Fleiri fréttir

Fólk hætti að nota vafra Microsoft

Öryggisskrifstofa upplýsingatækni í Þýskalandi (Bundesamt für Sicherheit in der Informationstechnik) leggur til að fólk hætti að nota Microsoft Internet Explorer vafrann og noti frekar aðra valkosti. Á þetta er bent í tilkynningu frá norska hugbúnaðarfyrirtækinu Opera Software.

Sundabraut verði hraðað

Bæjarstjórn Akraness vill að ríkisstjórn og Alþingi kappkosti lagningu Sundabrautar og hraði undirbúningi hennar. </font /></b />

Framsóknarkonur fjölga sér

Una María Óskarsdóttir stóð í gær upp úr stóli aðstoðarmanns umhverfisráðherra og sest undir stýri á tveggja ára gömlum Toyota Land Cruiser jeppa. Förinni er heitið hringinn í kringum landið og er ætlunin að fá nýjar konur til liðs við flokkinn og efla þær sem fyrir eru. </font /></b />

Eins og að hitta gamlan vin

Fjallað var um íslenskt viðmót hugbúnaðar Microsoft á stærstu árvissu ráðstefnunni sem fyrirtækið heldur hér á landi. Microsoft telur sig halda tungumálinu "lifandi" með íslenskum útgáfum vinsælasta hugbúnaðar fyrirtækisins.

Afli lítill - veðrið vont

Eftir ágætis síldarafla á Halamiðum á dögunum hefur gamanið kárnað og varla dregist bein úr sjó. Ástandið kemur Freysteini Bjarnasyni, útgerðarstjóra Síldarvinnslunnar, ekki á óvart. "Það er þekkt að ef eitthvað er hrært í þessari stóru síld þá styggist hún og dreifir sér." </font /></b />

Hurfu úr tilkynningarkerfinu

Tilkynningarskyldan hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar rétt fyrir hálf þrjú í dag og tilkynnti að tveir fiskibátar hefðu horfið út úr sjálfvirka tilkynningarkerfinu og ekkert samband næðist við þá. Þetta voru bátarnir Ólafur HF-251 og Ólafur HF-200.

Gæsluvarðhald vegna barnsráns

Bandaríkjamaður sem kom hingað til lands í fyrradag sætir nú gæsluvarðhaldsvist vegna framsalsbeiðni frá Finnlandi. Maðurinn er grunaður um að hafa rænt barni í Finnlandi og í kjölfarði var eftir honum lýst á Schengen-svæðinu.

Nýr salur á Héraði

Nýr sýningarsalur fyrir myndlist að nafni Kvistur hefur verið opnaður á Miðhúsum, skammt frá Egilsstöðum.

Hafa ekki afskipti af barnagæslu

Kennarasambandið mun ekki hafa afskipti af fyrirætlunum starfsfólks Íslandsbanka og Sjóvár- Almennra um að útvega barnagæslu ef til kennaraverkfalls kemur. Starfsfólkið hefur stofnað foreldrafélag sem hefur umsjón með gæslunni og samkvæmt tilkynningu frá félaginu segir að stjórn fyrirtækjanna komi ekkert að máli.

Nýr stjóri í félagsmálaráðuneyti

Nýr ráðuneytisstjóri, Ragnhildur Arnljótsdóttir, hefur hafið störf í félagsmálaráðuneytinu. Hermann Sæmundsson, sem var settur ráðuneytisstjóri þar um nokkurt skeið og einn þeirra sem sóttu um starf ráðuneytisstjóra, hverfur til starfa erlendis.

Meira nám verði í grunnskólunum

Byrjunaráfangar fjögurra námsgreina verða fluttar að hluta eða í heild úr framhaldsskólum til grunnskóla. Þetta er ein af tillögum í skýrslu menntamálaráðuneytisins um breytta námsskipan til stúdentsprófs. </font /></b />

Fækkun banaslysa í fyrra

Árið 2003 fórust 23 vegfarendur í umferðarslysum á Íslandi en það eru sex færri en árið 2002. Flestir þeirra sem fórust í banaslysum á síðasta ári voru 65 ára og eldri samkvæmt skýrslu Rannsóknarnefndar umferðarslysa.

