Fleiri fréttir Gyðingar flytjast til Ísraels Tvö hundruð og fimmtíu bandarískir og kanadískir gyðingar lentu á flugvellinum í Tel Avív í morgun en hópurinn ætlar að setjast að í Ísrael. Sérstök stofnun í Ísrael vinnur að því að fá gyðinga víðs vegar um heiminn til að flytjast til Ísraels og fá þeir góða styrki til að koma sér upp heimili. 4.8.2004 00:01 ESB brýtur alþjóðalög Niðurgreiðslur Evrópusambandsins til sykurframleiðanda innan landamæra sambandsins standast ekki alþjóðleg verslunarlög. Þetta er niðurstaða úrskurðanefndar Alþjóða viðskiptastofnunarinnar. 4.8.2004 00:01 Auglýst eftir hirðfífli Opinber stofnun í Bretlandi, sem hefur varðveislu staða með menningarsögulegt gildi á sinni könnu, hefur auglýst eftir starfskrafti í stöðu hirðfífls ensku krúnunnar. Ekkert hirðfífl hefur verið starfandi í Bretlandi í rúmlega 350 ár. 4.8.2004 00:01 Súdanir mótmæla ályktun SÞ Rúmlega 100 þúsund manns komu saman á götum Khartúm, höfuðborgar Súdans, og mótmæltu ályktun Sameinuðu þjóðanna sem veitir súdönskum yfirvöldum mánaðarfrest til að stöðva ofsóknir vígasveita í Darfur-héraði. Mótmælin voru skipulögð af hinu opinbera. 4.8.2004 00:01 90 ár frá fyrri heimsstyrjöldinni Þess var minnst í Bretlandi í dag að 90 ár eru liðin frá upphafi fyrri heimsstyrjaldarinnar. Einungis tuttugu og þrír breskir hermenn sem börðust í stríðinu eru enn á lífi og fjórir voru nógu hraustir til að vera viðstaddir minningarathöfnina. 4.8.2004 00:01 Fangar struku í Svíþjóð Þrír menn struku úr fangelsi í grennd við Stokkhólm í Svíþjóð með aðstoð grímuklæddra manna sem báru skotvopn. Þetta er í annað skiptið á rúmri viku sem fangar strjúka úr sænsku fangelsi. 4.8.2004 00:01 Brúnni yfir Jöklu lokað aftur Búið er að loka brúnni yfir Jökulsá á Dal aftur vegna vatnavaxta og er ekki útilokað að vatnsyfirborðið nái hærra en í flóðinu í gær. Ákveðið hefur verið að hækka varnarstíflu um fimm metra í varúðarskyni. Önnur hjárennslisgöngin hafa ekki undan, væntanlega vegna stíflu. 4.8.2004 00:01 Morðvopnið hjá líkinu í gjótunni Lögregla fann í dag kúbein sem talið er að Hákon Eydal hafi notað til að myrða Sri Ramawati. Það lá í sömu gjótu og líkið af henni sem fannst í Hafnarfjarðarhrauni í gær. 4.8.2004 00:01 Vildi bjarga fólkinu „Ég verð að bjarga fólkinu,“ flaug í gegnum huga Guðjóns Magnússonar vörubílstjóra áður en hann steyptist rúma tíu metra niður í stórgrýti. Guðjón, sem vinnur hjá Bergverki í Borgarnesi, var að flytja möl á stórum fjögurra öxla vörubíl þegar hann kom að einbreiðri brú yfir Laxá í Laxárdal. 4.8.2004 00:01 Hélt ég myndi deyja Guðjón Magnússon, 24 ára bifreiðastjóri frá Borgarnesi segist þakka æðri máttarvöldum að enginn hefði meiðst alvarlega þegar 28 tonna trukkur sem hann ók steyptist rúma 10 metra niður í stórgrýttan árfarveg Laxár á Dölum við Búðardal. Ástæðan var sú að jeppi var fyrir á einbreiðri brúnni. 4.8.2004 00:01 Ráðist á lögfræðing Viktor Stefán Pálsson, lögfræðingur og sviðsstjóri hjá Vestmannaeyjabæ tilkynnti líkamsárás til lögreglu um helgina. Samkvæmt heimildum DV átti árásin sér pólitískar rætur. 