Innlent

Hefur fengið fjölda skeyta þar sem kennarar eru sakaðir um inn­rætingu

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
„Gott samfélag er samfélag þar sem við virðum hvert annað og vinnum saman að því að við öll fáum að blómstra á okkar eigin forsendum,“ segir Katrín meðal annars í færslu sinni.
„Gott samfélag er samfélag þar sem við virðum hvert annað og vinnum saman að því að við öll fáum að blómstra á okkar eigin forsendum,“ segir Katrín meðal annars í færslu sinni. Vísir/Vilhelm

Forsætisráðherra telur umræðu síðustu daga um hinsegin fræðslu vera hluta af bakslagi sem orðið hafi gagnvart réttindum hinsegin og kynsegin fólks. Hún segir mikilvægt að fólk fræðist um fjölbreytileika samfélagsins, og skilji hann. 

Þetta kemur fram í Facebook-færslu sem Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra birti nú í kvöld. 

„Að undanförnu hefur blossað upp umræða um að allt of langt sé gengið í að fræða börn og ungmenni um fjölbreytileika samfélagsins þegar kemur að kynhneigð, kynvitund og kyntjáningu,“ skrifar Katrín.

Kennarar sakaðir um innrætingu

„Ég hef fengið fjölda skeyta um þessi mál þar sem kennarar og starfsfólk skóla er sakað um innrætingu á þessu sviði. Þessi umræða hefur blossað upp með ógnarhraða – en er vissulega vel þekkt víða um heim. Hún er hluti af hinu ótrúlega dapurlega bakslagi sem hefur orðið gagnvart réttindum hinsegin og kynsegin fólks – einmitt þegar við höfum náð fram langþráðum umbótum í lögum og regluverki þegar kemur að réttindum þessa hóps. Og þetta bakslag er ekki bara á Íslandi – það er víða um heim,“ skrifar Katrín.

Í gær birtist á Vísi viðtal við fræðslustýru Samtakanna '78, sem segir ekki rétt sem komið hefur fram í um­ræðum um kyn­fræðslu barna og ung­linga á sam­fé­lags­miðlum síðustu daga að sam­tökin fari með kyn­fræðslu í grunn­skólum. Heitar um­ræður hafa skapast um kyn­fræðslu barna í grunn­skólum og skjá­skot úr kennslu­efni sett fram á mis­vísandi hátt.

„Samfélagið sem við langflest viljum“

Katrín segir það ekki svo að réttindi hinsegin og kynsegin fólks skerði annarra manna réttindi, né heldur að fræðsla um fjölbreytileika sé innræting, eða að slíkri fræðslu sé ætlað að þvinga fólk í ákveðnar áttir.

„Sonur minn lærði til dæmis um túrverki í dag. Það er ekki vegna þess að hann sé endilega að upplifa þá sjálfur í sínu lífi – heldur er einmitt mikilvægt að hann viti um hvað þeir snúast. Vegna þess að við viljum skilja allar þær ólíku manneskjur sem skapa eitt stykki samfélag. Þá skiptir máli að skilja að reynsluheimur þeirra er ólíkur. Þess vegna er fræðsla um þessi mál mikilvæg.“

Mikilvægt sé að fræðast um ólíka kynhneigð, kynvitund og kyntjáningu, svo hægt sé að læra um fjölbreytileika samfélagsins og skilja hann.

„Við erum ólík en við eigum öll okkar drauma, þrár og langanir. Og gott samfélag er samfélag þar sem við virðum hvert annað og vinnum saman að því að við öll fáum að blómstra á okkar eigin forsendum. Ég trúi því að það sé samfélagið sem við langflest viljum,“ skrifar Katrín.


Tengdar fréttir

Sam­tökin 22 geti ekki mætt í hvaða skóla sem er

Reykjavíkurborg hefur varað skóla borgarinnar við hópi sem mætti nýverið í grunnskóla, tók myndbönd af starfsfólki og mótmælti efni veggspjalda sem hanga uppi í skólanum. Sviðsstjóri hjá skóla- og frístundasviði segir slíkar uppákomur ekki boðlegar. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×