Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Tómas Arnar Þorláksson, Freyja Þórisdóttir og Eiður Þór Árnason skrifa 6. september 2026 13:04 Hér má sjá gatnamótin inn Víðidal. vísir/vilhelm Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu veitti Hopp-deilibíl eftirför frá Lágmúla að Víðidal í dag. Ökumaður Hopp-bílsins er talinn hafa verið undir áhrifum en hann ók utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvö lögreglubíla á för sinni. Hann er sagður hafa ekið á allt að 140 kílómetra hraða. Töluverður viðbúnaður lögreglu var á svæðinu og heyrðust sírenur óma víða um borgina. Þá sáust fjölmörg bifhjól lögreglu bruna í átt að austurhluta Reykjavíkur. Ók Hopp-bílnum utan í lögreglubíl undir áhrifum Lokað var fyrir umferð á svæðinu tímabundið. Þetta staðfestir Sævar Guðmundsson, varðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Hann segir eftirförina hafa hafist í Lágmúlanum eftir að tilkynning barst um glæfralegt aksturslag ökumanns í annarlegu ástandi. Eftirförin náði alla leið frá Lágmúla og að Víðidal þar sem för ökutækisins var stöðvuð en ekki liggur fyrir með hvaða hætti að svo stöddu. Grunur leikur á um að ökumaðurinn hafi verið undir áhrifum við aksturinn og var aksturslag hans nokkuð háskalegt en hraðast náði hann 140 kílómetra hraða á klukkustund. Hopp-deilibíllinn var nokkuð tjónaður að eftirför lokinni en á för sinni keyrði ökumaðurinn utan í minnst fjórar bifreiðar, þar af tvo lögreglubíla. Maðurinn var ekki vopnaður og var handtekinn á vettvangi. Engan sakaði og gistir maðurinn fangageymslu lögreglu þar til hann verður viðræðuhæfur, að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglu sem barst síðdegis í dag. Fjöldi lögreglubíla og tjónaður bíll Ábendingar bárust fréttastofunni um eftirförina og segjast margir hafa séð Hopp-deilibíl á verulegum hraða eltan af í það minnsta fimm lögreglubílum og tveimur bifhjólum lögreglu. „Við vorum að keyra sem sagt bara frá Ögurhvarfi, það kemur inn á hringtorgið og þegar ég tek vinstri beygjuna á hringtorginu þá sé ég þessa hvítu Hopp-bifreið koma á örugglega alveg á 120-130 kílómetrum á klukkustund, jafnvel hraðar,“ segir Gunnar Axel Gunnarsson en hámarkshraðinn á svæðinu er áttatíu kílómetrar á klukkustund. Veistu meira um málið? Ertu á svæðinu eða áttu myndefni? Sendu okkur fréttaskot. Einnig er hægt að senda póst á ritstjorn@visir.is Hann hafi svo tekið eftir því að skráningarplata bílsins hafi verið löskuð eins og bíllinn hafi lent í einhverju smátjóni. „Í framhaldi koma þarna einhverjir allavega fjórir lögreglubílar, mjög hratt á eftir honum, eitt mótorhjól og síðan í það minnsta tveir ómerktir lögreglubílar sem voru svona 300 metra aftar, greinilega bara að reyna að ná þeim.“ Fleiri sjónarvottar lýstu því að bíllinn hafi virst áberandi tjónaður og klesstur. Fréttin var síðast uppfærð klukkan 17:18 með upplýsingum úr tilkynningu frá lögreglu. Umferð Reykjavík Bílar Lögreglumál Tengdar fréttir Flúði á Hopp-deilibíl eftir innbrot og ók yfir göngubrú Karlmaður sem var handtekinn í gær vegna gruns um innbrot í Efstaleitisapótek flúði vettvang á Hopp-deilibíl. Maðurinn var handtekinn eftir eftirför í bíl og á fæti. 2. júlí 2026 09:13 Mest lesið Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Sjá meira
