Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Mogginn gefinn Morgunblaðinu var dreift frítt til fjölda fólk, dagana sem könnun Gallups á fjölmiðlanotkun fór fram. Samkvæmt henni fengu 7,5 prósent íbúa höfuðborgarsvæðisins blaðið sent til sín án þess að greiða fyrir það. Til hliðsjónar má nefna að frídreifing Morgunblaðsins var 3,5 prósent í mars. 14.9.2004 00:01
Ívan á leið til Mexíkóflóa Einn öflugasti fellibylur sem um getur færist nú nær Mexíkóflóa eftir að hafa valdið miklum skemmdum á vesturhluta Kúbu, en þó minni en óttast var. Fellibylurinn hefur orðið að minnsta kosti sextíu og átta manns að bana á ferð sinni um Karíbahafið og það virðist sem lítið hafi dregið úr vindhraða fellibylsins sem er í hæsta styrkleikaflokki. 14.9.2004 00:01
47 látast í Írak Öflug sprenging sprakk á markaði í Bagdad í morgun og liggja ekki færri en fjörutíu og sjö í valnum. Markaðurinn, sem var fjölsóttur, er skammt frá aðallögreglustöðinni í Bagdad. 14.9.2004 00:01
Banninu ekki aflétt Ólíklegt er talið að rjúpnaveiðibanninu, sem sett var á í fyrrahaust, verði aflétt nú í haust, þrátt fyrir mikinn vaxtarkipp í stofninum undanfarið ár. 14.9.2004 00:01
Banninu ekki aflétt Ólíklegt er talið að rjúpnaveiðibanninu, sem sett var á í fyrrahaust, verði aflétt nú í haust, þrátt fyrir mikinn vaxtarkipp í stofninum undanfarið ár. 14.9.2004 00:01
Barni kastað út úr bíl Það þykir ganga kraftaverki næst að kornabarn skuli hafa sloppið lifandi og ómeitt eftir að hafa verið kastað út úr bíl á ferð í Bandaríkjunum gær. Lögreglan í Green Bay, Wisconsin, tók atvikið upp á myndband úr lögreglubíl sem veitti bílnum eftirför. 14.9.2004 00:01
Íkveikja í Hvalfirði? Grunur leikur á að kveikt hafi verið í íbúðarhúsinu að Brekku í Hvalfirði í fyrrinótt, og rannsakar lögregla nú málið. Íbúi hússins vaknaði við brak og komst út í tæka tíð, en rúður í húsinu sprungu og reykur frá eldinum, sem kviknaði í bílskúr á neðri hæð, komst inn á efri hæðina. Þá eru ummerki um skemmdarverk utandyra. Þar brann bíll til kaldra kola. 14.9.2004 00:01
Vaxtastríð í Noregi Vaxtastríðið í húsnæðislánageiranum í Noregi heldur áfram, en vextir af húsnæðislaánum í Noregi eru komnir niður fyrir þrjú prósent, auk þess sem norskir bankar taka ekki vaxtavexti, eins og þeir íslensku gera í formi verðtryggingar. 14.9.2004 00:01
Og Vodafone á uppleið Gengi í hlutabréfum í fjarskiptafyrirtækinu Og Vodafone hækkaði um tólf prósent í Kauphöllinni í gær, fyrsta markaðsdegi eftir að tilkynnt var um kaup Norðurljósa á um þrjátíu og fimm prósenta hlut í fyrirætkinu. Lokagengi í gær var fjórar krónur á hlut, en Norðurljós keypti hlut sinn á 4,2. 14.9.2004 00:01
KÍ segi heilsuskóla verkfallsbrot Kennarasamband Íslands lítur á það sem verkfallsbrot ef Sjóvá Almennar og Íslandsbanki starfrækja heilsuskóla fyrir börn starfsmanna á þeim tíma dags þegar börn ættu að vera í skóla. 14.9.2004 00:01
Ölvunarakstur við Nóatún Drukkinn ökumaður lenti í ógöngum á bílastæðinu við Nóatúnsverslunina við Nóatún í gærkvöldi og ók utan í bíl og á ljósastaur. Vitni kölluðu á lögreglu sem stöðvaði leikinn áður en ökumaðurinn ylli fekari usla eða skapaði hættu í umferðinni. 14.9.2004 00:01
S-Kóreumenn fullir efasemda Suður-Kóreumenn trúa ekki útskýringum stjórnvalda í Norður-Kóreu um ástæður mikillar sprengingar fyrir helgi. Sprengingin olli sveppaskýi og var talið að kjarnorkusprengja hefði verið sprengd. Norður-Kóreumenn segja hins vegar að fjall hafi verið sprengt til að rýma fyrir virkjun. 14.9.2004 00:01
