Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Kjaraviðræður á viðkvæmu stigi Viðræður samningsnefnda grunnskólakennara og sveitarfélaga eru á mjög viðkvæmu stigi. Þær hafa sammælst um að Ásmundur Stefánsson ríkissáttasemjari greini frá niðustöðu funda þeirra. 14.9.2004 00:01
SA segja fyrirtækin í rétti Kennarasamband Íslands telur að um skýlaust verkfallsbrot sé að ræða bjóði fyrirtæki eða starfsmannafélög upp á gæslu fyrir börn komi til verkfalls. Þessi áform séu í það minnsta siðlaus ef ekki lögbrot. Samtök atvinnulífsins segja að samkvæmt vinnurétti sé fyrirtækjum það heimilt. 14.9.2004 00:01
Hægt að afstýra verkfalli Hægt væri að afstýra kennaraverkfalli ef umræður um vinnutíma og kennsluskyldu væru teknar út af samningaborðinu. Það segir Gísli Baldvinsson, námsráðgjafi í Síðuskóla á Akureyri og fyrrum formaður Kennarafélags Reykjavíkur. 14.9.2004 00:01
Hefur aflétt óðalskvöðum Sýslumaður hefur aflétt óðalskvöðum vegna Brautarholts númer fimm og tíu á Kjalarnesi en þar er löglegur handhafi eignanna svínabúið á Brautarholti. Í síðasta mánuði stöðvaði sýslumaður uppboð á hluta jarðarinnar Brautarholts þar sem jörðin lyti lögum um óðalsjarðir. 14.9.2004 00:01
Sló mann með glerglasi Rúmlega tvítugur maður hefur verið ákærður af ríkissaksóknara fyrir sérlega hættulega líkamsárás. Hann er sakaður um að hafa slegið annan mann í höfuðið með glerglasi þannig að glasið brotnaði. Málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjaness í gær. 14.9.2004 00:01
Ekki draumastarf stjórnmálamanns Halldór Ásgrímsson hefur setið lengst utanríkisráðherra og verið ráðherra alls í rúm sautján ár. Hann tekur við embætti forsætisráðherra í dag og segir að embættinu fylgi mikil ábyrgð og það reyni mikið á. Hann segir það ekki endilega draumastarf hvers stjórnmálamanns. </font /></b /> 14.9.2004 00:01
Blandaðist í gjaldþrotið "Þegar hringt er í verslunina svarar skiptastjóri Véla og þjónustu þannig að gjaldþrot þeirra hefur komið illa við okkur," segir Róbert Schmidt, verslunarstjóri sportbúðarinnar Títan. 14.9.2004 00:01
Halldór forsætisráðherra Halldór Ásgrímsson tekur við embætti forsætisráðherra í dag. Hann segir að undirbúningur að aðildarviðræðum um inngöngu Íslands í Evrópusambandið sé þegar hafinn þótt ekki sé víst hvenær af þeim verði. </font /></b /> 14.9.2004 00:01
Krafist 290 milljóna í bætur Fjórir menn hafa verið ákærðir af ríkislögreglustjóra fyrir brot á útvarpslögum sem framkvæmdastjórnarmenn Kaplavæðingar. Mennirnir fjórir eru sakaðir um að hafa tekið á móti læstum útsendingum frá átta erlendum sjónvarpsstöðvum, opnað þær með myndlyklum, í þeim tilgangi að veita einstaklingum sem ekki voru áskrifendur aðgang að útsendingunum. 14.9.2004 00:01
Blair áhyggjufullur Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, segist hafa miklar áhyggjur af loftslagsbreytingum í heiminum. í viðtali við BBC segir hann að bregðast verði við breytingunum sem fyrst. Tíminn sé að renna út. 14.9.2004 00:01
Stólaskipti á ríkisráðsfundi Ríkisráð Íslands hefur verið boðað til fundar klukkan eitt í dag og lætur Davíð Oddsson þá af embætti forsætisráðherra eftir 13 ára starf. Samkvæmt venju er síðan strax haldinn nýr ríkisráðsfundur þar sem ráðuneyti Halldórs Ásgrímssonar tekur formlega við. 14.9.2004 00:01
