Erlent

A-Evrópumenn streyma til Danmerkur

MYND/Vísir
Fleiri Austur-Evrópubúar hafa sótt um atvinnuleyfi í Danmörku í maí, júní og júlí eftir að tíu ný ríki fengu aðild að Evrópusambandinu fyrsta maí. Danska dagblaðið Jyllands posten greinir frá því í dag að tvö þúsund Austur-Evróubúar hafi sótt um atvinnuleyfi og fara flestir í landbúnaðarstörf. Um eitt þúsund umsóknir hafa verið afgreiddar og aðeins sex hefur verið hafnað. Danska stofnunin um alþjóðlegar rannsóknir áætlaði að um tvö þúsund Austur-Evrópubúar myndu flytja til Danmerkur á ári eftir stækkun ESB, sem hefur orðið reyndin á fyrstu þremur mánuðunum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×