Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hörð átök í Najaf Bandarískar herþyrlur skutu á sjíta múslima í íröksku borginni Najaf í dag, nokkrum klukkustundum eftir að írakski forsætisráðherrann hafði hvatt uppreisnarmenn til að leggja niður vopn. Hann fór óvænt í stutta heimsókn til borgarinnar í dag, en þar hafa geisað hörð átök í fjóra daga. 8.8.2004 00:01
Uppreisnarmenn rændu Írana Uppreisnarmenn í Írak segjast hafa rænt írönskum stjórnarerindreka. Írönsk yfirvöld hafa staðfest að starfsmanns þeirra sé saknað en hafa ekki gefið upp hvort þau telja að honum hafi verið rænt. Maðurinn hvarf á miðvikudag í síðustu viku þegar hann var á leið til Karbala frá Bagdad. 8.8.2004 00:01
Dreifa lyfjum vegna geislunar Ísraelsk yfirvöld dreifa lyfjum til varnar veikindum vegna geislavirkni í byggðarlögum nálægt kjarnaofnum sínum. Þetta er gert í því skyni ef ofnarnir munu leka. Lyfin hafa hingað til verið í vörslu yfirvalda en ákveðið var að þeir sem búa næst ofnunum eigi að hafa þau við höndina til að stytta viðbragðstímann ef eitthvað kemur upp á. 8.8.2004 00:01
Davíð líklega útskrifaður á morgun Búist er við að forsætisráðherra verði útskrifaður af sjúkrahúsi á morgun. Hann þarf ekki að undirgangast geisla- eða lyfjameðferð vegna þeirra illkynja æxla sem fjarlægð voru. Líklegast er talið að hann taki sæti í ríkisstjórn á ný. 8.8.2004 00:01
Límdi sig við kærustuna Þýskur maður sem stendur til að framselja frá Spáni til Þýskalands límdi sig við kærustu sína til að fresta fyrirtöku málsins og vekja athygli á því. 7.8.2004 00:01
Stunginn í Hafnarstræti 19 ára piltur var stunginn með hnífi í Hafnarstræti í Reykjavík um klukkan fimm í morgun. Hann var fluttur á slysadeild þar sem gert var að sárum hans. Meiðsli hans voru ekki talin það alvarleg að ástæða þætti til að leggja hann inn. 7.8.2004 00:01
Opinber heimsókn forsætisráðherra Opinber heimsókn forsætisráðherra Finnlands, Matti Vanhanen, hingað til lands hefst í dag. Hún hefst með hádegisverði í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu en eftir hádegi verður farið með Vanhanen og eiginkonu hans í skoðunarferð til Nesjavalla og Þingvalla. 7.8.2004 00:01
Vilja afnema 24. ára reglu Héraðsformenn danska Sósíaldemókrataflokksins vilja afnema eða milda svokallaða tuttugu og fjögurra ára reglu í útlendingalögum. Reglan er sams konar og sú sem rædd var hér á landi þegar til umræðu var beyting á útlendingalögum á Alþingi. 7.8.2004 00:01
Hryðjuverkamenn gefa út geisladisk Hryðjuverkasamtök undir stjórn Jórdanans al-Zarqawi, hafa gefið út margmiðlunardisk, þar sem múslimar eru hvattir til vopna í baráttunni gegn krossförum í Írak, eins og það er orðað. Á tölvugeisladiskinum, sem er 45 mínútur að lengd, er einnig hótað að drepa forsætisráðherra íröksku bráðabirgðastjórnarinnar. 7.8.2004 00:01
Óttast fjölgun kúariðu í mönnum Breskir vísindamenn óttast að kúariða í mönnum, eða Kreuzfeld Jakobs veikin, breiðist út í mönnum á næstunni með áður óþekktum hraða. Nýjar rannsóknir sýna að sjúkdómurinn getur smitast í gegnum blóðgjafir og einnig hefur komið í ljós að mun fleiri genategundir eru móttækilegar fyrir sjúkdómnum en áður var talið. 7.8.2004 00:01
Myndband með aftöku birt Myndband af því þegar bandarískur gísl var hálshöggvinn af mannræningjum í Írak, var birt í morgun, á vefsíðu samtaka tengdum al-Qaeda. Á myndbandinu segir ungur maður að hann heiti Benjamin Ford og sé frá San Fransisco. Hann segir að verði bandarískir hermenn ekki kallaðar frá Írak verði þeir allir aflífaðir á þennan hátt. 7.8.2004 00:01