Nýr formaður einkavæðingarnefndar Jón Sveinsson, hæstaréttarlögmaður verður formaður einkavæðingarnefndar. Halldór Ásgrímsson, sem tekur við embætti forsætisráðherra í dag sagðist gera ráð fyrir því að Jón yrði formaður en hann hefur setið í nefndinni um árabil. 14.9.2004 00:01
Davíð til Slóveníu Davíð Oddsson, sem tekur við embætti utanríkisráðherra í dag, fer til Slóveníu í boði forseta landsins 20. september. 14.9.2004 00:01
Heimsmet í áfengissköttum "Við eigum heimsmetið," segir Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri Félags íslenskra stórkaupmanna, um áfengisskatta á Íslandi í samanburði við önnur lönd. Skattar á sterkt vín og léttvín eru hvergi hærri en hér. Aðeins Norðmenn eru fyrir ofan okkur í álagningu á bjór. 14.9.2004 00:01
Búist við miklu tjóni á Kúbu Fellibylurinn Ívan er nú kominn í hóp öflugustu fellibylja sögunnar. Nokkuð hefur dregið úr styrk hans á síðustu dögum en skaðinn er mikill á mörgum eyjum í Kyrrahafinu. </font /></b /> 13.9.2004 00:01
Helstu deilumál verið afgreidd "Nú er fiskveiðistefnan komin í eitt kerfi, stærstu deilumálin hafa verið afgreidd og nú er tími til að horfa til framtíðar," segir Árni M. Mathiesen, sjávarútvegsráðherra. Hann segist ekki vita um neina aðra þjóð í heiminum þar sem útgerð er rekin með jafnmiklum myndarskap og á því eigi að byggja næstu áratugi. 13.9.2004 00:01
Fólk er forsenda lífs í miðbænum Kraftmiklir borgarar hafa ráðist í umfangsmikið átak til að byggja upp miðbæinn á Akureyri. Fjölga þarf íbúum miðbæjarsvæðisins um þrjú til fjögur þúsund. Vonir standa til að nýr miðbær verði til eftir fimmtán til tuttugu ár. </font /></b /> 13.9.2004 00:01
Pútín herðir tökin Vladímír Pútín, forseti Rússlands, hefur dregið lærdóm af hryðjuverkunum í Beslan, og telur nauðsynlegt að auka miðstýringu og völd Kremlar til að berjast gegn hryðjuverkavánni. Í leiðinni myndi hann auka enn völd sín í landinu. </font /> 13.9.2004 00:01
Verkfall yfirvofandi Mikið ber enn í milli í kjaradeilu grunnskólakennara og sveitarfélaga, en deilendur funduðu í átta klukkustundir hjá Ríkissáttasemjara í gær. Enn er aðeins verið að ræða málin vítt og breitt og frágangsvinna við einstök atriði er ekki komin í fullan gang. 13.9.2004 00:01
12 látnir eftir bílveltu Tólf manns fórust og álíka margra er saknað, eftir að hópferðabíll valt ofan í árgil í Nepal í morgun. Slysið varð um 250 kílómetra vestur af Kathmandu og voru að minnsta kosti níu erlendir ferðamenn um borð í bílnum. 13.9.2004 00:01
Pútín vill aukin völd Vladimír Pútín, forseti Rússlands, vill breyta lögum um val á ríkisstjórum og kosningum til neðri deildar rússneska þingsins, Dúmunnar. Báðar breytingar eru taldar hafa í för með sér aukin völd fyrir forsetann og bandamenn hans. 13.9.2004 00:01
Ivan stefnir á Kúbu Fellibylurinn Ivan, stefnir nú með vaxandi hraða á Kúbu eftir að hafa valdið mikilli eyðileggingu á Keiman eyjum í gær. Þök sviftust af húsum, tré rifnuðu upp með rótum, gríðarstórar flóðöldur mynduðust og þurftu margir eyjaskeggjar að flýja upp á húsþök til að komast undan vatnsflaumi fellibylsins. 13.9.2004 00:01
Sprengingin vegna framkvæmda Gríðaröflug sprenging í fjallahéraði í Norður-Kóreu fyrir helgi var ekki kjarnorkusprenging, heldur var heilt fjall sprengt til að rýma fyrir virkjun. Þessu halda norður-kóresk stjórvöld fram, en sunnan landamæranna er orðum þeirra tekið með fyrirvara. 13.9.2004 00:01