4.8.2004 00:01 Ónákvæm kort Landmælinga Íslands Dæmi eru um að ár renni upp í mót og heilu og hálfu fjöllin vanti á landakort af Íslandi frá Landmælingum Íslands. Forstjóri stofnunarinnar kennir fjárskorti um. 4.8.2004 00:01 Mótmæla leðurfatnaði í Gay Pride Íslenskur dýravinur, hommi, lesbía og Búkolla mótmæltu því á Austurvelli í dag að samkynhneigðir íklæddust leðri. Þau segja að á bak við hverja leðurskó, svipu eða leðurjakka liggi ólýsanleg þjáning dýra og að föt úr gervileðri eða gúmmíi séu jafn kynþokkafull og leðrið. 4.8.2004 00:01 Umdeild lög sett í Rússlandi Rússneska þingið samþykkti í dag lög sem kveða á um að ýmis niðurgreiðsla á opinberri þjónustu verði felld niður. Lögin er hluti af umsvifamiklum umbótum á velferðakerfinu í Rússlandi. 4.8.2004 00:01 Sri Chinmoy lyfti 308 kg manni Hinn 73 ára gamli Shri Chinmoy lyfti rúmlega 300 kílógramma Bandaríkjamanni í síðustu viku. Tilgangurinn með því var að vekja fólk til meðvitundar um offituvandann. 4.8.2004 00:01 Jarðgöng biluð Vatnavextir í Jöklu sem ollu því að brú fór undir vatn eru ekki meiri en búast má við í venjulegu sumri. Mesta flæðið á síðustu dögum var 820 rúmmetrar á sekúndu en að sögn Ómars R. Valdimarssonar, talsmanns Impregilo, er alvanalegt að flæði fari upp í 900 rúmmetra á sekúndu yfir sumarið. 4.8.2004 00:01 Vítamíndropar taldir valda ofnæmi Grunur leikur á því, að notkun A- og D-vítamíndropa, sem innihéldu jarðhnetuolíu hafi hleypt af stað jarðhnetuofnæmi hjá ungabörnum hér á landi. Lyfjastofnun innkallaði þessa dropa í fyrra. Hópur foreldra þarf að hafa bráðasprautur við hendina, vegna þessa illvíga ofnæmis. </font /></b /> 4.8.2004 00:01 Rökin eingöngu pólitísk Íslendingar eru meðal þeirra þjóða sem greiða mest til landbúnaðar. Helstu rök gegn því að hætta stuðningi við íslenskan landbúnað eru pólitísk og ástæðurnar huglægar, segir Gylfi Magnússon hagfræðingur. Formaður landbúnaðarnefndar vill halda stuðningi áfram. </font /></b /> 4.8.2004 00:01 Bráðasprautan alltaf við hendina Tveggja ára snáði, Kjartan Sveinn Guðmundsson greindist með jarðhnetuofnæmi fyrir fáeinum vikum. Foreldrar hans hafa neyðarsprautuna alltaf við hendina. Þau þurfa ætíð að vera á vaktinni, ekki einungis varðandi það sem barnið lætur ofan í sig, heldur með hvað þau borða sjálf.</font /></b /> 4.8.2004 00:01 Endurmæling hnitakerfis hafin Hafin er endurmæling á hnitakerfi landsins, svo kölluðu grunnstöðvaneti. Þetta umfangsmikla verkefni hófst við mælistöð nálægt Reykholti í Borgarfirði. Siv Friðleifsdóttir umhverfisráðherra var viðstödd og hóf fyrstu mælinguna ásamt mælingamönnum frá Landmælingum Íslands. Að því loknu hófu 19 mælingahópar mælingar á 34 mælistöðvum á Norðurlandi. 4.8.2004 00:01 Fleygði líkinu og fór í búðir Hákon Eydal segist hafa varpað líki Sri Rahmawati í fjöruna en síðan hafi hann farið í stórmarkað í Reykjavík og keypt sér föt. Eftirlíkingu af pokanum sem Hákon kom líkinu fyrir í var varpað á sama stað og fylgst verður með hreyfingunum pokans. </font /></b /> 3.8.2004 00:01 Alvarlegt umferðarslys skyggði á 3.8.2004 00:01 Í fangelsi eftir fimm ár á flótta Rúmlega sextugur fiskútflytjandi kom til landsins í lögreglufylgd seint á sunnudagskvöld. Hann hefur verið á flótta frá réttvísinni í fimm ár, allt frá því sem hann hvarf sporlaust í London. 3.8.2004 00:01 Enn ófært til Eyja Enn er óært frá Vestmannaeyjum vegna þoku og á að athuga með flug þangað klukkan tíu. Flug hófst í gærkvöldi en var aflýst um miðnætti. Að minnstakosti 200 þjóðhátíðargestir eru innlyksa í Vestmannaeyjum, þar sem hvorki er hægt að fljúga á Bakka né til Reykjavíkur. 