Erlent

90 ár frá fyrri heimsstyrjöldinni

Þess var minnst í Bretlandi í dag að 90 ár eru liðin frá upphafi fyrri heimsstyrjaldarinnar. Einungis tuttugu og þrír breskir hermenn sem börðust í stríðinu eru enn á lífi og fjórir voru nógu hraustir til að vera viðstaddir minningarathöfnina. Þeir eru allir yfir hundrað ára og sá elsti, Henry Allingham, eru 108 ára gamall. Sjö hundruð og fimmtíu þúsund manns frá Breska samveldinu létu lífið í stríðinu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×