Fleiri fréttir

Kettir klónaðir

Erfðarvísindafyrirtæki í Kaliforníuríki í Bandaríkjunum hefur í fyrsta sinn klónað tvo ketti en frumgerðin er kötturinn Tahini, köttur forstjóra fyrirtækisins. Markmiðið er að geta klónað gæludýr fyrir fólk sem finnst erfitt að sjá á eftir dýrunum sínum. Að sögn forstjórans ætlar fyrirtækið að klóna fleiri ketti síðar á árinu og verða sex þeirra seldir fyrir 500 þúsund íslenskar krónur hver.

Vinna liggur enn niðri

Hættuástand skapaðist við Kárahnjúkavirkjun í gærkvöldi þegar vatn úr Jöklu fór að streyma í gegnum varnarstífluna sem á að verja vinnusvæðið ofan í gljúfrinu. Starfsmenn yfirgáfu svæðið í skyndingu og liggur vinna enn niðri vegna vatnsaga. Nokkru síðar var þar orðið fjögurra metra djúpt vatn.

Sharon gefur líklega eftir

Aríel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, ætlar líklega að gefa Gaza-svæðið eftir til Palestínumanna og þess í stað að efla landnemabyggðir á Vesturbakkanum. Ísraelski herinn hefur að hluta dregið sig frá norður Gaza-svæðinu og Sharon heldur fast í áætlanir um að leggja niður landnemabyggðir á svæðinu.

Mannleg reisn með vasapeningum

Rauði krossinn telur hælisleitendur hér á landi frekar viðhalda mannlegri reisn fái þeir úthlutað vasapeningum sem var hætt að úthluta þegar Reykjanesbær tók við umsjá hælisleitenda af Rauða krossinum. Félagsmálastjóri Reykjanesbæjar segir koma til greina að setja einhver skilyrði fyrir greiðslu vasapeninga.

Stöðugir bardagar í Írak

Einn bandarískur hermaður lést og 15 særðust í árásum uppreisnarmanna í Bagdad í Írak í gærkvöldi. Hermenn berjast nú við árásarmenn á nokkrum stöðum í Írak og ekkert lát er á árásum.

Eins konar síldarævintýri

Síld veður nú í yfirborði sjávar víða fyrir norðan land en slíkt hefur ekki gerst áratugum saman. Að sögn Sverris Ólafssonar á trillunni Gyðu Jónsdóttur stekkur síldin í hundruða þúsunda tali upp úr yfirborðinu og lætur sig detta niður á hliðina þannig að til að sjá er eins og sjórinn kraumi.

74 ára maður tekinn af lífi

Sjötíu og fjögurra ára gamall maður var tekinn af lífi í Alabama-ríki í Bandaríkjunum í gær. Hann er elsti maður sem tekinn hefur verið af lífi þar í landi síðan dauðarefsingar voru leiddar í lög á ný árið 1976. Maðurinn, sem hét James Hubbard, myrti 62 ára gamla konu fyrir tuttugu og sjö árum, þá 47 ára gamall.

Rás 1 og 2 lágu niðri

Bilun í spennugjafa í útsendingarborði Rásar 2 í morgun varð til þess að útsendingar beggja rása Ríkisútvarpsins lágu niðri í fimmtán mínútur á höfuðborgarsvæðinu. Deildarstjóri hljóðdeildar RÚV telur ekki þörf á frekari aðgreiningu rafkerfisins. Útsendingarrofið hefði verið minna ef rafmagn hefði farið af öllu húsnæðinu.

114 húsbílar í hópferð

Á þriðja hundrað útlendinga á 114 húsbílum eru lagðir upp í þriggja vikna hópferð um landið og er stefnt að því að efna til svona ferða árlega. Fólk og bílar komu með Norrænu til Seyðisfjarðar í gær og í gærkvöldi var safnast saman á knattspyrnuvellinum í Fellabæ þar sem fólkið gisti í bílum sínum.

Bannað að brosa í vegabréfum

Þeim sem hyggjast sækja um vegabréf í Bretlandi er nú bannað að brosa svo það sjáist í tennurnar á vegabréfsmyndum. Stofnunin sem sér um útgáfu vegabréfanna segir að með þessu sé verið að fara eftir nýjum bandarískum stöðlum sem banna mönnum að brosa út að eyrum. Ástæðan er sú að bros getur villt fyrir öryggismyndavélum og landamæravörðum.