3.8.2004 00:01 Frelsisstyttan opnuð á ný Frelsisstyttan verður opnuð fyrir ferðamönnum á morgun, í fyrsta sinn eftir árásirnar ellefta september 2001. Öryggisviðbúnaður í New York og Washington var aukinn um helgina vegna hættu á hryðjuverkaárásum en þrátt fyrir það telja yfirvöld öryggi við styttuna nægjanlegt. 3.8.2004 00:01 Lynndie blóraböggull yfirmanna Lögfræðingar bandaríska fangavarðarins Lynndie England segja að hún sé blóraböggull yfirmanna sinna vegna illrar meðferðar á föngum í írakska fangelsinu Abu Ghraib. Herréttarhöld hefjast á morgun og ætla lögfræðingarnir að kalla til vitnis yfirmenn Lynndie í þeirri von að geta sýnt fram á að ábyrgðin hafi verið þeirra. 3.8.2004 00:01 Liggja enn þungt haldin Kona og karl liggja enn þungt haldin á gjörgæsludeild Landsspítalans eftir mjög harðan árekstur tveggja bíla á Suðurlandsvegi á móts við Kotströnd um klukkan fjögur í gærdag. Þeim er báðum haldið sofandi. Þau voru í sama bílnum, en þrennt úr hinum bílnum meiddist óverulega. 3.8.2004 00:01 Sótti veika konu að Hesteyri Björgunarskipið Gunnar Friðriksson frá Ísafirði var kallað úr seint í gærkvöldi til að sækja veika konu að Hesteyri í Jökulfjörðum, en áður hafði læknir farið á opnum björgunarbáti frá Bolungarvík til konunnar. Hún var flutt á sjúkrahúsið á Ísaflriði og er líðan hennar eftir atvikum, en hún er með lungnabólu. 3.8.2004 00:01 Bensínlítrinn í 113 krónur Bensínlítrinn hja Olís, Skeljungi og Essó, er kominn upp í 113 krónur að meðaltali á stöðvum með fullri þjónustu, eftir hækkun um helgina. Bensín hækkaði líka á sjálfsafgreiðslustöðvunum, en þó minnst í grennd við sölustöðvar Atlantsolíu í Kópavogi og Hafnarfirði, þar sem það skreið rétt yfir hundrað krónurnar en Atlantsolía er rétt undir hundrað krónunum 3.8.2004 00:01 Þrír látast í Rafah Þrír Palestínumenn létust í sprengingu í morgun í borginni Rafah, á Gasaströndinni, að sögn lækna á sjúkrahúsi. Vitni segja eldflaug hafa verið skotið frá ísraelskri herþyrlu, ísraelski herinn hefur ekki staðfest það. Atvikið átti sér stað nærri landamærunum við Egyptaland, þar sem átök hafa verið tíð. 3.8.2004 00:01 Fyrsta geimfar á braut um Merkúr Fyrsta geimfarið, sem á að fara á braut um Merkúr, var skotið á loft í morgun. Geimfarið flytur rannsóknargervihnött bandarísku geimferðastofnunarinnar, NASA, til Merkúr, sem er ein af heitustu reikistjörnum sólkerfisins en þar getur hitinn farið upp í 500 gráður á celsíus. 3.8.2004 00:01 Gögn um árás þriggja ára gömul Gögn sem Bandaríkjamenn studdust við þegar öryggisviðbúnaður var aukin í New York og Washington um helgina, eru að minnsta kosti þriggja ára gömul. Í dagblöðunum The New York Times og Washington Post í dag kemur fram að enn sé verið að fara í gegnum gögn 3.8.2004 00:01 Aurskriður á Austfjörðum Úrhellisrigning hefur verið á sunnanverðum Austfjörðum í alla nótt og hafa tvær aurskriður fallið á þjóðveginn í Þvottárskriðum á milli Hafnar og Djúpavogs. Fyrri skriðan, tíu metra breið, féll upp úr miðnætti og ruddu vegagerðarmenn frá Höfn henni af veginum í nótt. 3.8.2004 00:01 Línuskautaslysum fjölgar stórlega Línuskautaslysum fjölgar stórlega og líkja læknar Landsspítalans því jafnvel við faraldur. Fyrstu árin eftir að farið var að skrá þessi slys árið 1999 slösuðust að jafnaði 30 manns á ári á línuskautum, en í fyrra rauk talan upp í 69 og er ekkert lát á slysunum í ár. 3.8.2004 00:01 Blaðamannafundur um enska boltann Skjár Einn hefur boðað til blaðamannafundar í dag, en þar verður gert grein fyrir framkvæmd og sýningu Enska boltans í vetur. Sagt verður frá hverjir muni lýsa leikjum auk þess sem greint verður frá samstarfi Skjás Eins við aðra fjölmiðla og tilhögun útsendinga. Má segja að það sé ekki seinna vænna þar sem einungis ellefu dagar eru í fyrsta leik sem verður 14. ágúst. 