Rændir af mönnum í löggubúningi Tveir mexíkóskir myndatökumenn segja að þrír menn hafi rænt sig í Aþenu í Grikklandi í gærkvöldi, og að ræningjarnir hafi dulbúið sig sem lögreglumenn. Myndatökumennirnir voru stöðvaðir af þremur mönnum sem töluðu spænsku og báðu um skilríki. 7.8.2004 00:01
Eldur í hlöðu í Hólmatungu Eldur kom upp í hlöðu í Hólmatungu í Jökulsárhlíð laust fyrir klukkan átta í morgun. Slökkvilið Vopnafjarðar og Egilsstaða voru kvödd á staðinn ásamt björgunarsveitarmönnum. Eldurinn kom upp í ópökkuðum heyrúllum í hlöðunni og gekk afar erfiðlega að slökkva eldinn að sögn Egilsstaðalögreglu. 7.8.2004 00:01
Gert að loka al-Jazeera í Bagdad Írakska bráðabirgðastjórnin hefur skipað sjónvarpsstöðinni al-Jazeera að loka útibúi sínu í Bagdad í mánuð. Innanríkisráðuneytið greindi frá þessu í morgun og segir þetta gert til að koma í veg fyrir að arabíska sjónvarpsstöðin sýni myndir af gíslatökum, sem sé hvetjandi fyrir mannræningja. Höfuðstöðvar al-Jazeera eru í Qatar. 7.8.2004 00:01
Gay Pride gangan í dag Búist er við um 20 þúsund manns í miðbæ Reykjavíkur í dag þegar gleðiganga Hinsegin daga fer niður Laugaveginn. Hinsegin dagar, eða Gay Pride, eru haldnir hátíðlegir víða um heim um þetta leiti árs. Hápunkturinn hér á landi er Gleðigangan niður Laugaveg, 7.8.2004 00:01
SÁÁ segir ástandið óviðundandi Heilbrigðisyfirvöld taka engan þátt í kostnaði við meðferð ungra sprautufíkla, sem háðir eru ópíumefnum eins og morfíni og heróíni, og sækja meðferð á göngudeild við Sjúkrahúsið Vog. SÁÁ segir ástandið óviðunandi. 7.8.2004 00:01
Fiskidagurinn mikli á Dalvík í dag Fiskidagurinn mikli er haldinn með pompi og pragt á Dalvík í dag. Þetta er í fjórða sinn sem Dalvíkingar halda þennan dag á hafnarsvæðinu. Júlíus Júlíusson er einn af skipuleggjendum hátíðarinnar. Hann segir að allt gangi eins og í fallegu ævintýri, logn og sól sé á Dalvík í dag og allir séu glaðir. 7.8.2004 00:01
Búist við auknum flóðum Búist er við að flóðin í Jöklu aukist eftir helgi. Sigurður Arnalds, talsmaður Landsvirkjunar við Kárahnjúkavirkjun segir að ástandið eystra sé þó gott núna miðað við síðustu daga. Hann segir að talsvert hafi sjatnað í ánni. Minna væri í henni í gær en í fyrradag og minna í dag en í gær. 7.8.2004 00:01
Falsaði eigin aftöku Tuttugu og tveggja ára Bandaríkjamaður falsaði myndband sem sýndi hann hálshöggvinn af mannræningjum í Írak. Sjálfur segist hann hafa notað gerviblóð og að um grikk hafi verið að ræða. Írakska bráðabirgðastjórnin hefur lokað útibúi arabískrar sjónvarpsstöðvar, vegna birtinga slíkra myndbanda. 7.8.2004 00:01
Sex lík í íbúð í Flórída Sex lík fundust á heimili í Flórída í Bandaríkjunum í gær og gengur morðinginn laus. Farið var að grennslast fyrir í íbúðinni eftir að einn íbúanna mætti ekki til vinnu. Fjórir menn og tvær konur, á aldrinum 18 til 30 ára, fundust látin og segir lögreglan að fólkið hafi ekki framið sjálfsmorð. 7.8.2004 00:01
Bakteríusýking völd að dauða 189 Slæm bakteríusýking hefur herjað á sjúkrahús og hjúkrunarheimili í Kanada á undanförnum mánuðum og er talið að 189 dauðsföll á 18 mánuðum, megi rekja til hennar, segir á fréttavefsíðu BBC í dag. 7.8.2004 00:01
Ekkert að bremsunum Ekkert var að öryggisbúnaði vörubifreiðarinnar sem fór fram af einbreiðri brú yfir Laxá í Laxárdal fyrr í vikunni. Tæknifræðingar Frumherja hafa rannsakað bifreiðina og að sögn Jóhannesar B. Björgvinssonar, lögregluvarðstjóra í Búðardal, var hemlabúnaður bílsins nýlegur, þrátt fyrir að dregist hefði að fara með bílinn í endurskoðun. 7.8.2004 00:01
