Innlent

Sex þúsund páska­egg til sjö þúsund starfs­manna

Jakob Bjarnar skrifar
Helga Vilhjálmssyni og hans fólki hjá Góu er þakkað sérstaklega í pósti til allra starfsmanna Landspítalans. Ragnar Freyr læknir viðraði óánægju sína með að starfsfólk fengi ekki páskaegg í ár og Helgi brást skjótt við.
Helga Vilhjálmssyni og hans fólki hjá Góu er þakkað sérstaklega í pósti til allra starfsmanna Landspítalans. Ragnar Freyr læknir viðraði óánægju sína með að starfsfólk fengi ekki páskaegg í ár og Helgi brást skjótt við. vísir

„Við sendum Helga Vilhjálmssyni og hans góða starfsfólki bestu kveðjur og þakkir fyrir þessa rausnarlegu gjöf.“ Svo segir í pósti til allra starfsmanna Landspítalans sem Vísir hefur undir höndum.

Kálið er ekki sopið þótt í ausuna sé komið – það er meira en að segja það að dreifa eggjum til starfsfólks Landspítalans með svo skömmum fyrirvara. Rausnarleg páskaeggjagjöf til starfsfólks Landspítalans frá Góu og Omnom er nú komin til Landspítalafólks en Helga Vilhjálmssyni rann blóðið til skyldunnar eftir að Vísir greindi frá óánægjuröddum, meðal annars frá Ragnari Frey Ingvarssyni lækni.

Eggin komu til dreifingar þar seinnipartinn í gær. Hins vegar varð sá misbrestur á að eggin eru sex þúsund meðan það eru hins vegar sjö þúsund manns sem gegna sex þúsund stöðugildum hjá spítalanum.

Engin egg í Skaftahlíðina

Þetta þýðir að starfsfólk spítalans sem starfar í Skaftahlíðinni, en þar er öll yfirstjórn spítalans, hugbúnaðarsvið, launadeild, mannauðsdeild, fjármálasvið og svo framvegis, fær engin egg. Þar starfa fjögur hundruð manns.

„Í ljósi þess að gjöfin er fyrst og fremst hugsuð til framlínustarfsfólks hefur verið ákveðið að starfsfólk í Skaftahlíð sleppi páskaeggjum að þessu sinni,“ segir í bréfinu til starfsfólks. Þau sem eru á vakt yfir páskana fá Omnom-páskaegg. 

Fimm þúsund egg koma frá Góu og þúsund frá Omnom. Er starfsfólk vinsamlegast beðið, vegna þess að eggin eru færri en starfsfólkið, vinsamlegast beðið um að taka ekki með sér nema eitt egg á mann, svo sem flestir geti notið.

Hausverkur að dreifa eggjum með svo skömmum fyrirvara

Eins og fram hefur komið var tekin sú ákvörðun, vegna niðurskurðarkröfu, að gefa starfsfólki ekki páskaegg þetta árið. Gjöfin góða frá Góu og Omnom er vissulega vel þegin en hún er ekki laus við vandamál, því gríðarlega flókið mál er að dreifa eggjum til alls starfsfólks en vaktatöflur og starfshlutfall eru með ýmsu móti. Því var tekin ákvörðun um að dreifa eggjunum í mötuneytum á eftirfarandi stöðum:

Páskaegg verða í mötuneytum á eftirfarandi stöðum:

Hringbraut

Fossvogur

Líknardeild

Landakot

Kleppur

Tunguháls


Tengdar fréttir

„Kostuðu páska­eggin sjö hundruð þúsund krónur?!“

Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, eyddi alls 697.133 í páskaegg og umbúðir til handa ráðherrum og starfsfólki ráðuneytisins. Diljá Mist Einarsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins furðar sig á kostnaðinum og telur þetta birtingarmynd raunveruleikarofs þegar kemur að opinberum útgjöldum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×