Fleiri fréttir

Hlýjast í gær

Hitinn náði 20,3 gráðum í Reykjavík í gær sem er hæsti hiti í borginni í tvö ár.

Ekki síðustu ótíðindin

Um tuttugu manns verður sagt upp um mánaðarmótin hjá Varnarliðinu á Keflavíkurflugvelli. Þeir bætast í hóp þeirra 126 sem sagt hefur verið upp frá 1. október vegna hagræðingar í rekstri Bandaríkjaflota.

Segir nei við Sharon

Verkamannaflokkurinn hefur sent minnihlutastjórn Ariel Sharon viðvörun um að ekki sé hægt að stóla á stuðning þeirra. Vantrauststillaga á ríkisstjórnina var naumlega felld með 55 atkvæðum gegn 50.

Bætist í hóp tilnefndra

Bertie Ahern, forsætisráðherra Írlands, og Jean-Claude Juncker, forsætisráðherra Lúxemborgar, bættust í gær í hóp þeirra manna sem eru orðaðir við forsetaembætti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins.

Ævilangt fangelsi

"Þessi maður er siðblindur og ráðskast með fólk af fullu samviskuleysi og það mun aldrei breytast," sagði Michel Bourlet, saksóknari í málinu gegn barnaníðingnum og morðingjanum Marc Dutroux.

Stækkun ESB til umræðu

Geir H. Haarde, fjármálaráðherra, sat leiðtogafund Eystrasaltsráðsins í Laulasmaa í Eistlandi í gær af hálfu Íslands í fjarveru Davíðs Oddssonar, forsætisráðherra.

Hitnar í kolunum

Stjórnvöld í Kongó hafa stefnt 5.000 hermönnum til landamærahéraðanna í austurhluta landsins. Stjórnvöld segja þetta gert til að halda aftur af fyrrum uppreisnarmönnum sem eru farnir að láta á sér kræla á nýjan leik en í Rúanda óttast menn að liðsflutningarnir kunni að vera fyrirboði innrásar.

Mun betri falsanir

Fölsuðum evruseðlum rignir yfir Evrópu, sögðu fyrirlesarar á lögregluráðstefnu um peningafalsanir sem haldin er í Sofiu, höfuðborg Búlgaríu.

Olían tekin að flæða

Olíuútflutningur Íraka er að komast í gang aftur eftir að tókst að laga olíuleiðslur um helgina.

Viagra vinsælt í Írak

Það eru líkast til lítil tíðindi að stríð legst á sálina á þeim sem þola verða það, og getur valdið ýmis konar aukaverkunum. Í Írak verða landsmenn þessa varir, og svo virðist sem kynlíf Íraka hafi látið nokkuð á sjá. Þessa ályktun draga í það minnsta fréttamenn sem könnuðu svarta markaðinn í Bagdad nýlega.

Færeyjarlax gjaldþrota

Færeyjalax, sem var eitt stærsta fiskeldisfyrirtæki í Færeyjum, er gjaldþrota. Fyrirtækið er í Klakksvík og var gríðarleg uppsveifla á því fyrir nokkrum árum þegar það skilaði hátt í 500 milljóna króna hagnaði eitt árið.

Þverrandi trú á getu Bush

Í fyrsta sinn frá því að mælingar hófust er nú meira en helmingur Bandaríkjamanna á því, að stríðið í Írak hafi ekki verið fórnanna virði. Vinsældir Bush forseta fara þverrandi, en fylgi við keppinaut hans, Kerry, eykst. Þetta kemur fram í nýrri könnun sjónvarpsstöðvarinnar ABC og Washington Post.

Norðmenn hræddir við hryðjuverk

Tæpur þriðjungur Norðmanna óttast hryðjuverk í sumarfríinu sínu og lætur þann ótta hafa áhrif á val áfangastaðar, samkvæmt Verdens Gang í dag. Þar kemur fram að flestir óttast ferðir til Miðausturlanda, eða hart nær 60 prósent, en 23 prósent þora ekki til strandríkja Miðjarðarhafsins og 21 prósent vilja ekki ferðast til Bandaríkjanna, af ótta við hryðjuverkaárásir.

