptök eru ókunn. 15.9.2004 00:01
Börnin aftur í skólann Börn í bænum Beslan í Rússlandi hófu skólagöngu á nýjan leik í dag. Tvær vikur eru síðan um 330 börn og fullorðnir létu lífið þegar hryðjuverkamenn tóku um þúsund manns í gíslingu í skólabyggingu í bænum. 15.9.2004 00:01
Ríkið tekur 84% af vodkaflösku Eins og fram kom í Fréttablaðinu í gær eiga Íslendingar heimsmet í skattlagningu á áfengi. Samkvæmt sundurliðuðum kostnaðartölum frá ÁTVR fer hlutur ríkisins í einstakri vörutegund upp í allt að 85% af verði. 15.9.2004 00:01
Áhugi á álþéttaverksmiðju Evrópskt fyrirtæki hefur óskað eftir viðræðum við Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar um byggingu álþéttaverksmiðju á Akureyri. 15.9.2004 00:01
13 ára drengur með vændisþjónustu Þrettán ára drengur í Taívan hefur verið handtekinn fyrir að starfrækja vændisþjónustu á Netinu. Samkvæmt upplýsingum lögreglu mun drengurinn hafa fengið fleiri en 100 drengi og stúlkur til að skrá sig á heimasíðuna síðustu fjóra mánuði, undir þeim formerkjum að selja kynferðislega þjónustu. 15.9.2004 00:01
Fiskveiðihagsmunir mikilvægir Ýmsir þættir sameiginlegrar fiskveiðistefnu Evrópusambandsins fara í bága við hagsmuni og réttindi Íslendinga, að því er fram kemur í frumskýrslu nefndar Halldórs Ásgrímssonar. Það sé almenn skoðun Íslendinga að við getum ekki gerst aðildarríki ESB án þess að sérstaða okkar gagnvart sjávarútvegi verði metin og tryggð til frambúðar. </font /></b /> 15.9.2004 00:01