Innlent

Spara tíma og peninga

Áhafnarskipti voru gerð á fjölveiðiskipinu Vilhelmi Þorsteinssyni EA 11 á Svalbarða í síðustu viku. Í tilkynningu frá Samherja hf. sem gerir út skipið, er þetta í fyrsta skipti sem send er leiguflugvél til Longerbyen á Svalbarða í þessum erindagjörðum. Kristján Vilhelmsson, útgerðarstjóri, segir tilhögunina hagkvæma þegar veitt er á fjarlægum miðum. Tíminn sem annars færi í langa siglingu, nýtist við veiðar og vinnslu, auk þess sem olía sparast.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×