3.8.2004 00:01 Aflaverðmæti minna en í fyrra Aflaverðmæti íslenskra skipa á fyrstu fjórum mánuðum ársins er 24,8 milljarðar króna. Þetta er aðeins minna samanborið við sama tímabil á síðasta ári þegar aflaverðmæti var 25,1 milljarður. Samdráttur á aflaverðmæti nemur því um 330 milljónir. Aukning var í verðmæti botnfiskaflans, þorsks og ýsu en samdráttur í verðmæti karfa, loðnuafla og skel- og krabbadýraafla 3.8.2004 00:01 Sumarið komið til Danmerkur Loksins, loksins, segja Danir, og eiga þá við að loksins sé sumarið komið til landsins. Það hefur ekki komið svona seint síðan 1874. Dag eftir dag, allt frá því í maí, hafa Danir litið til himins og hrist höfuðið í forundran yfir tíðarfarinu. 3.8.2004 00:01 Fært til og frá Eyjum Nokkur hundruð strandaglópar, sem skemmtu sér á þjóðhátíð í Vestmannaeyjum, komast líklega í land í dag, þar sem fært er orðið með flugi á ný. Hátt í 200 manns höfðust við í íþróttahúsinu í nótt. 3.8.2004 00:01 Konungur gagnrýnir Palestínustjórn Abdúlla, konungur Jórdaníu, hefur gagnrýnt heimastjórn Palestínumanna fyrir framgöngu hennar í friðarviðræðum við Ísraela. Konungurinn sagði að heimastjórnin þyrfti að marka sér skýrari stefnu, ef hún ætlaðist til þess að fá stuðning Arabaríkja. 3.8.2004 00:01 Björguðu áhöfn af skemmtibáti Breskir hermenn björguðu fjögurra manna áhöfn af sökkvandi skemmtibáti, sem var á leið frá Belfast á Írlandi til Íslands. Þegar báturinn var um 320 kílómetra norðvestur af Skotlandi fékk hann á sig brotsjó og laskaðist það mikið að leki kom að honum. 3.8.2004 00:01 Möl ekið í stíflugarð Aka þurfti miklu af möl og grjóti í þrjá daga í stíflugarð við hjáveitugöng við Kárahnjúka um helgina vegna mikilla vatnavaxta í Jöklu, en verktakar og eftirlitsmenn telja þó ekki hættu á ferðum. 3.8.2004 00:01 Tæpir hundrað kílómetrar að baki Leiðangur tveggja blindra kajakræðara og tveggja aðstoðarmanna niður austurströnd Grænlands gengur vel. Tæpir hundrað kílómetrar voru að baki fyrrakvöld en lagt var af stað frá Kulusuk á föstudag. 3.8.2004 00:01 Ragnar úrskurðaður í gæsluvarðhald Tælensk yfirvöld framseldu um helgina Ragnar Sigurjónsson, fyrrverandi skreiðarútflytjanda, sem hvarf sporlaust fyrir fimm árum, og hefur hann verið úrskurðaður í gæsluvarðhald hér á landi. 3.8.2004 00:01 Sex manns handteknir vegna bruna Sex manns hafa verið handteknir vegna brunans í stórmarkaði í Paragvæ, sem kostaði 360 manns lífið um helgina. Þegar eldurinn kviknaði var dyrum markaðarins lokað svo að viðskiptavinirnir kæmust ekki út án þess að borga. Meðal hinna handteknu er eigandi stórmarkaðarins. 3.8.2004 00:01 Frakkar senda herlið til Súdan Þjóðir heims virðast smám saman vera að byrja að bregðast við neyðarástandinu í Darfur héraði, í Súdan. Frakkar eru að senda bæði hermenn og hjálpargögn til Darfur héraðs, til þess að vernda íbúana fyrir árásum arabískra vígasveita, en Súdan er fyrrverandi frönsk nýlenda. 3.8.2004 00:01 Sjá næstu 50 fréttir
