Upp­gjörið: Valur – Þór/KA 0-0 | Marka­laust í bragðdaufum leik á Hlíðar­enda

Gunnar Egill Daníelsson skrifar
Valskonur náðu ekki að landa sigri í kvöld og voru svekktar með úrslitin á móti einu neðsta liði deildarinnar.
Valskonur náðu ekki að landa sigri í kvöld og voru svekktar með úrslitin á móti einu neðsta liði deildarinnar. Vísir/Diego

Valur og Þór/KA gerðu markalaust jafntefli í áttundu umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta á N1 vellinum á Hlíðarenda í kvöld. Valur er áfram í áttunda sæti deildarinnar, nú með átta stig, og Þór/KA er á botninum með þrjú stig.

Fyrri hálfleikur var afar lokaður en Valur var þó töluvert líklegri til þess að brjóta ísinn.

Ísabella Sara Tryggvadóttir átti bylmingsskot beint úr aukaspyrnu af mjög löngu færi á 11. mínútu en skotið hafnaði í stönginni.

Margrét Brynja Kristinsdóttir átti þá góðan sprett eftir rúmlega hálftíma leik en Alessandra Augur í marki Þórs/KA varði táarskot hennar hægra megin úr teignum. Skömmu fyrir leikhlé reyndi Lillý Rut Hlynsdóttir skot langt fyrir utan teig en það hafnaði ofan á markinu.

Markalaust var því þegar flautað var til leikhlés.

Þór/KA hóf síðari hálfleikinn betur og átti Hildur Anna Birgisdóttir fínt skot eftir góðan sprett á vinstri kantinum á 56. mínútu en Tinna Brá Magnúsdóttir í marki Vals varði vel á nærstönginni.

Tíu mínútum síðar slapp varamaðurinn Erin Flurey ein í gegn en Tinna Brá var eldsnögg út úr markinu og handsamaði boltann áður en Flurey gat tekið skotið.

Flurey komst í ágætt færi hægra megin í vítateignum sex mínútum fyrir leikslok en skotið fór yfir markið.

Í uppbótartíma átti Kimberley Dóra Hjálmarsdóttir hörkuskot í kjölfar aukaspyrnu, það stefndi að marki en hafnaði að lokum í varnarmanni. Hinum megin átti varamaðurinn Bríet Jóhannsdóttir einnig skot eftir góða sókn en það fór sömuleiðis í varnarmann.

Fleiri urðu færin ekki og markalaust jafntefli því niðurstaðan.

Atvik leiksins

Í bragðdaufum leik verður aukaspyrna Ísabellu Söru Tryggvadóttur fyrir valinu. Svakalegt skot lengst af vinstri kantinum sem small í stönginni.

Stjörnur og skúrkar

Markverðir liðanna, Alessandra Augur og Tinna Brá Magnúsdóttir, stóðu eins og lokatölurnar gefa til kynna mjög vel fyrir sínu, gripu vel inn í og vörðu nokkrum sinnum vel.

Arna Sif Ásgrímsdóttir var sem klettur í miðri vörn Þórs/KA og Lillý Rut Hlynsdóttir í miðri vörn Vals. Hildur Anna Birgisdóttir var sprækust sóknarlega hjá Þór/KA og Ísabella Sara hjá Val.

Skúrkar eru um leið allir leikmenn beggja liða fyrir að hafa ekki skorað eitt einasta mark í leiknum.

Dómarinn

Bergrós Lilja Unudóttir og teymi hennar, sem samanstóð einungis af konum, dæmdi leikinn afskaplega vel. Til fyrirmyndar.

Stemning og umgjörð

Það var lítil stemning á leiknum en rættist prýðilega úr mætingunni. Í upphafi leiks voru bara örfáar hræður í stúkunni en fólk fór að skila sér eftir að hann hófst. Hvað umgjörðina varðar var ekki opið í Fjósinu að þessu sinni, þeir sem sjá um það voru vant við látnir í öðrum verkefnum. Því var þetta allt með rólegasta móti í blíðunni á Hlíðarenda í dag.

„Takk fyrir að minna mig á það“

Aðalsteinn Jóhann Friðriksson þjálfari Þór/KA.Guðmundur/Vísir

Valur og Þór/KA gerðu markalaust jafntefli í áttundu umferð Bestu deildar kvenna á Hlíðarenda í dag. Aðalsteinn Jóhann Friðriksson, þjálfari Þórs/KA, var sáttur með spilamennsku síns liðs.

„Já, bara nokkuð ánægður með Þór/KA í dag, við sýndum spirit og vorum að berjast fyrir hvora aðra og héldum markinu okkar hreinu. Umfram allt er ég ánægður með hugarfarið hjá okkur, ég tek það út úr því. “

Þór/KA eru þó enn án sigurs í deildinni, en Norðankonur sitja í neðsta sæti deildarinnar með þrjú stig. Þær geta þó gengið sáttar frá borði eftir ágæta frammistöðu á útivelli gegn Valskonum og Aðalsteinn er bjartsýnn á að það styttist í fyrsta sigurinn.

Þið eigið enn eftir að vinna leik á þessu tímabili. Styttist í fyrsta sigurinn?

„Takk fyrir að minna mig á það. Það styttist með hverjum leiknum. Þróttur á heimavelli í næstu umferð og ef við setjum sama hjarta og sama vinnuframlag og spirit í leikinn þá eru okkur allir vegir færir og ég hef fulla trú á því að við vinnum á heimavelli í næstu umferð.“

Sleppum því að horfa í baksýnisspegilinn

Málfríður Anna Eiríksdóttir, fyrirliði Vals.Vísir/Guðmundur Þórlaugarson

Málfríður Anna Eiríksdóttir, fyrirliði Vals, viðurkennir fúslega að lið eins og Valur eigi að vera með fleiri stig en einungis átta eftir átta umferðir í Bestu deildinni í fótbolta. Í kvöld gerði Valur markalaust jafntefli við botnlið Þórs/KA á N1 vellinum á Hlíðarenda.

„Mér fannst við vera með undirtökin í þessum leik. Mér fannst við vera mjög fínar, sérstaklega í fyrri hálfleiknum þegar við vorum með góða orku og að skapa fullt af fínum færum. Síðan duttum við kannski svolítið niður í seinni hálfleik þar sem hvorugt liðið var að skapa sér eitthvað rosalega mikið.

Mér fannst þetta ágætur fyrri hálfleikur en hefði viljað aðeins meira í seinni hálfleik til þess að ná inn markinu,“ sagði Málfríður Anna í samtali við Sýn Sport eftir leik.

Hefur verið upp og niður

Mörkin hafa verið af skornum skammti hjá Val í sumar, aðeins sjö í Bestu deildinni. En hvað þarf Valur að bæta til þess að mörkunum fari að fjölga?

„Það er erfitt að segja. Fleiri fyrirgjafir, meiri grimmd, betra spil úr vörninni. Bara allt saman,“ sagði hún og fór svo hreinskilnislega yfir tímabilið hingað til.

„Þetta hefur verið svona upp og niður hjá okkur. Margir fínir leikir og margir leikir sem eru alls, alls ekki nógu góðir. Við þurfum að sleppa því að horfa í baksýnisspegilinn og horfa fram á við til þess að reyna að gera betur í næsta leik.“

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira