Dapurlegt að fylgjast með hægriflokkum sem sameinast á jaðrinum Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 21. mars 2026 12:18 Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra. Samfylkingin Forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar segir dapurlegt að fylgjast með þróun hægriflokka á Alþingi sem séu að renna saman í einn jaðarflokk. Hún sagði að þrátt fyrir áskoranir í efnahagsmálum hefði ríkisstjórnin náð mikilvægum áföngum. Flokkurinn væri með skýr markmið í samstarfi ríkis og sveitarfélaga sem þau ætla að ráðast í, hljóti þau traust kjósenda.
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra tók til máls á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar sem haldinn er í dag. Hún hóf ræðuna á að fara yfir tíð flokksins í ríkisstjórn og hverju þau hefðu áorkað. Þá gagnrýndi hún flokkana í stjórnarandstöðu. Hún sagðist fagna gengi Samfylkingarinnar sem stækki sífellt á meðan flokkar til hægri hafi hlaupið frá miðjunni og út á jaðarinn. „Frá hinum almenna manni út í hugmyndafræðilega mýri, lengst til hægri. Ég hef ekki lagt það í vana minn að segja of mikið um aðra flokka eða trufla þá á meðan þeir eru að gera mistök, en hver er munurinn á þessum flokkum í dag?“ spyr hún og uppskar hlátur úr salnum. Hún segir flokkana til hægri, og vísar þar í Sjálfstæðisflokkinn, Framsóknarflokkinn og Miðflokkinn, vera að renna saman í einn. „Jafnvel flokkar með glæsta sögu eins og Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur. Merkilegri flokkar á marga lund, sem gættu þess að fara aldrei of langt frá miðju stjórnmálanna, en virðast núna sáttir með að enda í knippi með Miðflokki, alltaf á harðahlaupum á eftir því sem dreifist hraðast á TikTok þann daginn, eða því sem fær flesta þumla á Facebook, og keppast við að úthúða okkur jafnaðarfólki og útiloka jafnvel samstarf við fólk eins og okkur. Það er dapurlegt að fylgjast með þessari þróun.“ Hún minnir gesti á að gleyma ekki hvaðan flokkurinn kom, frá stofnun ASÍ og Alþýðuflokks. „Við týndum þræðinum um stund en litum í eigin barm á síðustu árum, saman breyttum við Samfylkingunni.“ Hún minntist einnig á fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi samrunaviðræður við Evrópusambandið. Kristrún ítrekaði orð sín um að hún myndi greiða atkvæði með tillögunni en sama hver niðurstaðan verður mun ríkisstjórnin virða vilja þjóðarinnar. „Það er alveg á hreinu. En fróðlegt væri að vita hver afstaða þeirra flokka sem nú eru í stjórnarandstöðu er til þess og hvort að þeir flokkar muni una vilja þjóðarinnar.“ Árangur næst ekki í einu skrefi „Ég hef verið hreinskilin varðandi efnahagsmálin og ég viðurkenni það að síðasta haust, eftir tveggja prósenta lækkun stýrivaxta á einu ári, fimm vaxtalækkanir í röð og lægstu verðbólgumælingu í fimm ár, þá vorum við vongóð. Það hefur komið á daginn að við freistuðumst til að fagna of snemma á þeim tímapunkti,“ segir Kristrún. Verðbólgan mældist 5,2 prósent í síðustu verðbólgumælingu og í vikunni hækkaði Seðlabankinn stýrivextina um 25 punkta, úr 7,25 prósentum í 7,5 prósent. Hún segist ekki ætla að gera lítið úr vandanum og að henni detti ekki í hug að hlaupast undir ábyrgð en minnir á að árangur vinnist ekki alltaf í einu skrefi. „Eitt er víst, til að svara þeim sem hafa hæst í þórðargleði þessa daga. Það kemur ekki til greina að hverfa aftur til þeirrar efnahagsstjórnar sem færði okkur tíu prósenta verðbólgu og 9,25 prósenta vexti. Það kemur ekki til greina,“ segir Kristrún. Þrenn markmið fái þau traust kjósenda Þegar Kristrún fór yfir hverju flokkurinn hefur áorkað í tíð þeirra í ríkisstjórn nefndi hún atvinnustefnu sem kynnt verði á næstu vikum, fjárfestingu í samgöngum og fest lífeyri við laun fyrir öryrkja og eldra fólk. Hún boðaði þrjú ný samvinnuverkefni ríkis og sveitarfélaga, sem fara eigi í að loknum sveitarstjórnarkosningum fái þau traust til þess hjá kjósendum. Í fyrsta lagi stendur til að lækka kostnað barnafólks, meðal annars með þaki á leikskólagjöldum og lögfestingu á rétti til leikskólavistar frá lokum fæðingarorlofs í skrefum. Það verði fjármagnað bæði af ríkinu og sveitarfélögunum sjálfum. „Í öðru lagi leggur Samfylkingin áherslu á að við hlúum að fólkinu sem byggði landið. Með áframhaldandi þjóðarátaki í umönnun eldra fólks, þar sem við eyðum biðlistanum eftir hjúkrunarrýmum árið 2030, þessi sem tvöfaldaðist frá árinu 2017, og hefjumst strax handa við að stórefla þjónustu við eldra fólk í heimahúsum á fjölbreyttan hátt,“ segir Kristrún. Þriðja verkefnið er að auðvelda rekstur og uppbyggingu á sama hátt og þau hafa þegar gert í ríkisstjórnartíð sinni. „Hrista upp í kerfinu og ráðast í markvissa einföldun regluverks, til að liðka fyrir framtaki og verðmætasköpun,“ segir hún.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Samfylkingin Verðlag Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Innlent „Hún er skrifuð af mér“ Innlent Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Innlent Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent Fleiri fréttir Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Boða fjölgun flugferða á sama tíma og bátsferðir voru felldar niður Sjá meira