Gyðingar flytjast til Ísraels Tvö hundruð og fimmtíu bandarískir og kanadískir gyðingar lentu á flugvellinum í Tel Avív í morgun en hópurinn ætlar að setjast að í Ísrael. Sérstök stofnun í Ísrael vinnur að því að fá gyðinga víðs vegar um heiminn til að flytjast til Ísraels og fá þeir góða styrki til að koma sér upp heimili. 4.8.2004 00:01
ESB brýtur alþjóðalög Niðurgreiðslur Evrópusambandsins til sykurframleiðanda innan landamæra sambandsins standast ekki alþjóðleg verslunarlög. Þetta er niðurstaða úrskurðanefndar Alþjóða viðskiptastofnunarinnar. 4.8.2004 00:01
Auglýst eftir hirðfífli Opinber stofnun í Bretlandi, sem hefur varðveislu staða með menningarsögulegt gildi á sinni könnu, hefur auglýst eftir starfskrafti í stöðu hirðfífls ensku krúnunnar. Ekkert hirðfífl hefur verið starfandi í Bretlandi í rúmlega 350 ár. 4.8.2004 00:01
Súdanir mótmæla ályktun SÞ Rúmlega 100 þúsund manns komu saman á götum Khartúm, höfuðborgar Súdans, og mótmæltu ályktun Sameinuðu þjóðanna sem veitir súdönskum yfirvöldum mánaðarfrest til að stöðva ofsóknir vígasveita í Darfur-héraði. Mótmælin voru skipulögð af hinu opinbera. 4.8.2004 00:01
90 ár frá fyrri heimsstyrjöldinni Þess var minnst í Bretlandi í dag að 90 ár eru liðin frá upphafi fyrri heimsstyrjaldarinnar. Einungis tuttugu og þrír breskir hermenn sem börðust í stríðinu eru enn á lífi og fjórir voru nógu hraustir til að vera viðstaddir minningarathöfnina. 4.8.2004 00:01
Fangar struku í Svíþjóð Þrír menn struku úr fangelsi í grennd við Stokkhólm í Svíþjóð með aðstoð grímuklæddra manna sem báru skotvopn. Þetta er í annað skiptið á rúmri viku sem fangar strjúka úr sænsku fangelsi. 4.8.2004 00:01
Brúnni yfir Jöklu lokað aftur Búið er að loka brúnni yfir Jökulsá á Dal aftur vegna vatnavaxta og er ekki útilokað að vatnsyfirborðið nái hærra en í flóðinu í gær. Ákveðið hefur verið að hækka varnarstíflu um fimm metra í varúðarskyni. Önnur hjárennslisgöngin hafa ekki undan, væntanlega vegna stíflu. 4.8.2004 00:01
Morðvopnið hjá líkinu í gjótunni Lögregla fann í dag kúbein sem talið er að Hákon Eydal hafi notað til að myrða Sri Ramawati. Það lá í sömu gjótu og líkið af henni sem fannst í Hafnarfjarðarhrauni í gær. 4.8.2004 00:01
Vildi bjarga fólkinu „Ég verð að bjarga fólkinu,“ flaug í gegnum huga Guðjóns Magnússonar vörubílstjóra áður en hann steyptist rúma tíu metra niður í stórgrýti. Guðjón, sem vinnur hjá Bergverki í Borgarnesi, var að flytja möl á stórum fjögurra öxla vörubíl þegar hann kom að einbreiðri brú yfir Laxá í Laxárdal. 4.8.2004 00:01
Hélt ég myndi deyja Guðjón Magnússon, 24 ára bifreiðastjóri frá Borgarnesi segist þakka æðri máttarvöldum að enginn hefði meiðst alvarlega þegar 28 tonna trukkur sem hann ók steyptist rúma 10 metra niður í stórgrýttan árfarveg Laxár á Dölum við Búðardal. Ástæðan var sú að jeppi var fyrir á einbreiðri brúnni. 4.8.2004 00:01
Ráðist á lögfræðing Viktor Stefán Pálsson, lögfræðingur og sviðsstjóri hjá Vestmannaeyjabæ tilkynnti líkamsárás til lögreglu um helgina. Samkvæmt heimildum DV átti árásin sér pólitískar rætur. 4.8.2004 00:01
Ónákvæm kort Landmælinga Íslands Dæmi eru um að ár renni upp í mót og heilu og hálfu fjöllin vanti á landakort af Íslandi frá Landmælingum Íslands. Forstjóri stofnunarinnar kennir fjárskorti um. 4.8.2004 00:01
