Þverrandi trú á getu Bush 22. júní 2004 00:01
Í fyrsta sinn frá því að mælingar hófust er nú meira en helmingur Bandaríkjamanna á því, að stríðið í Írak hafi ekki verið fórnanna virði. Vinsældir Bush forseta fara þverrandi, en fylgi við keppinaut hans, Kerry, eykst. Þetta kemur fram í nýrri könnun sjónvarpsstöðvarinnar ABC og Washington Post. Svo virðist sem almenningur í Bandaríkjunum hafi í vaxandi mæli áhyggjur af sífelldu mannfalli í Írak og langtímaáhrifum stríðsins þar. Þessar áhyggjur eru taldar meginástæða þess, að forskot George Bush, forseta Bandaríkjanna, á demókratann John Kerry, hefur snarminnkað, þegar spurt er hvor sé betur til þess fallinn að stýra baráttunni gegn hryðjuverkamönnum. Almenningur í Bandaríkjunum hefur þverrandi trú á getu Bush forseta til að sigra í hryðjuverkastríðinu, aðeins helmingur er nú sáttur við frammistöðu hans í þeirri baráttu, átta prósentum minna en í síðasta mánuði og 13 prósentum minna en í apríl. 47 % telja Bush best til þessa verks fallinn, en 48 prósent velja frekar Kerry. Fyrir tveimur mánuðum var munurinn á Bush og Kerry 21 prósent. Þetta eru vond tíðindi fyrir Bush, sem hefur hreykt sér af eigin frammistöðu í baráttunni gegn hryðjuverkum og í stríðsrekstrinum í Írak. Fram til þessa hefur hann fengið góða einkunn fyrir frammistöðu sína, en sífelldar fregnir af hryðjuverkum og mannfalli hafa dregið úr trausti kjósenda. Sé litið til sögunnar, hafa forsetar, sem sækjast eftir endurkjöri og njóta jafn lítils trausts á sama tíma í kosningabaráttunni mjög átt á brattann að sækja. Þó að hryðjuverkastríðinu og stríðinu í Írak sé iðulega blandað saman, er einnig spurt sérstaklega um Írak og þar hefur einkunn Bush hækkað nokkuð, og ánægja Bandaríkjamanna með frammistöðu hans í efnahagsmálum hefur aukist. Kerry hefur samt vinninginn í lykilmálaflokkum, en 21 prósenti fleiri telja að hann standi sig betur í heilbrigðismálum en Bush, í skattamálum er munurinn 13 prósent; menntamálum 10 prósent; í alþjóðamálum átta og efnahagsmálum fimm prósent. Þessu til viðbótar hafa 48 Nóbelsverðlaunahafar lýst yfir stuðningi við Kerry og gagnrýna þeir jafnframt Bush fyrir að virða vísindin að vettugi.
Erlent Fréttir Mest lesið Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Fleiri fréttir Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Sjá meira