Faðernið leiðrétt

Faðerni barns var nýverið leiðrétt í þjóðskrá, um það bil fimm áratugum eftir að dómur um það gekk í sakadómi Reykjavíkur. Leita varð til þjóðskjalasafnsins til að fá gögn er sýndu að barnið væri ekki rétt feðrað<strong>.</strong> </font /></font />

Réðust inn í breska þingið

Fimm menn réðust inn í breska þingið í dag með hrópum og köllum til að mótmæla fyrirhuguðu banni við refaveiðum. Það þykir með ólíkindum að mennirnir skyldu komast inn í þingsalinn enda á öryggisvarsla þar að vera pottþétt.

Grunaður um barnsrán í Finnlandi

Bandarískur maður er í haldi lögreglu grunaður um barnsrán í Finnlandi. Finnsk yfirvöld vilja fá manninn framseldan. Maðurinn kom hingað á mánudag sem almennur farþegi með Skógafossi frá Bandaríkjunum.

Tók þátt í kaupum á Skjá einum

Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson, formaður Útvarpsráðs, tók virkan þátt í því að fá Símann til að fjárfesta í sjónvarpsstöðinni Skjá einum og sjónvarpsréttinum á enska boltanum. Menntamálaráðherra segist ætla að kanna málið.

Skólahald í Beslan hefst að nýju

Allt skólahald hefur legið niðri í Beslan í kjölfar hryðjuverkaárásarinnar á barnaskóla númer eitt fyrir hálfum mánuði. Í dag voru aðrir skólar bæjarins hins vegar settir á nýjan leik, þar á meðal skóli sem er aðeins í um fjögur hundruð metra fjarlægð frá þeim skóla þar sem hryðjuverkamennirnir réðust til atlögu.

Launamunur kynjanna óbreyttur

Það er best að vera karlmaður á fertugsaldri með háskólapróf. Þá eru launin í það minnsta hærri en hjá öðrum miðað við nýja launakönnun VR. Samkvæmt henni hafa heildarlaun félagsmanna VR hækkað um fimm prósent frá því í fyrra en vinnutíminn hefur lengst og launamunur kynjanna er óbreyttur.

Sauðfjárbændur ósáttir

Sauðfjárbændur eru mjög ósáttir við það verð sem sláturhús hafa ákveðið að greiða fyrir lambakjöt nú í haust. Þeir telja ýmis rök fyrir því að tekjulækkun sem þeir urðu fyrir í fyrra vegna harðrar samkeppni á kjötmarkaði eigi nú að ganga til baka.

Stjórn Halldórs tekin til starfa

Ríkisstjórn Halldórs Ásgrímssonar tók formlega til starfa á ríkisráðsfundi á Bessastöðum nú síðdegis. Við það tilefni settist nýr ráðherra í ríkisstjórn en annar kvaddi.

Nýr umhverfisráðherra

Siv Friðleifsdóttir afhenti Sigríði Önnu Þórðardóttur lykla að umhverfisráðuneytinu síðdegis í gær og voru þeir festir í kippu á rjúpufæti.</font />

Hátindur stjórnmálaferils Halldórs

Halldór Ásgrímsson segir það hljóta að vera hátind á ferli hvers stjórnmálamanns að taka við mikilvægasta embætti þjóðarinnar, forsætisráðherrastól. Davíð Oddsson, sem í dag tók einnig við nýju embætti, segist hlakka til nýrra starfa og nýrra átaka. Engin byltingaráform séu þó fyrirhuguð ennþá.