Mótmæla leðurfatnaði í Gay Pride Íslenskur dýravinur, hommi, lesbía og Búkolla mótmæltu því á Austurvelli í dag að samkynhneigðir íklæddust leðri. Þau segja að á bak við hverja leðurskó, svipu eða leðurjakka liggi ólýsanleg þjáning dýra og að föt úr gervileðri eða gúmmíi séu jafn kynþokkafull og leðrið. 4.8.2004 00:01
Umdeild lög sett í Rússlandi Rússneska þingið samþykkti í dag lög sem kveða á um að ýmis niðurgreiðsla á opinberri þjónustu verði felld niður. Lögin er hluti af umsvifamiklum umbótum á velferðakerfinu í Rússlandi. 4.8.2004 00:01
Sri Chinmoy lyfti 308 kg manni Hinn 73 ára gamli Shri Chinmoy lyfti rúmlega 300 kílógramma Bandaríkjamanni í síðustu viku. Tilgangurinn með því var að vekja fólk til meðvitundar um offituvandann. 4.8.2004 00:01
Jarðgöng biluð Vatnavextir í Jöklu sem ollu því að brú fór undir vatn eru ekki meiri en búast má við í venjulegu sumri. Mesta flæðið á síðustu dögum var 820 rúmmetrar á sekúndu en að sögn Ómars R. Valdimarssonar, talsmanns Impregilo, er alvanalegt að flæði fari upp í 900 rúmmetra á sekúndu yfir sumarið. 4.8.2004 00:01
Vítamíndropar taldir valda ofnæmi Grunur leikur á því, að notkun A- og D-vítamíndropa, sem innihéldu jarðhnetuolíu hafi hleypt af stað jarðhnetuofnæmi hjá ungabörnum hér á landi. Lyfjastofnun innkallaði þessa dropa í fyrra. Hópur foreldra þarf að hafa bráðasprautur við hendina, vegna þessa illvíga ofnæmis. </font /></b /> 4.8.2004 00:01
Rökin eingöngu pólitísk Íslendingar eru meðal þeirra þjóða sem greiða mest til landbúnaðar. Helstu rök gegn því að hætta stuðningi við íslenskan landbúnað eru pólitísk og ástæðurnar huglægar, segir Gylfi Magnússon hagfræðingur. Formaður landbúnaðarnefndar vill halda stuðningi áfram. </font /></b /> 4.8.2004 00:01
Bráðasprautan alltaf við hendina Tveggja ára snáði, Kjartan Sveinn Guðmundsson greindist með jarðhnetuofnæmi fyrir fáeinum vikum. Foreldrar hans hafa neyðarsprautuna alltaf við hendina. Þau þurfa ætíð að vera á vaktinni, ekki einungis varðandi það sem barnið lætur ofan í sig, heldur með hvað þau borða sjálf.</font /></b /> 4.8.2004 00:01
Endurmæling hnitakerfis hafin Hafin er endurmæling á hnitakerfi landsins, svo kölluðu grunnstöðvaneti. Þetta umfangsmikla verkefni hófst við mælistöð nálægt Reykholti í Borgarfirði. Siv Friðleifsdóttir umhverfisráðherra var viðstödd og hóf fyrstu mælinguna ásamt mælingamönnum frá Landmælingum Íslands. Að því loknu hófu 19 mælingahópar mælingar á 34 mælistöðvum á Norðurlandi. 4.8.2004 00:01
Fleygði líkinu og fór í búðir Hákon Eydal segist hafa varpað líki Sri Rahmawati í fjöruna en síðan hafi hann farið í stórmarkað í Reykjavík og keypt sér föt. Eftirlíkingu af pokanum sem Hákon kom líkinu fyrir í var varpað á sama stað og fylgst verður með hreyfingunum pokans. </font /></b /> 3.8.2004 00:01
Í fangelsi eftir fimm ár á flótta Rúmlega sextugur fiskútflytjandi kom til landsins í lögreglufylgd seint á sunnudagskvöld. Hann hefur verið á flótta frá réttvísinni í fimm ár, allt frá því sem hann hvarf sporlaust í London. 3.8.2004 00:01
Enn ófært til Eyja Enn er óært frá Vestmannaeyjum vegna þoku og á að athuga með flug þangað klukkan tíu. Flug hófst í gærkvöldi en var aflýst um miðnætti. Að minnstakosti 200 þjóðhátíðargestir eru innlyksa í Vestmannaeyjum, þar sem hvorki er hægt að fljúga á Bakka né til Reykjavíkur. 3.8.2004 00:01