Engin skýring á neyðarsendingum Engin skýring hefur fundist á því að gervitungl fóru að nema neyðarsendingar frá höfninni í Grindavík í gærkvöldi, þrátt fyrir víðtæka eftirgrennslan. Sendingarnar fóru að heyrast laust fyrir klukkan átta og kallaði tilkynningaskyldan Björgunarsveitina Þorbjörn út, sem mannaði þegar björgunarskipið Odd V. Gíslason, og hélt það til leitar. 14.9.2004 00:01
Mary vill endurkjör Mary McAleese, forseti Írlands, hyggast bjóða sig fram á ný og sækjast eftir endurkjöri. Beðið hefur verið eftir ákvörðun McAleese með eftirvæntingu. Tveir aðrir frambjóðendur hyggjast keppa um embættið: græninginn Eamon Ryan og Evrópuþingmaðurinn Dana Rosemary Scallon 14.9.2004 00:01
Sprogøe látinn Danski leikarinn Ove Sprogøe er látinn, áttatíu og fjögurra ára að aldri. Sprogøe er þekktastur fyrir hlutverk sitt sem Egon Olsen í myndunum um Olsen-gengið. En Sprogøe var einnig þekktur og vinsæll sviðsleikari í Danmörku, og lék í hundrað fimmtíu og sex kvikmyndum alls. 14.9.2004 00:01
Lægri gjöld í Noregi Norskir bankar taka ekkert lántökugjald vegna húsnæðislána eins og íslenskir bankar gera, og ekki heldur uppgreiðslugjald af lánunum en það gera íslensku bankanir. Norksu húsnæðislánin eru heldur ekki vertryggð, 14.9.2004 00:01
Ivan inn á Mexicoflóa Fellibylurinn Ívan er nú kominn langleiðina inn á Mexíkóflóa og stefnir í átt að norðvesturströnd Flórída. Hann olli usla á Kúbu í nótt, en mildi þykir að enginn skildi týna þar lífi. 14.9.2004 00:01
Davíð kveður Davíð Oddsson fráfarandi forsætisráðherra stýrði síðasta ríkisstjórnarfundi sínum á þessu kjörtímabili í Stjórnarráðinu í morgun. Hann segist hlakka til nýrra verkefna og vera sáttur við umskiptin. Hann viðurkennir að hafa stundum reynst erfiður en hafi orðið umburðarlyndari í seinni tíð. 14.9.2004 00:01
Heilsuskóli verkfallsbrot? Kennarasambandið hótar því að auknar líkur séu á verkfalli og það verði langvinnara en ella, ef fyrirtæki svo sem Íslandsbanki ætla að skipuleggja einhverja starfssemi fyrir grunnskólanemendur á þeim tímum dags, sem börn hefðu annars átt að vera í skóla. 14.9.2004 00:01
Einar segir upp hjá Íslandspósti Einar Þorsteinsson forstjóri Íslandspósts sagði fyrirvaralaust upp störfum í gær og hættir í dag. Anna Guðmundsdóttir fjármálastjóri fyrirtækisins og Andrés Magnússon starfsmannastjóri sinna störfum hans þar til nýr forstjóri hefur verið ráðinn. 14.9.2004 00:01
Sjálfstæðismenn vilja framkvæmdir Sjálfstæðismenn ætla að leggja til á fundi samgöngunefndar borgarinnar í dag að hætt verði við að fresta mislægum gatnamótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar. Þau verði skilgreind sem forgangsframkvæmd og markvisst haldið áfram því ferli sem þegar er hafið með mati á umhverfisáhrifum. 14.9.2004 00:01
93% horfa á RÚV 93% horfðu eitthvað á Ríkissjónvarpið í ágústmánuði, 74% á Stöð tvö og 72% á Skjá einn, samkvæmt nýrri könnun frá Gallup. Fréttir Ríkissjónvarpsins voru vinsælasta sjónvarpsefnið en 44,3% horfðu á þær. 14.9.2004 00:01
Steingrímur mótmælir Steingrímur J. Sigfússon formaður vinstri grænna segir að hugmyndafræði stjórnarflokkkanna í málefnum Landssímans, gangi út á að skjóta fyrst og spyrja svo. Ef einkavæða eigi Landssímann áður en klárað verður að byggja upp viðunandi dreifikerfi sé verið að snúa hlutunum á haus. 14.9.2004 00:01
