Kólnar í veðri Atli Ísleifsson skrifar 16. janúar 2025 07:10 Gerir má ráð fyrir fremur hægri breytilegri átt á morgun og stöku éljum. Vísir/Vilhelm Dálítil lægð er nú á leið norður yfir landið og fylgir henni stíf sunnanátt og rigning nú í morgunsárið. Þó má reikna með hægari vindi og slyddu eða snjókomu norðvestan- og vestantil.
Á vef Veðurstofunnar segir að á norðaustanverðu landinu sé þó yfirleitt þurrt. Kólnar smám saman. „Í dag fjarlægist lægðin og það dregur úr vindi og ofankomu, stöku él seinnipartinn, en seint í kvöld nálgast næsta lægð og það fer að snjóa á Suðaustur- og Austurlandi. Það lægir og styttir upp fyrir austan í fyrramálið. Annars verður fremur hæg breytileg átt á morgun og stöku él, frost 0 til 8 stig. Síðdegis nálgast skil úr suðri, það snýst í vaxandi austanátt og seint annað kvöld og aðra nótt fer að snjóa í flestum landshlutum. Um helgina er svo útlit fyrir ákveðna norðaustan- og austanátt með snjókomu eða éljum um mest allt land og færð gæti því spillst allvíða,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á föstudag: Breytileg átt 3-10 og stöku él, en snjókoma austast í fyrstu. Yfirleitt þurrt sunnan- og vestanlands. Frost 0 til 8 stig. Vaxandi austanátt síðdegis og fer að snjóa sunnan- og austantil seint um kvöldið. Á laugardag: Norðaustan og austan 10-18, en hvassara allra syðst. Snjókoma með köflum og vægt frost, en heldur hlýrra og sums staðar slydda við suðurströndina. Á sunnudag: Norðaustan 13-23, hvassast suðaustantil. Snjókoma eða slydda með köflum, en samfelld snjókoma um landið austanvert. Hiti breytist lítið. Á mánudag: Minnkandi norðaustanátt. Snjókoma eða slydda austantil, og él á Norðurlandi, en þurrt um landið suðvestanvert. Hiti nálægt frostmarki. Á þriðjudag: Norðaustlæg eða breytileg átt og dálítil él, en yfirleitt þurrt sunnan- og vestanlands. Frost 0 til 9 stig. Á miðvikudag: Austan- og suðaustanátt og dálítil él við suðurströndina, annars þurrt að kalla.
Veður Mest lesið Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Viðskipti innlent Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Sjá meira