Fyrirtæki huga að barnagæslu

Fyrirtækið Össur ætlar að líta til samkomulags Íslandsbanka og Sjóvá-Almennar við Kennarasambandið og láta foreldrafélag fyrirtækisins um að skipuleggja barnapössun komi til verkfalls. Fleiri fyrirtæki huga að barnagæslu fyrir sína starfsmenn.

Viðbúið að kennaraverkfall verði

Sveitarfélögin hafa ekki breytt formlegum kröfum sínum í kjaraviðræðum við kennara frá því í maí, samkvæmt Karli Björnssyni sviðstjóra kjarasviðs sveitarfélaga. Ásmundur Stefánsson ríkissáttasemjari segir að gangi viðræðurnar með sama hætti næstu daga og undanfarna sé viðbúið að verkfall skelli á 20. september.

Bitist um Valsheimilið

KB banki hefur samið við Knattspyrnufélagið Val um að gæta barna starfsmanna í kennaraverkfalli. Börnin verða á námskeiði í Valsheimilinu sem kennarar höfðu áður samið við félagið um að yrði verkfallsmiðstöð.

Forsætisráðherra milljarðamæringur

Hlutur nýja forsætisráðherrans, Halldórs Ásgrímssonar, í fjölskyldufyrirtækinu Skinney-Þinganesi, og aflaheimildum þess er nú metinn á um einn milljarð króna. Á síðustu tveimur árum skilaði útgerðarrisinn um 1150 milljónum króna í hagnað - eftir skatta. Sjá nánar DV í dag.

Svanhildur fryst út úr Kastljósinu

Svanhildi Hólm Valsdóttur, einum umsjónarmanna Kastljóssins,var skyndilega bannað að fara í útsendingu eftir að opinbert varð að hún ætlaði að færa sig í Ísland í dag á Stöð 2. Henni er þó gert að sitja við skrifborð sitt út uppsagnarfrestinn og vinna að "hugmyndafræðilegum" verkefnum. Hún situr enn sem ritari útvarpsráðs.

Fóru út fyrir leyfilegt svæði

Tveir fiskibátar, Ólafur HF-251 og Ólafur HF-200, hurfu út úr sjálfvirka tilkynningarskyldukerfinu og ekki náðist í þá um miðjan daginn í gær. Tilkynningarskyldan hafði því samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar, sem kallaði út þyrluáhöfn.

Brú ýlir sem sinfóníuhljómsveit

Verkfræðingar standa á gati með það hvers vegna göngubrú yfir Breiðholtsbraut ýlir og heldur vöku fyrir íbúum í Blesugróf. Umdæmisstjóri Vegagerðarinnar segir brúnna eins og heila sinfóníuhljómsveit og vera einstaka í sinni röð.

Eldur í sjónvarpi

Eldur kviknaði í sjónvarpstæki í herbergi í húsi við Dalshraun 13 í Hafnarfirði um klukkan þrjú í fyrrinótt. Tveir einstaklingar voru í herberginu sem eldurinn kom upp í og gerðu þeir lögreglu viðvart.

Eldsupptök talin vera í reykstæði

Eldur kviknaði í fjárhúsi á Ögmundarstöðum, sem eru rétt sunnan við Sauðárkrók, á tólfta tímanum í fyrrakvöld. Eldtungur stóðu út úr austurgafli fjárhússins þegar lögregla kom á vettvang. Ekki var annað en reiðtygi og timbur í húsinu sem er ónýtt eftir brunann.

Vill ekki til Finnlands

Bandarískur maður sem handtekinn var þegar hann kom með Skógarfossi, skipi Eimskipafélagsins, til landsins á mánudagskvöld hafnar því að vera framseldur til Finnlands. Maðurinn hefur verið eftirlýstur í Finnlandi fyrir að hafa numið dóttur sína á brott seinni hluta ársins 2001.

