Vinnumarkaður
1 2 3 4 5 6 … 121 ›
Mennskan í umróti felst í vönduðum vinnubrögðum Í september 2026 bárust Vinnumálastofnun sex tilkynningar um hópuppsagnir sem náðu til 181 starfsmanns. Áhrifin ná þó miklu lengra en bara til þeirra sem missa starfið. Skoðun 16.10.2026 08:32
„Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi. Ég held að allir sem að halda að hér sé hægt að sameina fólk með einhverjum hætti undir þessum aðstæðum, ég er ekki alveg viss um það.“ Innlent 15.10.2026 19:20
Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Tillaga um að fækka varaforsetum ASÍ úr þremur í einn var felld á þingi sambandsins nú síðdegis. Alls féllu 60 prósent atkvæða með tillögunni en tvo þriðju þurfti til að ná lagabreytingunni í gegn sem jafngildir 66 prósentum atkvæða. Innlent 15.10.2026 17:39
Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Náið var fylgst með þingfundi á öðrum degi 47. þings Alþýðusambands Íslands (ASÍ) í dag en þar var tekist á um einkar umdeilda tillögu sem varðaði það hvort varaforsetum ASÍ yrði fækkað úr þremur í einn. Tillagan var að endingu felld. Innlent 15.10.2026 16:18
Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings 47. þing Alþýðusambands Íslands hefst í dag. Vísir verður í beinni í dag frá þinginu auk þess sem fylgjast má með streymi af málþingi sem fram fer í dag frá tíu til eitt í hátíðarsal Hilton Reykjavík. Innlent 13.10.2026 16:39
Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Kennarar sem sinnt hafa einkakennslu í íslensku fyrir fólk af erlendum uppruna segja það mikið högg að Starfsmenntunarsjóður ætli ekki lengur að endurgreiða félagsmönnum sem sækja einkakennslu. Þá segja þeir að kröfur sem menntamálaráðuneytið setji til að fá vottun sem viðurkenndur fræðsluaðili séu ómögulegar að uppfylla fyrir einstaklinga. Innlent 13.10.2026 22:02
Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu og segir að formaður VR og formaður Eflingar hafi báðar rétt fyrir sér. Skeytasendingar hafa farið á milli formannanna í fjölmiðlum eftir að samningar sigldu í höfn í lok síðustu viku. Innlent 13.10.2026 20:03
Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Áttatíu og sjö foreldrar segjast reiðubúnir að greiða gjald til að fjármagna eftirlit með au pair á Íslandi. Þau mótmæla fyrirhuguðu afnámi dvalarleyfa vegna vistráðningar og segja stjórnvöld eiga að styrkja vernd vistráðinna og framfylgja eftirliti sem hefur verið lögbundið frá árinu 2023. Innlent 13.10.2026 13:55
Vona að ágreiningur liti ekki þing ASÍ Frambjóðendur til forseta ASÍ vona að ágreiningur síðustu daga vegna endurskoðunar kjarasamninga hafi ekki of mikil áhrif á þing ASÍ sem hefst á morgun. Þeir eru sammála um að verkalýðshreyfingin eigi að hafa frumkvæði að breytingum á vinnumarkaðsmódelinu en eru ekki endilega sammála um hvernig eigi að gera það. Þeir segja kosningabaráttuna háða að mestu af þeim sjálfum. Það sé „engin maskína“ eða peningar að baki baráttunni. Innlent 13.10.2026 10:03
Ný könnun: 60% umsækjenda fá aldrei svör Þrýstingur á íslenskum vinnumarkaði magnast hratt. Enda tíðari fréttir um uppsagnir, hækkandi hlutfall atvinnuleysis og skýr merki um kólnun hagkerfis. Atvinnulíf 13.10.2026 07:02
Persónulegt níð skilar engum árangri Þegar kjarasamningar eru í höfn getur myndast togstreita um það hver hafi náð árangri, hvaða aðferð hafi skilað mestum árangri og hver eigi að njóta viðurkenningar fyrir vinnuna. Skoðun 12.10.2026 13:30
