Erlent

Konungur gagnrýnir Palestínustjórn

Abdúlla, konungur Jórdaníu, hefur gagnrýnt heimastjórn Palestínumanna fyrir framgöngu hennar í friðarviðræðum við Ísraela. Konungurinn sagði að heimastjórnin þyrfti að marka sér skýrari stefnu, ef hún ætlaðist til þess að fá stuðning Arabaríkja. Það er sjaldgæft að arabískir leiðtogar gagnrýni Palestínumenn, en orð konungs endurspegla vaxandi óþolinmæði við Yasser Arafat, bæði heimafyrir og erlendis, vegna tregðu hans við að koma böndum á hryðjuverkahópa, og uppræta spillingu í heimastjórninni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×