Fiskiskip undanþegin frá reglum

Fiskiskip verða undanþegin nýjum reglum um hafna- og siglingavernd gegn hryðjuverkum, sem taka gildi um næstu mánaðamót. Það verður því engin röskun á löndun íslenskra fiskiskipa í útlöndum eða á löndunum erlendra skipa hér á landi þegar reglurnar taka gildi.

Ekkert fréttist af gíslinum

Ekkert hefur frést af örlögum suður-kóresk gísls, sem mannræningjar hótuðu að afhöfða, kölluðu stjórnvöld í Suður-Kóreu ekki heim hersveitir sínar í Írak. Frestur hafði verið gefinn til miðnættis, en enn sem komið er hafa engar fréttir borist. 

Handsömuðu átta breska hermenn

Íranir náðu þremur breskum herbátum á sitt vald í gær og handsömuðu átta breska hermenn, sem voru um borð í bátunum. Bátarnir voru á siglingu á landamærasvæði milli Íraks og Írans, en Íranir segja bátana hafa komið inn í landhelgi Írans.

Stal bíl þriggja ferðakvenna

Ölvaður maður, sem ekki átti fyrir leigubíl og var á gangi eftir Sæbrautinni í nótt, taldi sig hafa verið bænheyrðan þegar hann gekk fram á mannlausan bíl í gangi við listaverkið Sólfarið, sté upp í hann og ók á brott. Þremur erlendum ferðakonum, sem höfðu numið staðar við Sólfarið til að njóta þar veðurblíðunnar, var hinsvegar illa brugðið.

Árshækkun launavísitölu er 4,6%

Launavísitala í maí 2004 er 249,5 stig og hækkaði um 0,8% frá fyrra mánuði. Á einu ári hefur launavísitalan hækkað um 4,6%. Launavísitala sem gildir við útreikning greiðslumarks fasteignaveðlána í júlí 2004, er 5457 stig.

Aftöku frestað í sólarhring

Mannræningjarnir í Írak, sem hótað hafa að höggva höfuðið af suður-kóreskum gísl og senda stjórnvöldum í Seol það í pósti, hafa framlegt frest sem suður-kóreustjórn fékk til að kalla hermenn sína heim frá Írak. Upphaflega höfðu mannræningjarnir hótað að afhöfða gíslinn á miðnætti í nótt, en þeir hafa nú frestað því um sólarhring.

Kvæntir með hærri laun

Kvæntir karlar í Bandaríkjunum hafa talsvert hærri meðallaun en ókvæntir karlar, að því greint er frá í tímariti KPMG. Þó er munur á ókvæntum körlum. Þeir sem hafa einhvern tímann verið kvæntir, hafa að meðaltali hærri laun en þeir sem aldrei hafa kvænst.

Enskur aðdáandi drepinn í Portúgal

Enskur knattspyrnuaðdáandi var stunginn til bana í Lissabon í Portúgal snemma í morgun, og hefur Úkraínumaður verið handtekinn fyrir morðið. Talið er að hann hafi reynt að ræna manninn, og að morðið tengist ekki Evrópumótinu í knattspyrnu eða fótboltabullum.

Feministar gagnrýna orðalag

Feministafélag Íslands gerir athugasemd við fréttaflutning fjölmiðla af eiturlyfjasmygli ungrar konu sem kom til landsins með 5000 e-töflur. Í ályktun frá Heilbrigðishóp félagsins segir að fjölskylduhagir eða ástand konunnar komi málinu ekki við enda væri yfirleitt ekki minnst á hjúskaparstöðu eða barnafjölda karlkyns afbrotamanna í fréttum.

Götuvændi dregst saman um 90%

Sænskir glæpaskúnkar og fjárkúgarar eru farnir að hóta fórnarlömbum sínum að beita lögreglunni og dómstólum fyrir sig við innheimtuaðgerðir sínar. Þessi furðulega staða að skúrkar beiti fyrir sig lögreglunni við innheimtuaðgerðir, er kominn upp í kjölfar nýlegra laga sem sakfella þá, sem kaupa sér vændi.