Frelsisstyttan opnuð á ný Frelsisstyttan verður opnuð fyrir ferðamönnum á morgun, í fyrsta sinn eftir árásirnar ellefta september 2001. Öryggisviðbúnaður í New York og Washington var aukinn um helgina vegna hættu á hryðjuverkaárásum en þrátt fyrir það telja yfirvöld öryggi við styttuna nægjanlegt. 3.8.2004 00:01
Lynndie blóraböggull yfirmanna Lögfræðingar bandaríska fangavarðarins Lynndie England segja að hún sé blóraböggull yfirmanna sinna vegna illrar meðferðar á föngum í írakska fangelsinu Abu Ghraib. Herréttarhöld hefjast á morgun og ætla lögfræðingarnir að kalla til vitnis yfirmenn Lynndie í þeirri von að geta sýnt fram á að ábyrgðin hafi verið þeirra. 3.8.2004 00:01
Liggja enn þungt haldin Kona og karl liggja enn þungt haldin á gjörgæsludeild Landsspítalans eftir mjög harðan árekstur tveggja bíla á Suðurlandsvegi á móts við Kotströnd um klukkan fjögur í gærdag. Þeim er báðum haldið sofandi. Þau voru í sama bílnum, en þrennt úr hinum bílnum meiddist óverulega. 3.8.2004 00:01
Sótti veika konu að Hesteyri Björgunarskipið Gunnar Friðriksson frá Ísafirði var kallað úr seint í gærkvöldi til að sækja veika konu að Hesteyri í Jökulfjörðum, en áður hafði læknir farið á opnum björgunarbáti frá Bolungarvík til konunnar. Hún var flutt á sjúkrahúsið á Ísaflriði og er líðan hennar eftir atvikum, en hún er með lungnabólu. 3.8.2004 00:01
Bensínlítrinn í 113 krónur Bensínlítrinn hja Olís, Skeljungi og Essó, er kominn upp í 113 krónur að meðaltali á stöðvum með fullri þjónustu, eftir hækkun um helgina. Bensín hækkaði líka á sjálfsafgreiðslustöðvunum, en þó minnst í grennd við sölustöðvar Atlantsolíu í Kópavogi og Hafnarfirði, þar sem það skreið rétt yfir hundrað krónurnar en Atlantsolía er rétt undir hundrað krónunum 3.8.2004 00:01
Þrír látast í Rafah Þrír Palestínumenn létust í sprengingu í morgun í borginni Rafah, á Gasaströndinni, að sögn lækna á sjúkrahúsi. Vitni segja eldflaug hafa verið skotið frá ísraelskri herþyrlu, ísraelski herinn hefur ekki staðfest það. Atvikið átti sér stað nærri landamærunum við Egyptaland, þar sem átök hafa verið tíð. 3.8.2004 00:01
Fyrsta geimfar á braut um Merkúr Fyrsta geimfarið, sem á að fara á braut um Merkúr, var skotið á loft í morgun. Geimfarið flytur rannsóknargervihnött bandarísku geimferðastofnunarinnar, NASA, til Merkúr, sem er ein af heitustu reikistjörnum sólkerfisins en þar getur hitinn farið upp í 500 gráður á celsíus. 3.8.2004 00:01
Gögn um árás þriggja ára gömul Gögn sem Bandaríkjamenn studdust við þegar öryggisviðbúnaður var aukin í New York og Washington um helgina, eru að minnsta kosti þriggja ára gömul. Í dagblöðunum The New York Times og Washington Post í dag kemur fram að enn sé verið að fara í gegnum gögn 3.8.2004 00:01
Aurskriður á Austfjörðum Úrhellisrigning hefur verið á sunnanverðum Austfjörðum í alla nótt og hafa tvær aurskriður fallið á þjóðveginn í Þvottárskriðum á milli Hafnar og Djúpavogs. Fyrri skriðan, tíu metra breið, féll upp úr miðnætti og ruddu vegagerðarmenn frá Höfn henni af veginum í nótt. 3.8.2004 00:01
Línuskautaslysum fjölgar stórlega Línuskautaslysum fjölgar stórlega og líkja læknar Landsspítalans því jafnvel við faraldur. Fyrstu árin eftir að farið var að skrá þessi slys árið 1999 slösuðust að jafnaði 30 manns á ári á línuskautum, en í fyrra rauk talan upp í 69 og er ekkert lát á slysunum í ár. 3.8.2004 00:01