Enn árás í Fallujah Bandarískar hersveitir gerðu enn á ný árásir á bækisstöðvar skæruliða í borginni Fallujah í morgun, og sögðu talsmenn hersins nokkra háttsetta stuðningsmenn Abu Musabs al-Zarqawis hafa setið þar að fundi. 13.9.2004 00:01
Mannát í Sambíu Fullorðinn maður hefur verið handtekinn í Sambíu fyrir að grafa upp lík barnabarns síns, skera af því kjöttægjur og elda sér til matar. Veiðimenn komu að manni sem át það sem virtust vera kjöttægjur í kirkjugarði norður af höfuðborginni Lusaka. Við eftirgrennslan kom í ljós að maðurinn hafi grafið upp lík barnabarns síns, sem lést í júlí, sauð af því bita og lagði sér til munns. Lögreglan handtók manninn þegar í stað og kann engar skýringar á framferði hans, en hann mun ekki áður hafa sýnt nein merki um sturlun. 13.9.2004 00:01
Meiri svefn fyrir sænska unglinga Sænskir sérfræðingar í svefnvenjum leggja til að unglingar fái að sofa betur út á morgnanna og mæta seinna í skólann en nú tíðkast. Þetta er skoðun þeirra í kjölfar rannsókna, sem leiddu í ljós að um það bil annarhver nemandi í níunda bekk grunnskóla mætir illa sofinn í skólann. </font /> 13.9.2004 00:01
Ívan heldur áfram að skemma Fellibylurinn Ivan sækir í sig veðrið og stefnir nú hraðbyri í áttina að Kúbu. Fjörutíu og sjö hafa farist í veðurofsanum í Karíbahafi. 13.9.2004 00:01
Kaupir Baugur Hobbs? Baugur- Group hefur áhuga á að kaupa bresku kvennfataverslanakeðjuna Hobbs, en andvirði hennar er talið ver ellefu til þrettán miljarðar króna að sögn Financial Times. Ársvelta fyrirtækisins er rúmlega sex milljarðar króna og var hagnaður tólf hundruð milljónir króna í fyrra. 13.9.2004 00:01
Tölvupóstsstríð í fyrirtækjum Tölvupóstur er orðinn eitt skæðasta vopnið í valdabaráttu innan fyrirtækja, segir í niðurstöðum nýrrar rannsóknar frá Monash háskólanum í Ástralíu. Rannsóknin fólst í því að kanna hvernig starfsmenn fyrirtækja nota þessa algengu samskiptaleið en starfsmenn þriggja stórfyrirtækja á mismunandi sviðum voru undir smásjá vísindamanna. 13.9.2004 00:01
Íslandsbanki með heilsuskóla Stjórnendur og starfsmenn Íslandsbanka ætla að bjóða börnum starfsmanna upp á svonefndan heilsuskóla, ef til kennaraverkfalls kemur, til að létta áhyggjum af foreldrum, að sögn Herdísar Pálu Pálsdóttur, deildarstjóra í Íslandsbanka: 13.9.2004 00:01
Stjórnin vill efla dreifikerfið Vilji er fyrir þvi innan beggja stjórnarflokka til að nýta hluta af því fé sem fæst með sölu Símans til að standa að útboði til að efla dreifikerfið. Öll símafyrirtæki gætu þá boðið í verkið og þannig yrði tryggt að allir landsmenn hefðu jafnan aðgang að gagnaflutningum. 13.9.2004 00:01
Samstarf um farsímasjónvarp Stærstu farsímafyrirtæki heims hafa tekið höndum saman um þróun farsímasjónvarps. Fulltrúar Nokia í Finnlandi greindu nýlega frá því að Motorola, NEC, Siemens og Sony Ericsson hefðu sett á laggirnar bandalag, Open Mobile Alliance, til að þróa sjónvarpsþjónustu fyrir farsíma og aðra farandgripi. 13.9.2004 00:01
Ísjaki á leið til Parísar Starfsmenn verktakafyrirtækisins Ístaks og skipafélagsins Samskipa hafa í morgun unnið að því að ná tuttugu tonna ísjaka upp úr Jökulsárlóni, sem bera á hróður Íslands langt út fyrir landsteinana, að sögn Ara Trausta Guðmundssonar jarðvísindamanns 13.9.2004 00:01
