Hinsegin

Fréttamynd

Þetta táknar flæmingi Páls Óskars: „Kommenta­kerfið logar af fólki sem talar eins og 1986“

Páll Óskar Hjálmtýsson, tónlistarmaður, segir að um þessar mundir fái hinsegin fólk að upplifa hvernig það var að vera hinsegin fyrir fjörutíu árum. Bakslag sem orðið hefur í réttindabaráttunni spilaði inn í val hans á hönnun vagnsins sem hann verður á í Gleðigöngunni á morgun, en þekkt er að Páll Óskar er oft á eftirminnilegum vagni.

Lífið
Fréttamynd

Bar­átta intersex fólks standi styrkum fótum

Hinsegin dagar eru dagarnir okkar, ekki bara hinsegin fólks heldur okkar allra. Hinsegin dagar minna okkur nefnilega á að með samstöðu gerist svo ótal margt. Þá náum við árangri og ýtum úr vör mikilvægum breytingum í þágu mannréttinda okkar allra.

Skoðun
Fréttamynd

Hommar komi verst út þegar kemur að mis­munun launa

Samkynhneigðir karlar koma langverst út á vinnumarkaði þegar kemur að mismunun launa segir sviðsstjóri Fræðslu- og upplýsingasviðs ASÍ. Samkvæmt skýrslu sem unnin var fyrir ASÍ, BHM og BSRB árið 2023 um málefni hinsegin fólks á vinnumarkaði eru tekjur hinsegin karla þrjátíu prósentum lægri en tekjur gagnkynhneigðra karla á ársgrundvelli. Munur á tekjum hinsegin og gagnkynhneigðra kvenna er hins vegar hverfandi.

Innlent
Fréttamynd

Hinn há­væri minni­hluti

Ef marka mætti samfélagsmiðla þessa dagana mætti ætla að Ísland, raunar allur hinn vestræni heimur, stæði á barmi menningarstríðs. Að samfélagið væri klofið í tvær ósættanlegar fylkingar. En þegar litið er á skoðanakannanir og rannsóknir kemur í ljós að sagan er allt önnur.

Skoðun
Fréttamynd

Stefnir í stærstu Gleði­göngu sögunnar

Hinsegin dagar voru settir í Reykjavík í gær, formaður segir að það stefni í metþátttöku í Gleðigöngunni á laugardag. Það sé til marks um breiða samstöðu með hinsegin samfélaginu.

Innlent
Fréttamynd

„Þetta er ó­lýsan­leg til­finning“

„Við lögðum blóð, svita og tár í þetta og ég er svo ótrúlega þakklátur,“ segir rísandi tónlistarstjarnan Guðjón Þorgils um lag Hinsegin daga í ár, Framávið. Blaðamaður ræddi við hann á milli gigga en vikan hans hefur vægast sagt verið viðburðarík.

Tónlist
Fréttamynd

Orð skipta máli

Þann 25.júlí ók bifreið inn í mannfjölda við Pride-hátíðina í Berlín. Einn lést og fjölmargir slösuðust. Þýsk yfirvöld rannsaka málið sem meint hryðjuverk.Fyrir marga er þetta frétt. Fyrir hinsegin fólk er þetta áminning um að hátíð sem á að snúast um sýnileika, frelsi og öryggi getur á augabragði breyst í vettvang ótta.

Skoðun
Fréttamynd

„Við látum ekki fæla okkur aftur inn í skápinn“

Hinsegin dagar standa nú yfir og er fjöldi viðburða á dagskrá næstu daga, svo sem glansverkstæði, hýr húslestur, trans kirkja og hinsegin hraðstefnumót. Listrænn stjórnandi opnunarhátíðarinnar segir bakslag í samfélaginu augljóst en að hinsegin fólk sé óhrætt við að ögra. Í ár sé sérstaklega kappkostað að gera ungu hinsegin fólki hátt undir höfði og er lag hátíðarinnar samið og flutt af hinum átján ára gamla Guðjóni Þorgils Kristjánssyni.

Innlent
Fréttamynd

Regn­boginn kominn aftur á tröppurnar

Regnbogafáninn er kominn aftur á tröppurnar við Grafarvogskirkju. Íslenski fáninn var í skjóli nætur málaður yfir regnbogafána sem áður prýddi tröppurnar þann áttunda júlí.

Innlent
Fréttamynd

Guð­jón Þor­gils flytur lag Hin­segin daga

Söngvarinn Guðjón Þorgils Kristjánsson, sem sigraði Söngkeppni framhaldsskólanna fyrr á árinu, flytur lag Hinsegin daga í ár. Lagið „Framávið“ er áminning til þeirra sem hafa ratað af réttri braut um að aldrei sé of seint að snúa við.