Vann 2,5 milljarða í lottóinu

Stærsta lottóvinningi í Bretlandi og á Írlandi fyrr eða síðar var úthlutað í borginni Belfast á Norður-Írlandi í dag. Vinningsupphæðin var tveir og hálfur milljarður íslenskra króna og féll hann í hlut 58 ára gamallar konu sem er gift og á tvær uppkomnar dætur.

Án bóta í sex áratugi

Tæpum 60 árum eftir að kjarnorkusprengjum var varpað á Hiroshima og Nagasaki þjást sum eftirlifandi fórnarlömb árásanna enn án þess að fá nokkrar bætur eða aðstoð.

Fá að bera vopn á ný

Ísraelsk stjórnvöld hafa samþykkt að palestínskir lögreglumenn fái að bera vopn. Það hafa þau bannað síðustu þrjú árin. Shaul Mofaz, varnarmálaráðherra Ísraels, samþykkti breytinguna til að hjálpa Ahmed Qureia, forsætisráðherra Palestínu, að koma á röð og reglu á svæðum Palestínumanna.

A-Evrópumenn streyma til Danmerkur

Fleiri Austur-Evrópubúar hafa sótt um atvinnuleyfi í Danmörku í maí, júní og júlí eftir að tíu ný ríki fengu aðild að Evrópusambandinu fyrsta maí. Danska dagblaðið Jyllands posten greinir frá því í dag að tvö þúsund Austur-Evróubúar hafi sótt um atvinnuleyfi og fara flestir í landbúnaðarstörf.

Niðurstaða skoðunar send lögreglu

Lögreglunni í Búðardal verður í dag send niðurstaða skoðunar sérfræðinga Frumherja á bremsubúnaði vörubílsins sem gjöreyðilagðist þegar hann fór fram af einbreiðri brú yfir Laxá í Laxárdal á þriðjudaginn. Jón Hjalti Ásmundsson, tæknistjóri ökutækjasviðs Frumherja, skoðaði bílinn í gær ásamt skoðunarmanni í Borgarnesi.

Al-Sadr neitar miklu mannfalli

Talsmaður sjítaklerksins Moqtada al-Sadr neitar þeim fréttum Bandaríkjamanna að þrjú hundruð írakskir uppreisnarmenn hafi fallið í tveggja daga bardögum í borginni Najaf. Hann segir þrjátíu og sex af þeirra mönnum látna.

Stíflan komin í 488 metra

Bráðabirgðastífla við Kárahnjúka, sem lak meðfram í gær inn á vinnusvæðið í gljúfrinu fyrir neðan, er komin í 488 metra. Stefnt er að því að hún verði komin í 490 metra á næsta sólarhring en verkið er tímafrekt þar sem stíflan er tuttugu og fimm metra breið.

Dræm íssala í Danmörku

Ísframleiðendur í Danmörku segja að hlýr ágústmánuður bjargi ekki slæmri sölu í sumar. <em>Jylland Posten</em> hefur það eftir Lars Tandrup, sölu- og markaðsstjóra hjá Frisko Is, að salan nú sé sú minnsta frá því hann hóf störf hjá fyrirtækinu fyrir sex árum.

Forsætisráðherra Finna í heimsókn

Forsætisráðherra Finnlands, Matti Vanhanen og frú, koma í opinbera heimsókn til Íslands á morgun. Í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu verður svokallaður vinnuhádegisverður og svo fara þau í skoðunarferð til Nesjavalla og Þingvalla.

Fjármunaeign 57% meiri

Á fimm árum hefur fjármunaeign landsmanna aukist um 57 prósent, eða um tæpan milljarð króna. Hagstofan birti nýjar tölu í morgun um fjármunaeign og ef aðeins er litið til íbúðarhúsnæðis er sú tala í rúmum 1,1 milljarði og hefur hún aukist um tæpa 500 milljarða króna á verðlagi hvers árs.

Norsku síamstvíburarnir dánir

Síamstvíburar sem fæddust á sjúkrahúsi í Fredrikstad í Noregi á þriðjudag létust rétt fyrir hádegi í dag, á barnadeild Ríkisspítalans í Osló, þangað sem þær voru fluttar fljótlega eftir fæðingu. Stúlkurnar voru með samvaxið hjarta sem starfaði ekki eðlilega en þær höfðu hvor sín lungu og höfuð.

Vinnutap upp á 10 daga

Áætlað er að vinnutap vegna vatnavaxta í Jöklu við Kárahnjúkavirkjun nemi tíu dögum. Er þá litið til þeirra tafa sem hafa orðið og munu verða á næstunni en nú er unnið hörðum höndum að því að hækka bráðabirgðastífluna sem lak meðfram inn á vinnusvæðið í gær.

