114 húsbílar í hópferð 6. ágúst 2004 00:01
Á þriðja hundrað útlendinga á 114 húsbílum eru lagðir upp í þriggja vikna hópferð um landið og er stefnt að því að efna til svona ferða árlega. Fólk og bílar komu með Norrænu til Seyðisfjarðar í gær og í gærkvöldi var safnast saman á knattspyrnuvellinum í Fellabæ þar sem fólkið gisti í bílum sínum. Það er að mestu leyti Norðurlandabúar og er ferðin skipulögð af samtökum húsbílaeigenda ytra. Sigrún Haraldsdóttir tók þátt í skipulagningunni og segir hún að áhöfnin í hverjum bíl ráði ferðatilhögun sinni, nema hvað safnast er saman á ákveðnum stöðum á kvöldin. Þannig fara sumir í jöklaferðir, siglingar eða hestaferðir utan við hópferðina. Þá mega aldrei nema fimm bílar aka saman í röð til að hafa ekki truflandi áhrif á umferðina. Undirtektir við þessa hugmynd voru vonum framar, að sögn Sigrúnar, sem sagði að skipuleggjendur hefðu orðið ánægðir með svona 25 bíla. Sigrún segir það misskilning að ferðamenn á húsbílum skiluðu engum tekjum til ferðaþjónustunnar því fólkið notfærði sér matsölustaði, sundlaugar, alla þjónustu við bíla og margir færu í dýrar aukaferðir. Í ljósi undirtektanna hefur þegar verið ákveðið að fara aðra ferð á næsta ári og er strax búið að skrá u.þ.b. 40 húsbíla í hana. Myndin er úr myndasafni.
Fréttir Innlent Mest lesið Metnaðarfullar malbikunarauglýsingar hluti af væb-kúltúrnum Innlent Mátti ekki lána sér pening úr eigin fyrirtæki Innlent Pilturinn er fundinn Innlent Fundu jöklafýlu í Þórsmörk vegna hlaupsins Innlent Ógeðsleg aðkoma að íbúðinni eftir Airbnb-gesti Innlent Ökumaður bifhjólsins látinn Innlent Sjúklingar óttist dómhörku vegna þyngdarstjórnunarlyfja Innlent Vill hefna vinar síns Bolsonaro með 50 prósenta tollum á Brasilíu Erlent Bindur vonir við „einn inn, einn út“ áætlun í innflytjendamálum Erlent „Það er engin ástæða til að gefast upp“ Innlent Fleiri fréttir Fundu jöklafýlu í Þórsmörk vegna hlaupsins Metnaðarfullar malbikunarauglýsingar hluti af væb-kúltúrnum Mátti ekki lána sér pening úr eigin fyrirtæki Pilturinn er fundinn „Skýr vísbending um að gera þurfi betur í málefnum erlendra barna“ Sjúklingar óttist dómhörku vegna þyngdarstjórnunarlyfja „Það er engin ástæða til að gefast upp“ Reiðarslag fyrir Landsvirkjun, kjarnorkukafbátur og heimsfræg íslensk kisa „Í næstu umferð fara hlutirnir í gegn“ Tilkynnt um buxnalausan mann og stolinn pizzaofn „Það er enginn svartur listi hjá okkur“ Davíð hafi lagt Golíat Hlaup er hafið úr Mýrdalsjökli Ökumaður bifhjólsins látinn Dettifoss vélarvana úti á ballarhafi Flugvél snúið við vegna bilunar „Enn ein viðurkenning að það má brjóta á fötluðu fólki“ Ógeðsleg aðkoma að íbúðinni eftir Airbnb-gesti Óska eftir vitnum: Missti stjórn og hafnaði á vegriði Bíða niðurstaðna um magakveisuna á Laugarvatni Dómurinn vonbrigði en virkjunin ekki út úr myndinni Kona á fimmtugsaldri í haldi vegna hnífstunguárásar „Nú verður að hafa hraðar hendur“ Hvammsvirkjun í uppnámi og ókyrrð hjá Play Hæstiréttur hafnar Hvammsvirkjun Inga Sæland með galsa á þingi í nótt „Orðaskiftismetið tikið“ Bifhjólamaðurinn „mikið slasaður“ Alvarlegt mótorhjólaslys og Miklubraut lokað Ungt fólk notar frekar samfélagsmiðla en hefðbundna fréttamiðla Sjá meira