Það hefur sjaldan og sennilega aldrei verið eins annasamt í dómskerfinu vegna kjaradeilu og nú. Bæði málsókn ríkissáttasemjara fyrir héraðsdómi og Samtaka atvinnulífsins fyrir Félagsdómi eru einstakar í sögunni og þess vegna kannski fordæmisgefandi.
Í héraðsdómi reynir ríkissáttasemjari að fá dóm um að það beri að afhenda honum kjörskrá, eða veita honum aðgang að kjörskrá Eflingar. Fyrir Félagsdómi reyna Samtök atvinnulífsins síðan að fá það fram að ekki sé hægt að boða verkfallsaðgerðir eða fara í verkfall þegar ekki hafa verið greidd atkvæði um miðlunartillögu.

Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar mætti í Héraðsdóm Reykjavíkur í dag til að fylgjast með málflutningi í kröfu ríkissáttasemjara gegn félaginu.
Ertu bjartsýn á að þið náið góðri niðurstöðu hér í héraðsdómi?
„Ég er sannarlega mjög bjartsýn á það.“
Og sömuleiðis fyrir Félagsdómi?
„Þar er ég alveg hundrað prósent sannfærð. Meira en hér. Vegna þess að málatilbúnaður Samtaka atvinnulífsins er eins fráleitur og hægt er að hugsa sér,“ segir Sólveig Anna.
Í gær dró Efling stjórnsýslukæru sína til félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins um lögmæti miðlunartillögunnar til baka og vísaði málinu til héraðsdóms sem tekur það fyrir eftir helgi. Ráðuneytið birti engu að síður úrskurð sinn í dag; taldi rök Eflingar ekki gild og vísaði kærunni frá.
Í dag hófst aftur á móti atkvæðagreiðsla starfsmanna átta hótela til viðbótar við þau sjö sem þegar hafa samþykkt að fara í verkfall sem hefjast á næst komandi þriðjudag, og bílstjóra hjá olíufélögum og Samskipum um verkfall sem hæfist hinn 15. febrúar.
„Ég er bjartsýn á mjög góða þátttöku og mjög góða niðurstöðu. Félagar úr samninganefnd Eflingar hafa verið að heimsækja Eflingarfélaga sem vinna á þessum hótelum. Fengið mjög góðar viðtökur. Vorum með mjög góðan fjölmennan fund í gær. Þannig að ég er sannfærð um að eflingarfólk sem starfar þarna sé sammála samninganefnd Eflingar um að það sé tímabært að leggja þarna niður störf,“ segir Sólveig Anna.

Halldór Benjamín Þorbergsson segir þá stöðu sú væri upp komin ekki bara einstaka.
„Þetta er í raun skelfileg staða sem komin er upp í boði Eflingar. Ég hef verulegar áhyggjur af þessari framvindu. Við sjáum að nú eru bifreiðastjórar á olíudreifingarbílum að fara að greiða atkvæði um verkföll. Þetta er hátekjustétt í samfélaginu eins og fram kemur í blöðum í dag. Með um 900 þúsund krónur í meðal heildarlaun. Þannig að staðan sem upp er komin er allt önnur en í upphafi þessarar deilu,“ segir framkvæmdastjóri SA.
Halldór Benjamín er eins og Sólveig Anna mjög bjartsýnn á að Félagsdómur fallist á rök samtakanna. Hann tekur ekki undir kröfu Eflingar um að skipaður verði sérstakur aðstoðarríkissáttasemjari til að miðla málum í deilunni.

Ríkissáttasemjari verður að boða til næsta fundar deiluaðila á þriðjudag. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir deiluna greinilega í algjörum hnút og rétt að bíða niðurstöðu dómstóla.
„Sáttasemjari er sjálfstæður í sínum störfum. Hann hefur ákveðnu lögbundnu hlutverki að gegna sem hann sinnir að sjálfsögðu. Enda nýtur hann fulls trausts stjórnvalda í þessu verkefni. Og ég leyfi mér að segja að stjórnvöld eru ekki að fara að segja sáttasemjara hvernig sé best að hann sinni því hlutverki,“ segir forsætisráðherra.