Vildi bjarga fólkinu 4. ágúst 2004 00:01 „
Ég verð að bjarga fólkinu,“ flaug í gegnum huga Guðjóns Magnússonar vörubílstjóra áður en hann steyptist rúma tíu metra niður í stórgrýti. Guðjón, sem vinnur hjá Bergverki í Borgarnesi, var að flytja möl á stórum fjögurra öxla vörubíl þegar hann kom að einbreiðri brú yfir Laxá í Laxárdal. Hann segist hafa haldið að bíllinn sem kom á móti myndi stoppa fyrir sér en svo var ekki. Guðjón segist ekki hafa getað bremsað því hann var með fullhlaðinn pall aftan á. Eina ráðið til að bjarga fólkinu í hinum bílnum var því að steypa sér fram af brúnni. Aðspurður hvað hafi flogið í gegnum huga hans þegar hann fór fram af brúnni, segir Guðjón það hafa verið að bjarga fólkinu í bílnum. Hann hafi frekar viljað stefna sjálfum sér í hættu. Guðjón steyptist rúma tíu metra niður í stórgrýti og er bíllinn gersamlega ónýtur. Stýrishús vörubílsins mjög illa farið. Guðjón var ekki í bílbelti og þakkar því lífgjöfina að hann slengdist yfir í farþegasætið í fallinu. Eftir fallið skreið hann sjálfur út um framrúðu bílsins. Aðspurður hvort fólk hafi ekki verið hissa þegar það sá hann standandi hjá bílflakinu segist Guðjón reyndar hafa lagst niður í grjótinu og orgað. Vegfarendur hafi svo komið honum til hjálpar skömmu síðar. Guðjón var fluttur í skyndi í sjúkrabíl til Reykjavíkur en þegar rætt var við lækni á slysadeild Landsspítala-háskólasjúkrahúss í gær sagði hann með ólíkindum að Guðjón skyldi sleppa eins vel og raun bar vitni. Hann var útskrifaður af sjúkrahúsinu í gærkvöldi, óbrotinn með nokkra yfirborðsáverka.
Fréttir Innlent Mest lesið Mátti ekki lána sér pening úr eigin fyrirtæki Innlent Metnaðarfullar malbikunarauglýsingar hluti af væb-kúltúrnum Innlent Fundu jöklafýlu í Þórsmörk vegna hlaupsins Innlent Pilturinn er fundinn Innlent Vill hefna vinar síns Bolsonaro með 50 prósenta tollum á Brasilíu Erlent Bindur vonir við „einn inn, einn út“ áætlun í innflytjendamálum Erlent Sjúklingar óttist dómhörku vegna þyngdarstjórnunarlyfja Innlent Ökumaður bifhjólsins látinn Innlent Ógeðsleg aðkoma að íbúðinni eftir Airbnb-gesti Innlent „Það er engin ástæða til að gefast upp“ Innlent Fleiri fréttir Fundu jöklafýlu í Þórsmörk vegna hlaupsins Metnaðarfullar malbikunarauglýsingar hluti af væb-kúltúrnum Mátti ekki lána sér pening úr eigin fyrirtæki Pilturinn er fundinn „Skýr vísbending um að gera þurfi betur í málefnum erlendra barna“ Sjúklingar óttist dómhörku vegna þyngdarstjórnunarlyfja „Það er engin ástæða til að gefast upp“ Reiðarslag fyrir Landsvirkjun, kjarnorkukafbátur og heimsfræg íslensk kisa „Í næstu umferð fara hlutirnir í gegn“ Tilkynnt um buxnalausan mann og stolinn pizzaofn „Það er enginn svartur listi hjá okkur“ Davíð hafi lagt Golíat Hlaup er hafið úr Mýrdalsjökli Ökumaður bifhjólsins látinn Dettifoss vélarvana úti á ballarhafi Flugvél snúið við vegna bilunar „Enn ein viðurkenning að það má brjóta á fötluðu fólki“ Ógeðsleg aðkoma að íbúðinni eftir Airbnb-gesti Óska eftir vitnum: Missti stjórn og hafnaði á vegriði Bíða niðurstaðna um magakveisuna á Laugarvatni Dómurinn vonbrigði en virkjunin ekki út úr myndinni Kona á fimmtugsaldri í haldi vegna hnífstunguárásar „Nú verður að hafa hraðar hendur“ Hvammsvirkjun í uppnámi og ókyrrð hjá Play Hæstiréttur hafnar Hvammsvirkjun Inga Sæland með galsa á þingi í nótt „Orðaskiftismetið tikið“ Bifhjólamaðurinn „mikið slasaður“ Alvarlegt mótorhjólaslys og Miklubraut lokað Ungt fólk notar frekar samfélagsmiðla en hefðbundna fréttamiðla Sjá meira