Innlent

Hikar ekki við að lög­sækja skyldi Rafmennt nota nafn skólans

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Böðvar Bjarki Pétursson, stofnandi Kvikmyndaskóla Íslands.
Böðvar Bjarki Pétursson, stofnandi Kvikmyndaskóla Íslands. Vísir/Ívar Fannar

Stofnandi Kvikmyndaskóla Íslands segist ekki hika við að lögsækja Rafmennt skyldi félagið nota nafn Kvikmyndaskóla Íslands eða námskránna sem notast var við. Námskráin sé hans eigin hugarsmíð.

Forsaga málsins er sú að rekstrarfélag Kvikmyndaskóla Íslands var úrskurðað gjaldþrota. Eftir ítrekaðar beiðnir frá stjórnendum skólans um að menntamálaráðherra myndi aðstoða þau tilkynnti ráðuneytið að nemendunum stæði til boða að halda námi sínu áfram í Tækniskólanum. Samhliða yrði þróuð námsbraut í kvikmyndagerð. Nemendurnir voru afar ósáttir með fyriráætlanirnar og afþökkuðu boðið um að skipta yfir í Tækniskólann.

Að lokum varð það þekkingarfyrirtækið Rafmennt sem tók yfir rekstur skólans. Í Kvikmyndaskólanum voru hins vegar tvö rekstrarfélög, annars vegar Kvikmyndaskóli Íslands fyrir íslenska nemendur og svo Icelandic Film School fyrir utanumhald um erlenda nemendur. Allir nemendur skólans, íslenskir eða erlendir, stunduð sama nám.

Rekstrarfélag Icelandic Film School er enn í eigu Böðvars Bjarka Péturssonar, stofnanda Kvikmyndaskóla Íslands.

Í bréfi sem Böðvar sendi á Þór Pálsson, framkvæmdastjóra Rafmenntar neitar hann Rafmennt um að nota nafnið Kvikmyndaskóli Íslands þar sem nafnið sé ekki söluvara.

„Þér, sem hafið verið nefndur sem kaupandi að nafninu, munið nú nota nafnið fyrir sömu starfsemi og Icelandic Film School rekur og er því alfarið mótmælt og hér með krafist að notkun nafnsins verði hætt þegar í stað,“ stendur í bréfinu.

Böðvar segir einnig rangt að námskrár Kvikmyndaskólans og Icelandic Film School séu taldar hafa ekkert verðgildi. Þar sem hvorugt rekstrarfélagið hafi fengið opinbera fjárveitingu fyrir þróun kennsluskránna séu þær höfundarverk Böðvars sjálfs.

„Þess er krafist að leitað sé heimilda til notkunar,“ skrifar hann.

„Okkur skilst að þér hafið nú þegar gjaldfellt námið gagnvart nemendum með því að segja upp starfsfólki í fjölmörgum lykilstöðum, auk þess að gefa út yfirlýsingar um að gjörbreyta starfseminni.“

Böðvar segist ekki hika við að lögsækja Rafmennt hyggist þeir nota nafnið Kvikmyndaskóli Íslands eða notist við kennsluskrá eða skipulag skólans án heimilda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×