Reikna með að frostið bíti í kinnar í norðannæðingi Atli Ísleifsson skrifar 1. mars 2024 07:09 Unnið hefur verið að því að snyrta tré víða um bæ síðustu daga. Vísir/Vilhelm Veðurstofan gerir ráð fyrir að það muni bæta í vind á landinu þegar gangi í norðan átta til fimmtán metra á sekúndu og hvassara í vindstrengjum suðaustantil síðdegis.
Er reiknað með éljum á Norður- og Austurlandi og allra syðst á landinu muni snjóa fram að hádegi úr snjókomubakka sem muni halda sig við ströndina en fjarlægist síðan. „Annars staðar er þurr og bjartur dagur í vændum, til dæmis á Faxaflóasvæðinu. Það er kalt hjá okkur og viðbúið að frostið bíti í kinnar í norðan næðingnum í dag.Á morgun sest hæð yfir landið og það lægir víðast hvar með léttskýjuðu veðri eða heiðríkju, en áfram verður kalt. Það er því útlit fyrir sólríkan og fallegan vetrardag á landinu á morgun,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Norðlæg eða breytileg átt 3-8 m/s og víða léttskýjað, en norðan 8-13 og lítilsháttar él við austurströndina fram eftir degi. Frost 2 til 12 stig, mest í innsveitum fyrir norðan. Á sunnudag: Austan 3-8 á vestanverðu landinu, bjartviðri og minnkandi frost. Gengur í austan 8-13 austantil með slyddu, en síðar rigningu og hita yfir frostmarki. Á mánudag: Austan 5-13 með rigningu eða slyddu, en snjókomu inn til landsins. Þurrt að kalla vestanlands. Hiti 0 til 5 stig. Á þriðjudag: Austan og suðaustan 5-13 og rigning eða slydda með köflum, en þurrt á norðanverðu landinu. Hiti breytist lítið. Á miðvikudag: Stíf suðaustanátt og dálítil væta um landið suðaustanvert, en þurrt að kalla norðan- og vestanlands. Hiti 3 til 8 stig. Á fimmtudag: Suðaustanátt og rigning, en úrkomulítið norðantil á landinu. Hiti svipaður.
Veður Mest lesið Óku á yfir 60 og missa ökuréttindin Innlent Hreinsanir hafnar í Íran Erlent Twitter-morðinginn tekinn af lífi Erlent Stjúpsonur norska krónprinsins grunaður um nauðganir Erlent Steini frá Straumnesi látinn Innlent Sagði Sean Combs ekki virða svarið „Nei“ Erlent Málið týndist í kerfinu og reyndist á endanum fyrnt Innlent Standa saman gegn „óskiljanlegri“ ósk Vegagerðarinnar Innlent Ákærð fyrir að frelsissvipta dreng eftir dyraat Innlent Svona verða bílastæðagjöldin hjá Háskóla Íslands Innlent Fleiri fréttir Búast má við töluverðum dembum Rigning víða í dag Skýjað og væta í flestum landshlutum Áfram hlýjast á Vesturlandi Hlýjast á Vesturlandi Gular viðvaranir í kortunum Hiti gæti náð sautján stigum suðaustantil Bætir í úrkomu í kvöld Rigning eða súld um landið allt Lægðardrag yfir landinu Hiti að sextán stigum Allt að átján stiga hiti fyrir vestan Allt að tuttugu stiga hiti Að átján stigum suðvestanlands Fjögurra daga bongóblíða í vændum Væta víðast hvar og hiti að sautján stigum Rigning og hvassviðri með suðurströndinni Bjart með köflum en blæs úr austri í kvöld Bjart og milt peysuveður Glittir í endurkomu sumarsins Að mestu léttskýjað fyrir sunnan og vestan Áframhaldandi norðan strekkingur Óveðrinu slotar en áfram hætta á skriðuföllum Grjóthrun á Siglufjarðarvegi og skriðufall í Neskaupstað Það versta yfirstaðið en veður áfram leiðinlegt á morgun Vaktin: Ekta sumarhret leikur landann grátt Skriðuhætta geti skapast á ólíklegum stöðum Lýsa yfir óvissustigi vegna veðurs Höfuðborgarsvæðið bætist í hópinn Lægð nálgast sem dýpkar ört Sjá meira