Engin óbirt loforð eða leynilegt samkomulag Engin óbirt loforð eða leynilegt samkomulag fylgdu niðurstöðunni við VR og fagfélögin, að sögn Bjarna Benediktssonar, framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins. Hann segir enga innistæðu fyrir tortryggni Sólveigar Önnu Jónsdóttur, formanns Eflingar, og segist treysta sér til áframhaldandi samstarfs við verkalýðshreyfinguna þótt hún telji traustið til hans horfið. Innlent 12.10.2026 12:35
Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar segir Samtök atvinnulífsins, SA, hafa valið ófrið við Eflingu og sakar Bjarna Benediktsson framkvæmdastjóra SA um að bjóða upp á klæki í stað heiðarlegra samskipta. Hún segir það ekki hennar hlutverk að stilla til friðar í verkalýðshreyfingunni en átök hennar og formanns VR hafa verið til umræðu í aðdraganda þings ASÍ í vikunni. Innlent 12.10.2026 09:31
Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Seðlabankastjóri segir innlendar hækkanir á þjónustu og launum hafa mest áhrif á verðbólguna núna. Stýrivextir séu biturt meðal og ekki með glöðu geði sem þeim er beitt. Það sé rétt hjá verkalýðshreyfingunni að stýrivextir leggist misjafnlega á ólíka hópa en staðan sé að einhverju leyti afleiðing af þeirra eigin gjörðum. Rangar ákvarðanir hafi mögulega verið teknar í Seðlabankanum sem í raun reyni að reka velferðarstefnu. Innlent 12.10.2026 07:00
„Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Halla Gunnarsdóttir formaður VR segir að svo virðist vera sem Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar hafi hana á heilanum. Hún segir ósætti þeirra á milli algjöra einstefnugötu, ekkert sé til í því að forsætisráðherra hafi sagt ósatt um vaxtabótaauka sem til hafi komið eftir samningaviðræður VR og Samtaka atvinnulífsins. Innlent 11.10.2026 12:25
Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar segist telja Höllu Gunnarsdóttur formann VR munu gera tilraun til að sölsa undir sig Alþýðusambands Íslands á aðalþingi sambandsins í næstu viku. Hún segir Höllu hafa komist upp með að draga Samtök atvinnulífsins og stjórnvöld á asnaeyrum án afleiðinga, þvert á móti hafi hún verið verðlaunuð fyrir það í stað þess að trúnaði væri haldið við forystu verka- og láglaunafólks. Því muni fylgja alvarlegar afleiðingar. Innlent 10.10.2026 15:27
Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Rætt hefur verið við Katrínu Jakobsdóttur, fyrrverandi forsætisráðherra, um að bjóða sig fram til forseta Alþýðusambands Íslands. Hún staðfestir að hún ætli ekki fram. Nýr forseti verður kjörinn á þingi sambandsins í næstu viku. Innlent 9.10.2026 17:27
Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Viðbótarkostnaður ríkissjóðs vegna aðgerðanna sem kynntar voru í gær til að tryggja sátt á vinnumarkaði nemur 1,6 milljörðum króna, að sögn Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra. Hún segir fyrri aðgerðapakka hafa numið tugum milljarða en áherslan nú hafi verið á breytingar á úrræðum og nýtingu fjár sem þegar hafði verið tekið frá. Innlent 9.10.2026 13:46
Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Formaður VR segir skrýtið að standa í metingi við leiðtoga verkalýðsfélaga um niðurstöður kjarasamninga og að það sé rangt að ekkert hafi breyst frá því breiðfylkingin samdi á þriðjudag og þar til VR skrifaði undir samning í gær. Hún segir afskipti formanns Eflingar af innra starfi VR vera með ólíkindum. Innlent 9.10.2026 12:02
„Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Formaður Starfsgreinasambandsins segir að „fjölmiðlasirkus“ Höllu Gunnarsdóttur, formanns VR, hafi ekki skilað félagsmönnum hennar betri kjörum heldur en Breiðfylkingin svokallaða samdi um fyrr í vikunni. Breiðfylkingin hafi tryggt styttri samningstíma á meðan stytting í samningum VR sé háð verðbólgu. Innlent 8.10.2026 19:08
Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Forsætisráðuneytið boðaði síðdegis í dag til blaðamanna fundar um kjarasamninga. Á fundinum voru forsætisráðherra, forseti Alþýðusambands Íslands, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins og formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga. Innlent 8.10.2026 16:59
Ekki rétt sem Halla segir Bjarni Benediktsson framkvæmdastjóri SA segir ekki rétt að SA og fyrirtækin sem þau eru í forsvari fyrir hafi ekki komið til móts við stéttarfélögin í þeirri von um að halda kjarasamningum. Forsvarsfólk VR, Rafiðnaðarsambands Íslands og Fagfélaganna funda nú með SA. Félögin hafa heimild til þess að rifta kjarasamningum en frestur til þess að gera það rennur út klukkan 16. Innlent 8.10.2026 14:01
Ekkert lát á fjölgun starfa hjá hinu opinbera en fækkar ört í einkageiranum Fjölgun starfandi fólks á vinnumarkaði hefur verið drifin áfram af opinbera geiranum allt þetta ár á meðan starfsfólki fækkar ört í öðrum atvinnugreinum, einkum í byggingarstarfsemi og ferðaþjónustu. Innherjamolar 8.10.2026 12:26
Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Forsætisráðherra hefur reynt að hafa milligöngu um lausn í kjaradeilunni við Samtök atvinnulífsins, að sögn Höllu Gunnarsdóttur, formanns VR. Hún segir viðleitnina vel metna en stöðuna enn óbreytta. Verið sé að prenta út og undirrita skjöl vegna uppsagna kjarasamninga. Innlent 8.10.2026 12:08
Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Samkomulag náðist á milli VR, Fagfélaganna og LÍV annars vegar og Samtaka atvinnulífsins hins vegar um að kjarasamningar héldu rétt fyrir klukkan fjögur í dag eða í þann mund sem frestur til að segja þeim upp vegna forsendubrests rann út. Vísir fylgist með þróun mála í fréttavakt. Innlent 8.10.2026 10:54
Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ „Það hefur alltaf legið fyrir af okkar hálfu að við værum ekki tilbúin til þess að festa okkar fólk inni í áframhaldandi launalækkunum.“ Þetta segir Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, sem hyggst slíta kjarasamningum í dag. Innlent 8.10.2026 08:04
Samþykktu að slíta kjarasamningum Stjórn VR hefur ákveðið að slíta kjarasamningum á morgun. Formaðurinn segir að samningar myndu þá renna út í lok mánaðar en þetta geti haft í för með sér að opinberu stéttarfélögin megi einnig segja upp sínum samningum. Innlent 7.10.2026 22:03
„Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Formaður Kennarasambands Íslands segir að sambandið sé tilbúið að skoða lengingu skólaársins ef samfélagið telji það sér til framdráttar. Kennarasambandið kynnti í dag tillögur að stefnumótun í menntamálum til framtíðar þar sem það kallaði eftir samfélagslegu samtali um skólastarf. Innlent 7.10.2026 16:20
SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Hluti starfsmanna Samtaka atvinnulífsins heldur á morgun í árshátíðarferð til eyjunnar Hvar við strendur Króatíu, sama dag og frestur til þess að slíta kjarasamningum rennur út. Innlent 7.10.2026 15:53
Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Það er skammsýni að leggja mikla áherslu á launahækkanir við núverandi aðstæður, að mati Ásgeirs Jónssonar seðlabankastjóra. Hann segir lægri verðbólgu og lægri vexti vera það sem íslensk heimili þurfi helst á að halda og hafnar fullyrðingum um að laun hafi ekki áhrif á verðbólgu. Innlent 7.10.2026 13:04