Innlent

Davíð kveður

Davíð Oddsson fráfarandi forsætisráðherra stýrði síðasta ríkisstjórnarfundi sínum á þessu kjörtímabili í Stjórnarráðinu í morgun. Hann segist hlakka til nýrra verkefna og vera sáttur við umskiptin. Hann viðurkennir að hafa stundum reynst erfiður en hafi orðið umburðarlyndari í seinni tíð. Fundurinn hófst kluukkan hálfftíu í morgun og lauk ekki fyrr en á tólfta tímanum. Rétt áður en fundinum lauk heyrðist hressilegt lófatak frá fundarherbergingu og sagði fráfarandi forsætisráðherra að ríkisstjórninni hefði sem slíkri verið klappað lof í lófa. Davíð sagðist vera ánægður með þau umskipti í lífi sínu sem nú tækju við og sagðist afar sáttur við sinn tíma í forsætisráðuneytinu.Hann sagðist hlakka til að takast á við ný verkefni í utanríkisráðuneytinu, sem yrðu öðruvísi en þau sem hann hefði unnið að í forsætisráðuneytinu. Hann segir alltaf ákveðna spennu fylgja því að byrja á nýjum vinnustað, það þurfi að setja sig inn í nýja hluti og vinnan verði öðruvísi. Hann segist hlakka til að hitta nýja samstarfsmenn og læra á þá. Davíð segir allt öðruvísi að vera forsætisráðherra en fagráðherra, því samskipti við hina ráðherrana séu mun meiri og því sé forsætisráðherra eins konar stóra mamma! Hann segir að sér hafi oftast nær þótt gaman í starfi sínu sem forsætisráðherra og hann sé þakklátur fyrir þá miklu þolinmæði sem sér hafi verið sýnd, enda hafi hann ekki endilega alltaf verið auðveldur maður í lund, þó að það hafi snarlagast í seinni tíð. Bæði þessi ríkisstjórn og sú sem áður var hafi sýnt sér heilmikið umburðarlyndi, þó að hann hafi átt það til að rjúka upp, sem sé þó sem áður segir orðið sjaldgæfara nú í seinni tíð. Halldór Ásgrímsson fráfarandi utanríkisráðherra og verðandi forsætisráðherra sagðist einnig hlakka mikið til þess að setjast í nýja ráðherrastólinn í morgun og sagðist líta þessi tímamót afar björtum augum. Hann sagist ekki kvíða því að hafa sinn fyrrverandi yfirmann, sem sinn undirmann á næstunni, Þvert á móti sagðist hann ekki efast um gott samstarf hér eftir sem hingað til.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×