New Orleans í hættu vegna Ívans

Óttast er að fellibylurinn Ívan valdi miklum usla með fram suðurströnd Bandaríkjanna í nótt og á morgun. Háborg djassins, New Orleans, er í sérstakri hættu enda liggur hún að stórum hluta undir sjávarmáli. Íslendingur sem býr í borginni er þó hvergi banginn og ætlar að sitja af sér veðrið þó aðrir íbúar flýi unnvörpum. 

Þúsundir flýja heimili sín

Hundruð þúsunda manna á suðurströnd Bandaríkjanna hafa rýmt heimili sín því búist er við að fellibylurinn Ívan, sem varð 70 manns að bana í Karabíska hafinu, gangi á land í dag. Stjórnvöld hafa beðið tvær milljónir manna um að flýja frá hættusvæðunum.

ESB gagnrýnir Rússa

Evrópusambandið hvetur Vladimír Pútín Rússlandsforseta til þess að fara hófsamari leiðir en hann hefur boðað til að vinna bug á hryðjuverkjum í landinu.

Taívanar ósáttir

Stjórnvöld í Taívan eru reið út í stjórnendur Ólympíuleika fatlaðra sem hefjast í Aþenu á föstudaginn. Eiginkonu forseta Taívans, sem er fötluð og í hjólastól, hefur verið bannað að leiða hóp taívanskra íþróttamanna á opnunarhátíðinni.

Tjáir sig ekki um rjúpnaveiðibann

Sigríður Anna Þórðardóttir er fyrsti sjálfstæðismaðurinn í stóli umhverfisráðherra. Hún ætlar að nota næstu daga til að heimsækja stofnanir ráðuneytisins en er ekki tilbúin til að lýsa afstöðu sinni til áframhaldandi veiðibanns á rjúpu. Siv Friðleifsdóttir stefnir að því að setjast í ríkisstjórn á næsta ári.

Kennsla hafin á ný í Beslan

Skólar í Beslan í Norður-Ossetíu hófu kennslu á ný í gær eftir að hafa verið lokaðir í tvær vikur, eða allt síðan eitt þúsund manns voru teknir í gíslingu í einum þeirra. Tæplega 350 manns, stærsti hlutinn börn, létust í uppgjöri hersins og gíslatökumannanna.

Castro sigraði Ívan grimma

Forsíður beggja dagblaðanna á Kúbu í gær voru uppfullar af efni um fellibylinn Ívan grimma sem fór meðfram strönd landsins en eyðilagði ekki nærri jafnmikið og óttast hafði verið.

Vélarvana við Meðallandsbugt

Færeyskur línubátur varð að miklu leiti vélarvana í gær við Meðallandsbugt eða um tíu sjómílur suður af Meðallandsfjörum. Annar færeyskur bátur fór á staðinn til aðstoðar. Ætlunin var að taka bátinn í tog og draga hann til Vestmannaeyja.

Ráku einkafangelsi í Kabúl

Þrír Bandaríkjamenn hafa verið dæmdir í allt að tíu ára fangelsi fyrir að pynta Afgana í einkafangelsi í Kabúl.

Áhyggjur af fjölgun jarðarbúa

Sameinuðu þjóðirnar vara við því að ef Vesturlönd auki ekki fjárveitingar sínar í sjóð samtakanna, sem notaður er til að bæta heilbrigðiskerfi landa þriðja heimsins og efla þar kvenréttindi og menntun, muni illa fara.

Flestir sýktir á Indlandi

Fleiri eru smitaðir af alnæmi á Indlandi en í Suður-Afríku, segir talsmaður virtra alþjóðlegra samtaka sem berjast gegn sjúkdómnum.

Musharraf svíkur loforð

Pervez Musharraf, forseti Pakistans, verður áfram yfirmaður hersins en hann hafði gert samkomulag við islamska harðlínumenn um að láta af því starfi um áramótin.

Eiffel-turninn lokaður

Ferðamenn í París hafa ekki getað farið upp í Eiffel-turninn vegna verkfalls starfsmanna við turninn.

Sjá næstu 50 fréttir