Blaðamannafundur um enska boltann Skjár Einn hefur boðað til blaðamannafundar í dag, en þar verður gert grein fyrir framkvæmd og sýningu Enska boltans í vetur. Sagt verður frá hverjir muni lýsa leikjum auk þess sem greint verður frá samstarfi Skjás Eins við aðra fjölmiðla og tilhögun útsendinga. Má segja að það sé ekki seinna vænna þar sem einungis ellefu dagar eru í fyrsta leik sem verður 14. ágúst. 3.8.2004 00:01
Aflaverðmæti minna en í fyrra Aflaverðmæti íslenskra skipa á fyrstu fjórum mánuðum ársins er 24,8 milljarðar króna. Þetta er aðeins minna samanborið við sama tímabil á síðasta ári þegar aflaverðmæti var 25,1 milljarður. Samdráttur á aflaverðmæti nemur því um 330 milljónir. Aukning var í verðmæti botnfiskaflans, þorsks og ýsu en samdráttur í verðmæti karfa, loðnuafla og skel- og krabbadýraafla 3.8.2004 00:01
Sumarið komið til Danmerkur Loksins, loksins, segja Danir, og eiga þá við að loksins sé sumarið komið til landsins. Það hefur ekki komið svona seint síðan 1874. Dag eftir dag, allt frá því í maí, hafa Danir litið til himins og hrist höfuðið í forundran yfir tíðarfarinu. 3.8.2004 00:01
Fært til og frá Eyjum Nokkur hundruð strandaglópar, sem skemmtu sér á þjóðhátíð í Vestmannaeyjum, komast líklega í land í dag, þar sem fært er orðið með flugi á ný. Hátt í 200 manns höfðust við í íþróttahúsinu í nótt. 3.8.2004 00:01
Konungur gagnrýnir Palestínustjórn Abdúlla, konungur Jórdaníu, hefur gagnrýnt heimastjórn Palestínumanna fyrir framgöngu hennar í friðarviðræðum við Ísraela. Konungurinn sagði að heimastjórnin þyrfti að marka sér skýrari stefnu, ef hún ætlaðist til þess að fá stuðning Arabaríkja. 3.8.2004 00:01
Björguðu áhöfn af skemmtibáti Breskir hermenn björguðu fjögurra manna áhöfn af sökkvandi skemmtibáti, sem var á leið frá Belfast á Írlandi til Íslands. Þegar báturinn var um 320 kílómetra norðvestur af Skotlandi fékk hann á sig brotsjó og laskaðist það mikið að leki kom að honum. 3.8.2004 00:01
Möl ekið í stíflugarð Aka þurfti miklu af möl og grjóti í þrjá daga í stíflugarð við hjáveitugöng við Kárahnjúka um helgina vegna mikilla vatnavaxta í Jöklu, en verktakar og eftirlitsmenn telja þó ekki hættu á ferðum. 3.8.2004 00:01
Tæpir hundrað kílómetrar að baki Leiðangur tveggja blindra kajakræðara og tveggja aðstoðarmanna niður austurströnd Grænlands gengur vel. Tæpir hundrað kílómetrar voru að baki fyrrakvöld en lagt var af stað frá Kulusuk á föstudag. 3.8.2004 00:01
Ragnar úrskurðaður í gæsluvarðhald Tælensk yfirvöld framseldu um helgina Ragnar Sigurjónsson, fyrrverandi skreiðarútflytjanda, sem hvarf sporlaust fyrir fimm árum, og hefur hann verið úrskurðaður í gæsluvarðhald hér á landi. 3.8.2004 00:01
Sex manns handteknir vegna bruna Sex manns hafa verið handteknir vegna brunans í stórmarkaði í Paragvæ, sem kostaði 360 manns lífið um helgina. Þegar eldurinn kviknaði var dyrum markaðarins lokað svo að viðskiptavinirnir kæmust ekki út án þess að borga. Meðal hinna handteknu er eigandi stórmarkaðarins. 3.8.2004 00:01
Frakkar senda herlið til Súdan Þjóðir heims virðast smám saman vera að byrja að bregðast við neyðarástandinu í Darfur héraði, í Súdan. Frakkar eru að senda bæði hermenn og hjálpargögn til Darfur héraðs, til þess að vernda íbúana fyrir árásum arabískra vígasveita, en Súdan er fyrrverandi frönsk nýlenda. 3.8.2004 00:01