Skandall í ólympíunefndinni Búlgarskur meðlimur Alþjóðaólympíunefndarinnar var í dag leystur frá störfum tímabundið, vegna ásakana um spillingu, sem komu fram í breskum heimildaþætti. Hann segist hafa spilað með í þeirri von að geta upplýst um mútutilraun. 7.8.2004 00:01
Nýr jarðbor tekinn í notkun Jarðboranir hafa tekið í notkun nýjan hátæknibor sem er sá stærsti hér á landi. Kaupverðið ásamt fullum búnaði er um 600 milljónir íslenskra króna. Í tilkynningu frá Jarðborunum segir að kaupin á bornum komi til vegna vaxandi verkefna innanlands sem utan og mikilvægi þess að standast fjölþjóðlega samkeppni. 7.8.2004 00:01
Uppreisnarmenn fá sakaruppgjöf Á næstu 30 dögum geta Írakar sem stutt hafa uppreisnarmenn fengið sakaruppgjöf. Þetta hefur verið tekið í lög og með þessu eiga minniháttar glæpamenn að geta hafið siðsamlegt líf á ný. Þeir sem geta sótt um sakaruppgjöf eru þeir sem versla með léttari vopn og sprengiefni auk þeirra sem hafa fjármagnað uppreisn að einhverju leiti. 7.8.2004 00:01
Aldrei jafn margir á Gay-pride Talið er að um 40.000 þúsund manns séu samankomnir í miðborg Reykjavíkur á hátíðahöldum Hinsegin daga. Fyrr í dag gengu þúsundir manna í skrúðgöngu frá Hlemmi og niður á Lækjartorg þar sem hátíðardagskrá hefur staðið yfir síðan rúmlega fjögur. 7.8.2004 00:01
Saman á ný eftir 7 ára fangelsi Kennslukonan Mary Kay Letourneau hefur fengið leyfi dómara í Seattle í Bandaríkjunum til að hitta sinn heittelskaða Vili Fualaau eftir sjö ára aðskilnað. Mary Kay er 43 ára og vakti ástarsamband hennar við Fualaau heimsathygli þegar það hófst fyrir 8 árum. Þá var hann einungis 13 ára gamall og nemandi Mary Kay. Hún varð ólétt og ól honum dóttur. 7.8.2004 00:01
Sprengjur í ferðamannabæjum Spánar Tvær litlar sprengjur sprungu í ferðamannabæjum á norðurströnd Spánar í dag. Engin meiðsl urðu á fólki en svo virðist sem ETA, hryðjuverkasamtök baskneskra aðskilnaðarsinna standi á bak við tilræðin og séu þar með að vakna til lífsins á ný. 7.8.2004 00:01
Mótorhjólahundur léttir lundu Chihuahua hundur á mótorhjóli léttir sjúklingum vistina, á sjúkrahúsi í Ohio í Bandaríkjunum. Hundurinn heitir Bangsi og fer um ganga spítalans á leikfangahjóli, sem er eftirlíking af Harley Davidson mótorhjóli. 7.8.2004 00:01
Höfrungar stranda í Flórída Um 30 höfrungar strönduðu á Palm Beach í Flórída í gær. Þeir strönduðu reyndar í annað sinn en áður höfðu hjálpsamir starfsmenn og gestir annars staðar á baðströndinni komið þeim á flot á ný. Höfrungarnir syntu um sex kílómetra leið norður með ströndinni en leituðu svo í land aftur. 7.8.2004 00:01
Frakkar búa sig undir mikinn hita Frakkar undirbúa sig fyrir væntanlega hitabylgju, en í fyrra létust um fimmtán þúsund manns vegna mikilla hita. Sérfræðingar hafa áhyggjur af því að ekki verði hægt að nýta um þriðjung sjúkraplássa vegna sumarfría í landinu. Í ágúst í fyrra fór hiti oft upp fyrir 40 gráður og spáð er svipaðri hitabylgju á næstunni. 7.8.2004 00:01
Aðsóknarmet á fiskidegi Aðsóknarmet var sett á Fiskideginum mikla á Dalvík í dag. Um þrjátíu þúsund manns voru á staðnum og framkvæmdastjórinn segir það aldrei hafa staðið tæpara með að eiga mat ofan í alla. Fiskidagurinn á Dalvík var haldinn í fjórða sinn. Fiskverkendur í Dalvíkurbyggð standa að þessum fjölskyldudegi 7.8.2004 00:01
Bitist um formannssæti Heimdallar Tveir ætla að bítast um formannsstólinn í Heimdalli, félagi ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík. Helga Árnadóttir gæti verið annar kvenkynsformaðurinn í sögu félagsins, en Bolli Thoroddsen segir Heimdall klíku örfárra sem breyti reglum eins og hentar 7.8.2004 00:01