Milljónasektir vegna afturvirkni Tollayfirvöld endurskoðuðu nýlega tolla á matvöru sem flutt hafði verið til landsins í áratugi. Ákvörðunin var afturvirk sex ár aftur í tímann, eins og lög gera ráð fyrir og þurfti viðkomandi verslunarfyrirtæki að greiða fjörutíu og eina milljón í viðbótartolla löngu eftir að varan var seld. 13.9.2004 00:01
Ómeiddur eftir bruna Maður slapp ómeiddur út úr brennandi húsi á Brekku í Hvalfirði í nótt, þar sem hann vaknaði í tæka tíð. Maðurinn var einn i húsinu og vaknaði fyrir tilviljun við eitthvað snark og logaði þá grindverk á verönd fyrir utan gluggann. Fór hann strax út og varð ekki meint af reyk. 13.9.2004 00:01
Höfundur Sasser veirunnar ákærður Meintum höfundi Sasser veirunnar hefur verið birt formleg ákæra. Þýski saksóknarinn tíundar í ákæruskjalinu brot þýska námsmannsins Sven Jaschan og ber á hann þær sakir að hafa unnið skemmdarverk á tölvum, hagrætt skjölum og truflað tölvukerfi í almannaþágu. </span /> 13.9.2004 00:01
Snigill í Umferðarráð Samgönguráðherra hefur skipað fulltrúa úr Sniglunum, Bifhjólasamtökum Lýðveldsins í umferðarráð. Bifhjólasamtök lýðveldisins, Sniglar, hafa tilnefnt Dagrúnu Jónsdóttur sem fulltrúa sinn í ráðinu og er varamaður hennar James Alexandersson. 13.9.2004 00:01
Mokveiði á Halamiðum Ekkert lát er á síldveiðinni á Halamiðum, eftir að fjölveiðiskipið Vilhelm Þorsteinsson fann þar fyrstu síldina á þessu hausti fyrir helgi. Síðan þá er Vilhelm búinn að veiða um þúsund tonn, en hefði getað verið búinn að veiða mun meira. </font /> 13.9.2004 00:01
Mýs og lyklaborð lesa fingraför Microsoft hyggst framleiða og markaðssetja innan tíðar tölvumýs og lyklaborð sem verða þeirrar náttúru að þau lesa fingraför. 13.9.2004 00:01
Lífstíðarfangelsi fyrir Netklám Stjórnvöld í Kína hafa hert baráttuna gegn Net- og farsímaklámi með því að hóta þeim sem dreifa slíku efni allt að lífstíðarfangelsi,að því er fram kemur hjá Xinhua fréttastofunni. 13.9.2004 00:01
Guð blessi Netið, segir Björk Íslenska stórstirnið Björk er ekki ánægð með hljómplötuiðnaðinn. Hún þakkar Guði fyrir Netið og heitir því að halda á lofti sjóræningjafána. Þannig hefst frétt í norska Netmiðlinum ITAvisen sem vitnar í viðtal Vals Gunnarssonar á heimasíðu Bjarkar þar sem hún segir álit sitt á baráttu hljómplötuiðnaðarins gegn Netmiðlun tónlistar. 13.9.2004 00:01
Ferðamenn versla meira Gjaldeyristekjur vegna neyslu erlendra ferðamanna jukust um 11,3% á fyrri helmingi ársins. Tekjurnar á fyrri hluta ársins voru alls 14.874 milljónir króna á móti 13.896 milljónum króna á sama tíma í fyrra. Aukningin á milli ára er því um 1 milljarður í krónum talið eða 11,3%. 13.9.2004 00:01
Atvinnuleysi stendur í stað Um tvö komma níu prósent landsmanna voru atvinnulaus í ágúst sem er jafn hátt hlutfall og á sama tíma í fyrra. Þrátt fyrir mikinn hagvöxt virðist því ekki draga úr atvinnuleysi. 13.9.2004 00:01
9 kílómetra vegur við Sandgerði Vegagerðin ætlar að leggja níu kílómetra langan veg milli Garðskagavegar og Hafnarvegar. Garðskagavegur endar nú við Stafnes um átta kílómetrum sunnan við Sandgerði. 13.9.2004 00:01
Hvít hjón eignast svört börn Ítölsk hjón með hvítan hörundslit krefjast nú bóta frá sjúkrahúsi sem sérhæfir sig í tæknifrjóvgunum, þar sem þeim fæddust hörundsdökkir tívburar. DNA rannsókn hefur nýlega leitt í ljós að faðir tvíburanna er frá Norður-Afríku. 13.9.2004 00:01