Töluverður viðbúnaður lögreglu var á svæðinu og heyrðust sírenur óma víða um borgina. Þá sáust fjölmörg bifhjól lögreglu bruna í átt að austurhluta Reykjavíkur. Ók Hopp-bílnum utan í lögreglubíl undir áhrifum Lokað var fyrir umferð á svæðinu tímabundið. Þetta staðfestir Sævar Guðmundsson, varðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Hann segir eftirförina hafa hafist í Lágmúlanum eftir að tilkynning barst um glæfralegt aksturslag ökumanns í annarlegu ástandi. Eftirförin náði alla leið frá Lágmúla og að Víðidal þar sem för ökutækisins var stöðvuð en ekki liggur fyrir með hvaða hætti að svo stöddu. Grunur leikur á um að ökumaðurinn hafi verið undir áhrifum við aksturinn og var aksturslag hans nokkuð háskalegt en hraðast náði hann 140 kílómetra hraða á klukkustund. Hopp-deilibíllinn var nokkuð tjónaður að eftirför lokinni en á för sinni keyrði ökumaðurinn utan í minnst fjórar bifreiðar, þar af tvo lögreglubíla. Maðurinn var ekki vopnaður og var handtekinn á vettvangi. Engan sakaði og gistir maðurinn fangageymslu lögreglu þar til hann verður viðræðuhæfur, að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglu sem barst síðdegis í dag. Fjöldi lögreglubíla og tjónaður bíll Ábendingar bárust fréttastofunni um eftirförina og segjast margir hafa séð Hopp-deilibíl á verulegum hraða eltan af í það minnsta fimm lögreglubílum og tveimur bifhjólum lögreglu. „Við vorum að keyra sem sagt bara frá Ögurhvarfi, það kemur inn á hringtorgið og þegar ég tek vinstri beygjuna á hringtorginu þá sé ég þessa hvítu Hopp-bifreið koma á örugglega alveg á 120-130 kílómetrum á klukkustund, jafnvel hraðar,“ segir Gunnar Axel Gunnarsson en hámarkshraðinn á svæðinu er áttatíu kílómetrar á klukkustund. Veistu meira um málið? Ertu á svæðinu eða áttu myndefni? Sendu okkur fréttaskot. Einnig er hægt að senda póst á ritstjorn@visir.is Hann hafi svo tekið eftir því að skráningarplata bílsins hafi verið löskuð eins og bíllinn hafi lent í einhverju smátjóni. „Í framhaldi koma þarna einhverjir allavega fjórir lögreglubílar, mjög hratt á eftir honum, eitt mótorhjól og síðan í það minnsta tveir ómerktir lögreglubílar sem voru svona 300 metra aftar, greinilega bara að reyna að ná þeim.“ Fleiri sjónarvottar lýstu því að bíllinn hafi virst áberandi tjónaður og klesstur. Fréttin var síðast uppfærð klukkan 17:18 með upplýsingum úr tilkynningu frá lögreglu.
Veistu meira um málið? Ertu á svæðinu eða áttu myndefni? Sendu okkur fréttaskot. Einnig er hægt að senda póst á ritstjorn@visir.is
Umferð Reykjavík Bílar Lögreglumál Tengdar fréttir Flúði á Hopp-deilibíl eftir innbrot og ók yfir göngubrú Karlmaður sem var handtekinn í gær vegna gruns um innbrot í Efstaleitisapótek flúði vettvang á Hopp-deilibíl. Maðurinn var handtekinn eftir eftirför í bíl og á fæti. 2. júlí 2026 09:13 Mest lesið Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Sjá meira
Flúði á Hopp-deilibíl eftir innbrot og ók yfir göngubrú Karlmaður sem var handtekinn í gær vegna gruns um innbrot í Efstaleitisapótek flúði vettvang á Hopp-deilibíl. Maðurinn var handtekinn eftir eftirför í bíl og á fæti. 2. júlí 2026 09:13