Tónlist
Fréttamynd

Lýsa eftir þekktum öfgamanni

Lögreglan í Berlín hefur birt mynd af manni sem grunaður er um að hafa ekið bíl inn í þvögu fólks í borginni í gær. Þar var verið að halda hinsegin daga en einn lét lífið og sextán eru særðir. Lögreglan hefur birt mynd af manninum, sem sagður er vera 21 árs gamall og heita Abdul B.

Erlent
Fréttamynd

Minnst einn látinn á Pride-hátíð í Ber­lín

Minnst einn lést og 14 særðust alvarlega í hátíðarhöldum hinsegin daga í Berlín, að sögn lögreglu þar í borg. Grunur er um að sendiferðabíl hafi verið ekið á mannfjölda í Tiergarten-garðinum í vesturhluta miðborgar Berlínar.

Erlent
Fréttamynd

Regn­boginn verði málaður aftur en með breyttu sniði

Regnbogafáninn verður málaður aftur á tröppur Grafarvogskirkju þegar veður leyfir segir sóknarprestur kirkjunnar. Sóknarnefnd tók ákvörðun um það á fundi í dag að tröppurnar verði málaðar á ný, en með breyttu sniði. Skemmdarverk á tröppunum í byrjun júlí hafi reynst kirkjunni afar dýrkeypt en það hafi verið í þriðja skiptið sem skemmdarverk hafi verið unnin á lóð kirkjunnar. 

Innlent
Fréttamynd

Málaður regnbogafáni gæti reynst of sleipur

Þrátt fyrir yfirlýsingar um að regnbogafáninn verði aftur málaður á tröppurnar við Grafarvogskirkju, eftir að málað var yfir hann og öll málning svo hreinsuð af tröppunum, er ekkert fast í hendi.

Innlent
Fréttamynd

Fyrsta lesbían til að prýða Playboy

Breska ofurfyrirsætan, leikkonan og tónlistarkonan Cara Delevingne prýðir nýja forsíðu sumarblaðs tímaritsins Playboy. Þar situr hún fyrir með sígarettu, í latex korsiletti og ber að neðan.

Lífið
Fréttamynd

Það er mér í hag að hin­segin fánar séu sýni­legir

Þar sem skemmdarverkin sem unnin voru á kirkjutröppum Grafarvogskirkju, þegar íslenski fáninn var málaður yfir regnbogafánann, eru enn til umræðu vil ég gera það sem feðraveldið hefur kennt mér að gera svo vel; Láta þetta snúast um mig og mína hagsmuni.

Skoðun
Fréttamynd

Ís­lenska fánann á ekki að nota til skemmdarverka

Það hefur verið mjög undarlegt að fylgjast með þjóðfélagsumræðunni undanfarna daga í tengslum við skemmdarverkið á hinsegin fánanum við Grafarvogskirkju. Um ritvöllinn og kommentakerfin flykkist fólk sem fagnar þessu og spyr hvort íslenski fáninn sé nú orðinn að hatursglæp.

Skoðun
Fréttamynd

Skemmdarvargarnir enn ófundnir

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir mennina sem máluðu íslensku fánalitina yfir regnbogafána á tröppum Grafarvogskirkju í gærnótt enn ófundna. Hún segir að á myndefni af svæðinu sjáist að minnst tveir hafi verið að verki.

Innlent
Fréttamynd

Skemmdar­verkið setti svip sinn á út­för

Skemmdarverk við Grafarvogskirkju setti svip sinn á útför þar í dag þar sem lögregluborðar og málningarfótspor blöstu við gestum. Formaður Samtakanna 78 segir um mikið áhyggjuefni að ræða.

Innlent
Fréttamynd

Ætla aftur að mála regnbogafánann

Grafarvogskirkja ætlar að standa fyrir því að fáni hinsegin fólks verði aftur málaður við tröppur kirkjunnar á næstu dögum. Málað var yfir fánann með íslensku fánalitunum af óþekktum einstaklingum í skjóli nætur, um síðustu nótt.

Innlent
Fréttamynd

Rann­saka málið sem hatursglæp

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú mál um skemmdarverk á regnbogafána á tröppum Grafarvogskirkju. Lögregla segir málið rannsakað sem hatursglæp. 

Innlent
Fréttamynd

Skemmdar­vargar máluðu yfir regn­bogafánann

Málað var yfir fána hinsegin fólks við tröppur Grafarvogskirkju í nótt með íslensku fánalitunum. Í samtali við fréttastofu staðfestir séra Arna Ýrr Sigurðardóttir að gjörningurinn hafi ekki verið á vegum kirkjunnar.

Innlent
Fréttamynd

Tyrkir neita skipi fullu af hommum um að leggja að bryggju

Yfirvöld í Tyrklandi hafa neitað skemmtiferðaskipinu Scarlet Lady um heimild til að sigla í höfn í hafnarbænum Kuşadası þar sem farþegarnir samræmast ekki samfélagslegum gildum íbúa. Skemmst er frá því að segja að um borð eru 2.000 hommar.

Erlent