Allir helstu hálendisvegir færir

Allir helstu hálendisvegir eru orðnir færir og er það mun fyrr en oftast hefur verið. Snjóa leysti óvenju snemma og frost fór líka fyrr úr jörðu en venjulega þannig að ekki er lengur hætta á aurbleytu. Enn er þó ófær Gæsavatnaleið í Öskju, en fært er að Öskju norðanmegin. Þá er svæði norðan Langjökuls enn lokað, en þar eru einungis fáfarnir slóðar.

Grænfriðungar á Ísafirði

Nýjasta skip Grænfriðunga, Esperanza, kom til Ísafjarðar í morgun. Hrefnuveiðar Íslendinga í vísindaskyni eru ein ástæða komu Grænfirðunga hingað. Þá ætla þeir að vekja athygli landsmanna á baráttumálum vegna mengunar sjávar og loftlagsbreytinga.

Stefnt að reglulegum siglingum

Áhafnir á fjórtán sportbátum eru þegar búnar að skrá sig í hópsiglingu frá Ísafirði yfir til Grænlands eftir mánuð og er stefnt að reglulegum siglingum þangað í framtíðinni. Siglingaleiðin er 220 mílur og er ákvörðunarstaðurinn Miki fjörður á Austurströndinni.

Kjör verða ljós um mánaðamót

Það skýrist um næstu mánaðamót hver kjör verða á hinum nýju peningalánum Íbúðalánasjóðs, sem eiga að leysa húsbréf af hólmi. Grunnvextir eiga þá að liggja fyrir en síðan leggur stofnunin álag á þá, en ekki er ákveðið hversu mikið það verður. Þá hefur sjóðurinn kynnt skiptiútboð vegna breytinga á húsbréfum yfir í íbúðalán, fyrir þá sem eiga húsbréf, og segir greiningardeild KB banka að stofnunin bjóði hagstæð skiptikjör.

Harðir bardagar í Rússlandi

Harðir og skyndilegir bardagar kostuðu 46 hið minnsta lífið í rússneska héraðinu Ingúsétíu í morgun. Téténskum aðskilnaðarsinnum er kennt um átökin, en þeir réðust á mörg skotmörk í héraðinu.

Óvenjuleg loðnuvertíð

Fimm stór fiskiskip halda til loðnuleitar í dag og á morgun og Hafrannsóknaskipið Árni Friðriksson bætist svo við á föstudag. Í venjulegu árferði væri sumarvertíðin komin í fullan gang. Við eðlilegar aðstæður hefði vertíðin hafist fyrir þremur dögum, en lítið sem ekkert hefur fundist af loðnu þrátt fyrir mikla leit.

Tveimur vísað úr landi

Tveimur af þeim þremur Palestínumönnum, sem voru í gæsluvarðhaldi eftir að þeir komu til landsins með fölsuð skilríki, var vísað úr landi í morgun. Þriðja manninum verður vísað úr landi í fyrramálið. Talsmaður þeirra gagnrýnir málsmeðferðina harðlega.

Ísland aldrei í sambandið

Ný stjórnarskrá Evrópusambandsins kemur endanlega í veg fyrir að Ísland og Noregur gangi nokkurn tímann í sambandið, segir í umfjöllun norska Fiskeríblaðsins um nýju stjórnarskrána.

Þjónusta í borginni endurskipulögð

Reykjavíkurborg hefur ákveðið að ráðast í gagngera endurskipulagningu á þjónustu borgarinnar með það fyrir augum að greiða leiðir borgarbúa að henni. Meðal annars verða stofnaðar fimm þjónustumiðstöðvar í hverfum borgarinnar. Kostnaður vegna breytinganna nemur um 200 milljónum króna.

Vilja Hringbraut í opinn stokk

Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi, segir tillögu Samtaka um betri byggð, um að setja Hringbraut í opinn stokk, skynsamlega og telur ástæðu til að fara betur ofan í hana. Hann vill meðal annars láta meta hvort raunhæft sé að laga tillöguna að framkvæmdunum við Hringbraut.