Fjölgar í fátækrahverfum Fjöldi þeirra sem búa í fátækrahverfum mun að líkindum tvöfaldast fram til ársins 2030, og segja sérfræðingar Sameinuðu þjóðanna ástæðu til að óttast að fátækrahverfi verði gróðrarstía öfgamanna. 14.9.2004 00:01
Misskilningur hjá Kennarasambandi Talsmenn Íslandsbanka og Sjóvá Almennra segja viðbrögð Kennarasambandsins við fyrirhuguðum heilsuskóla fyrir grunnskólabörn, ef til kennaraverkfalls kemur, koma á óvart og að þau hljóti að vera byggð á misskilningi. Fyrirtækin séu ekki aðilar að vinnudeilunni og þyki miður að vera dregin inn í þá umræðu. 14.9.2004 00:01
Menntun á Íslandi minni en í OECD Þrjátíu prósent Íslendinga hafa ekki lokið neinu framhaldsnámi en meðaltalið í OECD löndunum er nítján prósent. Einungis í fjórum löndum er meðaltalið hærra, í Mexíkó, Portúgal, Spáni og Tyrklandi. Litið er svo á að þessi hópur eigi erfitt uppdráttar og eigi á hættu að sitja eftir í nútíma þjóðfélagi sem krefjist menntaðs vinnuafls. 14.9.2004 00:01
Arnold bannar náriðla Náriðlar mega ekki lengur stunda það tómstundagaman sitt að eiga mök við lík í Kaliforníu-ríki í Bandaríkjunum. Arnold Schwarzenegger, ríkisstjóri þar, undirritaði í gær lög sem banna þá iðju. 14.9.2004 00:01
Launanefnd rithöfunda gagnrýnd Umboðsmaður alþingis telur að launanefnd rithöfunda í fyrra hafi ekki fullnægt þeim kröfum sem gera þurfi til undirbúnings ákvarðana um úthlutanir úr sjóðnum. Höfundur sem ekki fékk úthlutun kvartaði til umboðsmanns og taldi höfnunina ekki byggjast á málefnalegum sjónarmiðum. 14.9.2004 00:01
Jón formaður Einkavæðingarnefndar Jón Sveinsson lögfræðingur verður næsti formaður Einkavæðinganefndar. Hann tekur við af Ólafi Davíðssyni ráðuneytisstjóra Forsætisráðuneytisins sem gengt hefur formennsku undanfarin ár. Jón Sveinsson hefur átt sæti í nefndinni um tíma. Stærsta verkefnið framundan hjá nefndinni er fyrirhuguð einkavæðing Landssímans. 14.9.2004 00:01
Tillaga D-lista felld Fulltrúar Reykjavíkurlistans felldu í dag tillögu sjálfstæðismanna, um að hætt yrði við að fresta mislægum gatnamótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar. Sjálfstæðismenn vilja að gatnamótin verði skilgreind sem forgangsframkvæmd og markvisst haldið áfram því ferli sem þegar er hafið með mati á umhverfisáhrifum. 14.9.2004 00:01
Fer Ivan til Florida? Ívan sneyddi snyrtilega hjá Kúbu í nótt, íbúum og yfirvöldum til mikils léttis. Bylurinn er gríðarkraftmikill og því hefði yfirreið hans getað valdið miklum usla. Mikið rok og rigning gerðu Kúbverjum þrátt fyrir þetta lífið leitt og geysiháar öldur gengu langt inn á land. 14.9.2004 00:01
Starfsumsókn í MyDoom veiru Þrjú ný afbrigði af MyDoom veirunni hafa skotið upp kollinum og þau hafa ekki aðeins að geyma hefðbundnar hættulegar veirur heldur einnig bón um atvinnu. Nýju afbrigðin kallast MyDoom U, V og Q og þau freista þess að sýkja tölvur með svokölluðum trójuhesti, Surila, sem gæfi tölvuþrjótum kleift að taka yfir stjórn tölvur og nota þær ýmist til að senda ruslpóst eða hópsendingar til að kaffæra póstþjóna. 14.9.2004 00:01
Hryðjuverkamyndir birtar Myndir úr öryggismyndavélum Atocha lestarstöðvarinnar í Madrid sem varð fyrir barðinu á hryðjuverkamönnum þann 11. mars hafa verið birtar opinberlega í fyrsta sinn. Myndirnar, sem eru 6 talsins, sína ringulreiðina sem átti sér stað fyrstu mínúturnar eftir árásirnar. 14.9.2004 00:01
Netið að hrynja undan álagi Fréttirnar sem Netnotendur vilja ekki heyra: Veraldarvefurinn er að hruni kominn. Þannig hljóðar upphaf fréttar í breska dagblaðinu The Guardian í morgun. Vitnað er í ummæli Patricks Gelsinger, tækistjóra hjá örgjörvarisanum Intel, en hann sagði að Netið gæti ekki lengur ráðið við umferðarþungann sem fer um kerfið. 14.9.2004 00:01