Blóðbað í Najaf

Harðir bardagar milli íraskra uppreisnarmanna og bandarískra hermanna í hinni helgu borg Najaf síðustu tvo daga hafa kostað 300 uppreisnarmenn lífið að sögn bandarísku herstjórnarinnar í Írak. Tugir til viðbótar hafa látist í bardögum annars staðar á svæðum sjíamúslima að sögn íraskra stjórnvalda.

Áhafnaskipti við Svalbarða

Ný tuttugu og sex manna áhöfn fór um borð í Samherjatogarann Vilhelm Þorsteinsson við Svalbarða í síðustu viku. Leiguflugvél frá Flugfélagi Íslands flaug með áhöfnina frá Akureyri til Longerbyen á Svalbarða og sparaðist með því átta hundruð mílna sigling til Íslands.

Hafnarfjarðarhöfn lokað

Nú er verið að vinna að því að loka Hafnarfjarðarhöfn en þann 1. júlí síðastliðinn tóku gildi lög um siglingavernd sem stuðla m.a. að því að loka þarf hafnarsvæðum til að koma í veg fyrir að óviðkomandi aðilar eða hlutir komist að skipum. Ennfremur verður haftasvæðum hafna lokað þar sem farmur er geymdur til útflutnings.

Gæsluvarðhaldsúrskurður ógiltur

Hæstiréttur hefur fellt úr gildi gæsluvarðhaldsúrskurð yfir Ragnari Sigurjónssyni sem nýverið var framseldur frá Tælandi eftir að hafa farið huldu höfði í fimm ár. Honum er hins vegar gert að sæta farbanni til 23. ágúst næstkomandi.

Fischer leitar hælis

Lögmaður skáksnillingsins Bobbys Fischers segir Fischer ætla að afsala sér bandarískum ríkisborgararétti. Fischer hefur setið í haldi í Tókýó frá því þrettánda júlí síðastliðinn. Hann hringdi í bandaríska sendiráðið í Tókýó til að tilkynna yfirvöldum í Bandaríkjunum fyrirætlanir sínar en hefur ekki fengið svör.

Hvaða ráðherra kveður?

Staða Jóns Kristjánssonar innan ríkisstjórnarinnar þykir síst sterkari en Sivjar Friðleifsdóttur. Enn mega þau þó bíða þess að Halldór Ásgrímsson deili ákvörðun sinni því ólíklegt er að hún verði tilkynnt þennan mánuðinn. 

Spara tíma og peninga

Áhafnarskipti voru gerð á fjölveiðiskipinu Vilhelmi Þorsteinssyni EA 11 á Svalbarða í síðustu viku. Í tilkynningu frá Samherja hf. sem gerir út skipið, er þetta í fyrsta skipti sem send er leiguflugvél til Longerbyen á Svalbarða í þessum erindagjörðum.

Útsending RÚV

Útsendingar Rásar 1 og Rásar 2 rofnuðu rétt fyrir klukkan níu í gærmorgun vegna rafmagnsbilunar. Gripið var til neyðaráætlunar Útvarpsins og var útsending á samtengdum rásum komin á FM-kerfið utan Reykjavíkur og á langbylgju um allt land fimm mínútum síðar.

Aðbúnaður flóttafólks til skoðunar

Til stendur að taka mál hælisleitenda sem hér bíða úrskurðar Útlendingastofnunar til skoðunar í stjórnkerfi Reykjanesbæjar. Hjörtur Zakaríasson, bæjarritari Reykjanesbæjar og staðgengill bæjarstjóra, gerði ráð fyrir því að funda með Hjördísi Árnadóttur, félagsmálstjóra bæjarins, strax á mánudag.

Forsætisráðherra fær gesti

Halldór Ásgrímsson tekur í fyrsta skipti á móti erlendum gesti í opinberri heimsókn sem forsætisráðherra í dag. Forsætisráðherra Finnlands kemur til landsins í dag ásamt konu sinni og Halldór er starfandi forsætisráðherra vegna veikinda Davíðs Oddssonar

Deila um magn sprengiefnis

Landhelgisgæslan eyddi sprengjuefni við Tjörnes í fyrrinótt, um 25 kílóum að þeirra sögn. Ístak hf. sem var við vegagerð á svæðinu fyrir tveim árum segir að gæslan ofætli magnið og það hafi í mesta lagi verið um tvö kíló </font /></b />

Þriðja óhappið á viku

Bíll í eigu Borgarverks, sama fyrirtækis og á vörubílinn sem fór fram af einbreiðri brú yfir Laxá í Dölunum, varð alelda rétt fyrir utan Stykkishólm í gærkvöld. Þá rann þriðji vörubíllinn í eigu fyrirtækisins út af vegi í Norðurárdal í síðustu viku. 