Tryggingamiðstöðin áfrýjar dómi Tryggingamiðstöðin hefur áfrýjað til Hæstaréttar dómi Héraðsdóms Reykjavíkur um að félagið skuli greiða út líftryggingu konu, sem lést þegar henni var ýtt fram af svölum á Kanaríeyjum fyrir um tveimur árum. 7.8.2004 00:01
Spáð enn meira rennsli í Jökulsá Veðurstofan spáir enn meira rennsli í Jökulsá á Dal eftir helgi. Menn við Kárahnjúka búa sig undir það versta og hafa bætt hraustlega ofan á varnarstífluna. Verulega hefur dregið úr rennsli í ánni síðasta sólarhring. 7.8.2004 00:01
Hátt í 40 þúsund manns í göngunni Hátt í fjörtíu þúsund manns tóku þátt í Gleðigöngu Hinsegin daga niður Laugaveg í dag og hefur þátttaka aldrei verið meiri. Mikil samkennd ríkti í göngunni og segja hommar og lesbíur viðhorf samfélagsins gagnvart þeim hafa gjörbreyst á síðastliðnum árum. 7.8.2004 00:01
Ræddi Evrópumál við Halldór Matti Vanhanen, forsætisráðherra Finnlands segist hafa reifað reynslu Finna af aðild sinni að Evrópusambandinu við Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra á hádegisverðarfundi þeirra í ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu í gær. 7.8.2004 00:01
Varnargarður stenst vatnavexti Vinnu við að styrkja og breikka varnargarðinn við Kárahnjúkastíflu sem óttast var á tímabili að léti undan er nú lokið. 7.8.2004 00:01
Aldrei séð meiri fátækt "Ég hef verið við hjálparstörf í suðurhluta Afríku í fjögur ár og hef aldrei séð jafn mikla fátækt," segir Hjördís Guðbjörnsdóttir hjúkrunarfræðingur en hún er einn þriggja sendifulltrúa Rauða kross Íslands í Darfurhéraði í Súdan. Hjördís sinnir heilsugæslu í Abshok flóttamannabúðunum í norðurhluta Darfur en um 50 þúsund manns eru nú í búðunum og fer fjölgandi. 7.8.2004 00:01
Ráðherra segir af sér Dómsmálaráðherra Palestínu, Nahed Arreyes, sagði af sér í gær eftir að hafa verið sviptur lykilvöldum að eigin sögn. Þó hann hafi ekki minnst á Arafat í afsögn sinni er óánægja hans talin stafa vegna þess að Arafat stofnaði hliðstætt ráðuneyti fyrir nokkrum mánuðum og hefur því tögl og hagldir í dómskerfinu. 7.8.2004 00:01
Írakar veita sakaruppgjöf Íraska bráðabirgðastjórnin hefur veitt þeim sem hafa framið minniháttar afbrot sakaruppgjöf. Sakaruppgjöfin nær ekki til þeirra sem hafa gerst sekir um manndráp. Vonast er til að þetta verði til þess að lægja ófriðarbálið í landinu. 7.8.2004 00:01
Sviðsetti eigin aftöku Myndband sem sýndi arabíska vígamenn taka Bandaríkjamann af lífi og fjölmiðlar um allan heim sögðu frá reyndist vera sviðsett. </font /> 7.8.2004 00:01
Grjót þeyttist við sprengingu Möl og grjót þeyttust út á þjóðveginn á austanverðu Tjörnesi í nótt þegar sprengisérfræðingar Landhelgisgæslunnar sprengdu í grenndinni tuttugu og fimm kíló af mjög öflugu sprengiefni sem vegfarandi hafði rekist þar á í grennd við þjóðveginn. 6.8.2004 00:01
Réttað yfir föngum á Guantanamo Blaðamenn fylgdust í gær í fyrsta sinn með réttarhöldum yfir stríðsföngum Bandaríkjamanna, sem þeir hafa haldið í fangelsinu á Guantanamo flóa á Kúbu án dóms og laga í meira en tvö ár. Myndatökur voru hins vegar ekki leyfðar í réttarsal. 6.8.2004 00:01
Eldur kviknaði í vörubíl Tveir menn sluppu ómeiddir þegar eldur kviknaði í vörubíl sem þeir voru á rétt fyrir utan Stykkishólm undir kvöld í gær. Þeir urðu varir við reyk og komu sér strax út úr bílnum en rétt í því urðu vélarhúsið og ökumannshúsið alelda. 6.8.2004 00:01