Yahoo! kaupir Musicmatch Netfyrirtækið Yahoo! greindi frá því í dag að fyrir dyrum stæðu kaup á einkafyrirtækinu Musicmatch. Með kaupunum hyggst Yahoo! efla tónlistarþjónustu fyrirtækisins á Netinu en Musicmatch hefur boðið Netnotendum hugbúnað að til að stýra stafrænum lagasöfnum og hlusta á útvarpsstöðvar á Netinu. 14.9.2004 00:01
47 létust í bílsprengingu 47 fórust og 114 særðust þegar mjög öflug bílsprengja sprakk skammt frá aðalstöðvum lögreglunnar í Bagdad í morgun. Þetta er mannskæðasta árás í hálft ár í Írak. Fjöldi fólks var á markaðnum auk þess sem löng röð umsækjenda um störf var við lögreglustöðina þegar sprengjan sprakk. 14.9.2004 00:01
Rannveig forsetaefni Á fundi Íslandsdeildar Norðurlandaráðs í dag var ákveðið samhljóða að Rannveig Guðmundsdóttir yrði tilnefnd sem forsetaefni ráðsins og Jónína Bjartmarz sem varaforsetaefni fyrir starfsárið 2005. Formlega verður kosið í embættin á þingi Norðurlandaráðs í Stokkhólmi 1. til 3. nóvember næstkomandi en Ísland fer með forsæti Norðurlandaráðs á næsta ári. 14.9.2004 00:01
Davíð kveður sem forsætisráðherra Davíð Oddsson stýrði sínum síðasta ríkisstjórnarfundi sem forsætisráðherra í morgun, en hann lætur af embættinu á morgun, og sest þá í stól utanríkisráðherra, og Halldór Ásgrímsson, sem gegnt hefur embætti utanríkisráðherra í níu ár, tekur við lyklavöldunum í Stjórnarráðinu. 14.9.2004 00:01
Í ljónagryfju Gestum í dýragarði í Sydney í Ástralíu brá í brún þegar þeir urðu vitni að því, þegar ungur maður klifraði yfir girðinguna sem umlykur leiksvæði ljónanna í garðinum. Þegar hann var kominn yfir girðinguna dró hann upp gamla biblíu og gerði sig líklegan til að reyna að klappa ljónunum. 14.9.2004 00:01
Gríðarlegar tekjur af stangveiði Tekjur af stangveiði hér á landi skila þjóðarbúinu allt að níu milljörðum króna á ári. Þetta kemur fram í nýrri úttekt Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands. Umsvif stangveiða skapa um eittþúsund störf á ári og þær geta skipt sköpum um hvort byggð haldist á ákveðnum svæðum landsins. 14.9.2004 00:01
Heilsuskóli er verkfallsbrot Kennarasambandið telur það verkfallsbrot ef fyrirtæki bjóða upp á barnagæslu fyrir starfsmenn meðan á kennaraverkfalli stendur. Íslandsbankamenn lýsa undrun sinni yfir þessari afstöðu. 14.9.2004 00:01
Tek við góðu búi Sigríður Anna Þórðardóttir tekur við embætti umhverfisráðherra í dag. Hún hlakkar til að takast á við starfið enda umhverfismálin vaxandi málaflokkur. </font /></b /> 14.9.2004 00:01
Jón byrjar á Símanum Jón Sveinsson verður næsti formaður einkavæðingarnefndar. Stærsta verkefni hans verður að selja Símann. Þingmenn Framsóknarflokksins hafa sett það skilyrði fyrir sölunni að lokið verði við uppbyggingu á dreifikerfi fyrirtækisins. Dreifikerfi er hins vegar loðið hugtak og ekki á hreinu við hvað er átt. 14.9.2004 00:01
Tveir reikningar Valgerðar Skipulagsstofnun segir að með rafskautaverksmiðju í Hvalfirði verði losunarheimildum Íslands samkvæmt Kyoto-bókuninni nærri náð. Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra segir þetta þó ekki koma í veg fyrir álver á Norðurlandi þar sem sú mengun færist á annan reikning. 14.9.2004 00:01
Kveikt í Brekku Eldur sem kom upp í bænum Brekku í Hvalfirði aðfararnótt mánudags var af völdum íkveikju. 14.9.2004 00:01