Vinna liggur enn niðri 6. ágúst 2004 00:01
Hættuástand skapaðist við Kárahnjúkavirkjun í gærkvöldi þegar vatn úr Jöklu fór að streyma í gegnum varnarstífluna sem á að verja vinnusvæðið ofan í gljúfrinu. Starfsmenn yfirgáfu svæðið í skyndingu og liggur vinna enn niðri vegna vatnsaga. Nokkru síðar var þar orðið fjögurra metra djúpt vatn. Varnarstíflan á að beina vatni Jöklu að hjáveitugöngum en þau anna ekki vatnsflæðinu þannig að uppistöðulón hefur myndast. Öllum tiltækum stórvirkum vinnuvélum var beitt og tókst að stöðva lekann áður en garðurinn rofnaði en hætta var á því þar sem svo mikið vatn rann í gegnum hann. Engan starfsmann sakaði en áfram er unnið hörðum höndum við að styrkja garðinn og er verið að leita að dælum um allt land til viðbótar þeim sem ekki hafa undan við að dæla vatni af vinnusvæðinu. Þá fór brúin yfir Jöklu, sem laskaðist talsvert í flóðinu í fyrradag, á bólakaf. Hún virðist ekki hafa skemmst meira en orðið var enda var búið að skrúfa af henni öll vegrið þannig að íshrönglið safnaðist ekki fyrir við hana eins og í fyrrakvöld. Þegar líða tók á kvöldið fór aftur að sjatna í ánni en búist er við talsverðu flóði í kvöld og jafnvel enn meiri flóðum um helgina, ef veðurspáin gengur eftir. Þetta mun vera eitthvert mesta flóð í ánni í áratugi og áfram er spáð hlýindum þannig að verktakar á svæðinu gera fastlega ráð fyrir flóði í kvöld.
Fréttir Innlent Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Fleiri fréttir Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Sjá meira