Meistarakeppni kvenna í fótbolta aflýst vegna veðurs Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar 2. apríl 2026 15:14 Það var allt reynt til þess að gera hliðarlínurnar sýnilegar. Hulda Margrét Leik Breiðabliks og FH í Meistarakeppni kvenna í fótbolta var aflýst í dag vegna veðurs. Leiknum var fyrst um sinn frestað um korter vegna mikillar snjókomu en eftir að liðin höfðu spilað í átta mínútur var leikurinn stöðvaður.
Meistarakeppnin er árlegur viðburður þar sem ríkjandi Íslands- og bikarmeistarar mæta í leik til þess að útkljá hverjir séu meistarar meistaranna. Breiðablik er hins vegar bæði ríkjandi Íslands- og bikarmeistarar. Árangur FH á síðasta tímabili veitti liðinu þátttökurétt í Meistarakeppninni þetta árið. Leikurinn í dag var til styrktar Kolfinnu Rán Færseth. Kolfinna er fótboltastelpa fædd árið 2013 en hún berst við krabbamein. Allur ágóði af leiknum rennur óskiptur til Kolfinnu. Reikningur Kolfinnu: 0702-15-190113 Kt.190113-2210 #FyrirKolfinnu Hulda Margrét Leiknum var fyrst um sinn frestað um 15 mínútur og á meðan voru tveir traktorar að skafa völlinn. Það bar hins vegar lítinn árangur. Stöðufundurinn kl 14:00 þegar leikurinn átti að hefjast en þá var tekin ákvörðun um að fresta upphafsflautinu um korter.Hulda Margrét Traktorarnir reyndu sitt besta í dag.Hulda Margrét Línur á vellinum voru hvergi sjáanlegar og voru menn út um allan völl að reyna skafa markmannsteiginn og hliðarlínurnar á meðan leik stóð. Það voru allir að reyna sitt allra besta.Hulda Margrét Vægast sagt slæmar aðstæður til þess að spila fótbolta í.Hulda Margrét Steinunn Erna, markvörður FH, varði frábærlega í þrígang á fyrstu mínútum leiksins.Hulda Margrét Eftir um átta mínútur var leikurinn stöðvaður þar sem fyrirliðar liðanna ræddu saman við dómara leiksins og ákvörðun var tekin um að fresta leiknum um korter í viðbót og taka svo stöðuna. Þjálfarar liðanna ræða sín á milli.Hulda Margrét Áfram hélt að kyngja niður snjó og snjómokstur bar engan árangur. Niðurstaðan því sú að leikurinn verði spilaður sólarhring síðar eða á morgun föstudaginn langa kl 14:00 á Kópavogsvelli. Varamannabekkur FH stytti sér stundir á meðan stöðufundur fór fram.Hulda Margrét Eini afrakstur dagsins ef svo má segja.Hulda Margrét
Fótbolti FH Breiðablik Mest lesið Vinicius hefur gjörbreyst eftir lýtaaðgerð Fótbolti Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Íslenski boltinn „Kannski ekki besta umhverfið eins og staðan var“ Íslenski boltinn Vill afsögn Infantino: „Veit ekki hvort þögnin eða meðsektin er verri“ Fótbolti Stoðsendingakóngur HM sakaður um ógreitt meðlag Fótbolti Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Fótbolti Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Enski boltinn „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Handbolti Heimsleikarnir í beinni: Fyrstu skref Bergrósar á stærsta sviðinu Sport Liðalaus Stones eftirsóttur Fótbolti Fleiri fréttir „Kannski ekki besta umhverfið eins og staðan var“ Eyjakonur þétta vörnina Vandræðalega slakar Valskonur: „Til skammar“ Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Uppgjörið: Valur – Breiðablik 1-7 | Hrafnhildur Ása og Agla María tættu vörn Vals í sig Uppgjörið: Fylkir – Afturelding 3-4 (1-1) | Afturelding í úrslit bikarkeppninnar í fyrsta sinn Uppgjörið: FH – Stjarnan 7-3 | FH heldur toppsætinu Sögulegur leikur fyrir Mosfellinga Pressuóðir Ísraelar í Víkinni Sjáðu draumainnkomu Söntu í íslenska boltann „Þetta lítur bara illa út“ Bossabissnessinn blómstrar samhliða boltanum Bjarni Guðjóns viðurkenndi að dæma átti víti á son hans Sjáðu langskotaveislu Keflvíkinga í stórsigri á Skagamönnum Uppgjörið: FH – Breiðablik 0-0 | Markalaust þrátt fyrir fjölda færa og umdeilanleg atvik Uppgjör: Keflavík – ÍA | Slátrun á Suðurnesjunum Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Þróttur 4-2 | Ótrúleg endurkoma og nýliðaþrenna Sjáðu Fram og Þór/KA hrista vel upp í fallbaráttunni í Bestu kvenna Beið spenntur eftir því að Amin færi út Sjáðu Stjörnusnakksmáltíð KR-inga og markajafntefli í Eyjum „Vorum bara litlar í okkur og vorum bara hérna að grenja“ „Frábært að vera komnar á sigurbraut aftur“ Sjáðu mörkin þegar Þór vann meistarana og Fram sótti sigur á Hlíðarenda „Fannst mikilvægt að byrja þetta með krafti“ „Satt best að segja er mér drullusama“ Uppgjörið: Þór/KA - ÍBV 2-1 | Þriðji sigurinn í síðustu fjórum leikjum Uppgjörið: KR - Stjarnan 5-0 | Muldir mélinu smærra „Flengdir á beran bossann og þá þarf að skammast sín“ „Mér fannst þetta ekki víti“ „Ég þakkaði bara Guði“ Sjá meira