Konungleg heimsókn í Grænlandi

Grænland hélt upp á 25 ára afmæli heimastjórnar í gær. Viðstödd hátíðarhöldin voru Margrét Danadrottning og Henrik prins. Anders Fogh Rasmussenn, forsætisráðherra Dana, sagði í ræðu sinni að honum væri mikið ánægjuefni að geta skrifað undir skipunarbréf grænlensku stjálfstjórnarnefndarinnar á þessum degi.

1000 umsækjendum vísað frá

Meira en helmingi umsækjenda Kennaraháskólans verður vísað frá í ár. Nær 1900 umsóknir bárust en rúmlega 900 fá inngöngu í skólann. 685 í grunndeild og 218 í framhaldsdeild.

Ekki skjóta kanslarann

Í annað skipti á skömmum tíma hefur Gerhard Schröder, kanslari Þýskalands, fengið samþykkt lögbann á útgáfu glæpasögu þar sem ónefndur kanslari er skotinn til bana í heimaborg Schröders.

Dómur kveðinn yfir Dutroux

Belgíski barnamorðinginn og níðingurinn Marc Dutroux var í dag dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir mannrán, nauðgun og morð á ungum stúlkum fyrir um átta árum. Fyrrverandi eiginkonan hans, Michelle Martin, var dæmd í 30 ára fangelsi fyrir mannrán og nauðgun.

Akrafell í flota Samskipa

Samskip hafa bætt við skipi á siglingaleiðinni milli Íslands, Færeyja og meginlands Evrópu. Verður félagið framvegis með viðkomu vikulega á Reyðarfirði og í Klakksvík í Færeyjum í stað hálfsmánaðarlega áður.

Eitt brýnasta hagsmunamálið

Þingflokkur Samfylkingarinnar telur það eitt brýnasta hagsmunamál fyrir íslenskar fjölskyldur að ráðist verði í nauðsynlegar stjórnvaldsaðgerðir til að lækka matarverð og bendir á hve þungt slíkar breytingar muni vega fyrir ferðamannaþjónustu í landinu.

Stofnun gegn spillingu

Dómsmálaráðherrar Norðurlanda eru sammála um að herða baráttuna gegn alþjóðlegri glæpastarfsemi á borð við peningaþvætti, verslun með fólk og fíkniefnasmygl, en slík glæpastarfsemi hefur aukist umtalsvert undanfarin ár og þykir mjög ógnandi.

Metþátttaka í Nordisk Panorama

Tæplega 450 stutt- og heimildarmyndir bárust í keppni Nordisk Panorama kvikmyndahátíðarinnar, og er það metþátttaka. Fjöldi íslenskra mynda sem sendar voru inn var einnig meiri en nokkru sinni fyrr eða um 40.

Sendiskrifstofur opnaðar í Úganda

Utanríkisráðuneytið og Þróunarsamvinnustofnun Íslands hafa ákveðið að gera umdæmisskrifstofur stofnunarinnar í Úganda og Malaví að sendiskrifstofum Íslands .

Fáir hafa kosið utan kjörstaðar

Helmingi færri hafa greitt atkvæði utankjörfundar nú en fyrir síðustu forsetakosningar. Þrátt fyrir það var þó nokkuð að gera hjá sýslumannsembættinu í Reykjavík í dag þar sem margir voru að nýta atkvæðisréttinn. 547 greiddu þar atkvæði í dag, en samtals eru 2957 búnir að kjósa í Skógarhlíðinni.

Deep Purple á Íslandi

Hljómsveitin Deep Purple ætlar að endurnýja kynni sín af Íslendingum næstu tvö kvöld, en síðast þegar þeir héldu tónleika hér á landi, voru þeir vægast sagt endasleppir. Deep Purple kom hingað til lands síðast árið 1971 og troðfylltu Laugardalshöllina, þar sem þeir munu leika annað kvöld og á fimmtudagskvöld.

Þýskur áróðursruslpóstur

Þýskur pólitískur ruslpóstur hefur undanfarna daga hrannast upp í pósthólfum tölvunotenda um allan heim. Talið er að öfgahópur hafi fengið tölvuþrjóta í lið með sér til að geta dreift áróðri sínum um netið.

Sjá næstu 50 fréttir