Gríðarlegar tekjur af stangveiði 14. september 2004 00:01
Tekjur af stangveiði hér á landi skila þjóðarbúinu allt að níu milljörðum króna á ári. Þetta kemur fram í nýrri úttekt Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands. Umsvif stangveiða skapa um eittþúsund störf á ári og þær geta skipt sköpum um hvort byggð haldist á ákveðnum svæðum landsins. Landbúnaðarráðherra vill beita sér fyrir átaki til að efla stangveiðar í landinu. Í skýrslu Hagfræðistofnunar sem unnin var að beiðni Landssambands veiðifélaga kemur fram að beinar, óbeinar og afleiddar tekjur af stangaveiði íslenskra og erlendra veiðimanna eru á milli 8 og 9 milljarðar króna. Óðinn Sigþórsson, formaður landssambands veiðifélaga segir þetta mjög mikilvægar tekjur. Hann segir veiðar styðja við þúsund störf í landbúnaði. Í skýrslunni kemur fram að sums staðar eru tekjur af lax- og silungsveiði lífsnauðsynlegar til að byggð geti áfram dafnað. Óðinn segir þetta er mjög mikilvægan atvinnuþátt, til dæmis á Vesturlandi, þar sem að tekjur af stangaveiði séu um það bil 50% af hreinum tekjum í landbúnaði Á fundinum kom fram að um 60 þúsund Íslendingar stundi stangveiði í frístundum og að á síðasta ári hafi allt að 7 þúsund útlendingar komið hingað til lands til að veiða á stöng. Óðinn telur að auka megi enn frekar tekjur af stangaveiði, sérstaklega séu mikil tækifæri til að fjölga silungsveiðimönnum, jafnt íslenskum sem útlenskum. Hann segir það færast í vöxt að útlendingar nýti sér þennan afþreyingarmöguleika og þeir séu farnir að koma gagngert hingað til lands til þess að stunda stangveiði. Á fundinum var vakin athygli á því að landbúnaðarráðherra hafi beitt sér fyrir átaki í þágu hestsins og kindarinnar, og lýst var eftir átaki í þágu lax og silungs. Guðni Ágústsson svaraði því til að hann hefði mikinn áhuga á að beita sér fyrir slíku átaki í samstarfi við hagsmunaaaðila, enda væri um eina sterkustu atvinnugrein íslenskra sveita að ræða.
Fréttir Innlent Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Innlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Innlent Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Erlent Vinasamtök al-Qaeda sögð reyna að steypa ríkisstjórninni af stóli Erlent Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Innlent Fleiri fréttir „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Sjá meira