Erlent

ESB brýtur alþjóðalög

Niðurgreiðslur Evrópusambandsins til sykurframleiðanda innan landamæra sambandsins standast ekki alþjóðleg verslunarlög. Þetta er niðurstaða úrskurðanefndar Alþjóða viðskiptastofnunarinnar. Nokkur ríki kvörtuðu til stofnunarinnar undan niðurgreiðslum ESB á sykri til útflutnings og sögðu þær skekkja samkeppnisgrundvöll annarra ríkja. Utanríkisráðherra Brasilíu segir úrskurðinn mikinn sigur fyrir brasilíska sykurframleiðendur, en landið er stærsti sykurframleiðandi heims.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×