Uppskera kartaflna yfir meðallagi

Allt stefnir í að kartöfluuppskera verði yfir góðu meðallagi, segir Sigurbjartur Pálsson, kartöflubóndi á Skarði á Landi. Mánuður er liðinn frá því að fyrstu kartöflurnar komu á markað.

Barist í nokkrum borgum

Tveir bandarískir hermenn létu lífið í hörðum átökum í Najaf í Írak í dag. Írakskir og bandarískir hermenn berjast við árásarmenn í nokkrum borgum í landinu og ekkert lát er á árásum. 

Þar sem heiðni og kristni mættust

Við bæinn Hrísbrú í Mosfellsdal fer fram mikill fornleifauppgröftur, en þar hafa fundist mannvistarleifar allt frá upphafi byggðar hér. Vísbendingar í Egilssögu urðu til þess að Jesse Byock, fornleifafræðingur og norrænufræðingur við Kaliforníuháskóla, fann þar eina af elstu kirkjum landsins, frá þjóðveldisöld.

Hættuástand við Kárahnjúka

Hættuástand skapaðist við Kárahnjúkavirkjun í gærkvöld þegar Jökla fann sér leið í gegnum varnarstíflu sem á að verja vinnusvæði ofan í gljúfrinu. Vatnshæðin komst í um fjóra metra á svæði þar sem á annan tug starfsmanna var við vinnu. Forstjóri Landsvirkjunar segir sína menn þó litlar áhyggjur hafa.

Bretar handtaka fleiri

Bretar handtóku í dag þrettánda manninn sem grunaður er um aðild að hryðjuverkasamtökunum AL-Kaída. Maðurinn er grunaður um að hafa verið að skipuleggja hryðjuverk í Bandaríkjunum.

Útsendingar RÚV lágu niðri

Útsendingar Ríkisútvarpsins lágu niðri í stundarfjórðung á höfuðborgarsvæðinu í morgun. Deildarstjóri hljóðdeildar segir neyðaráætlun hafa farið í gang.

Ísraelar opnuðu landamærin

Ísraelski herinn hefur opnað landamærin á milli Egyptalands og Gaza-svæðisins og leyfði fimmtán hundruð Palestínumönnum sem voru strandaðir í Egyptalandi að snúa heim. Landamærunum var lokað fyrir þremur vikum vegna gruns um að palestínskir uppreisnarmenn væru að smygla vopnum frá Egyptalandi.

Bush mismælir sig

George Bush Bandaríkjaforseta varð heldur betur á í messunni í gær í ræðu sem hann flutti í Pentagon við undirskrift á fjárveitingu til varnarmála. Bush mætti til leiks í Pentagonið, varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna, í toppformi - ef svo má að orði komast.

Drengur lést í Bláa lóninu

Hörmulegur atburður átti sér stað í Bláa lóninu í dag þegar 14 ára gamall piltur af erlendum uppruna lést. Sjúkrabílar frá Reykjavík og Keflavík voru kallaðir út ásamt lögreglu á þriðja tímanum í dag. Drengurinn var fluttur í skyndi á bráðamóttöku Landsspítala Háskólasjúkrahús við Hringbraut en lífgunartilraunir báru ekki árangur.

Áfrýjar fimm ára fangelsisdómi

;Við höfum tekið ákvörðun um að áfrýja dómnum," segir Guðmundur B. Ólafsson, lögmaður Fanta Sillah 26 ára gamallar barnshafandi konu frá Sierra Leone, sem dæmd var í fimm ára fangelsi þann 23. júlí síðastliðinn. Fanta Sillah var tekin með um 5034 e-töflur á Keflavíkurflugvelli í sumar en töflurnar voru vandlega faldar í bakpoka sem hún bar.

Mest tekið af amfetamíni

46 fíkniefnamál komu upp á Akureyri um verslunarmannahelgina og 43 í Vestmannaeyjum. Á báðum stöðum fundust þrjár tegundir fíkniefna, amfetamín, e-töflur og hass

Sjá næstu 50 fréttir