Tónlist

Beyoncé og Blue Ivy á umdeildum tónleikum í Dubai

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Mæðgurnar Blue Ivy og Beyoncé sungu saman á fyrstu tónleikum Beyoncé í rúm fjögur ár.
Mæðgurnar Blue Ivy og Beyoncé sungu saman á fyrstu tónleikum Beyoncé í rúm fjögur ár. Kevin Mazur/Getty Images

Tónlistarkonan og stórstjarnan Beyoncé kom fram á tónleikum í fyrsta skipti í rúm fjögur ár síðastliðið laugardagskvöld. Tilefnið var opnun á glænýju Atlantis The Royal hóteli í Dubai en Blue Ivy, dóttir Beyoncé, tók lagið með henni og skinu þær mæðgur skært.

24 milljón dollara gigg

Var um að ræða opnun á algjöru lúxus hóteli og á gestalista voru frægir áhrifavaldar, leikarar, tónlistarfólk og blaðamenn. Gestir máttu ekki taka myndefni af söngkonunni en þó nokkrir fylgdu því ekki eftir og því fylltust samfélagsmiðlar af myndum og myndböndum frá tónleikunum. Samkvæmt heimildum TMZ fékk Beyoncé 24 milljónir bandaríkjadala greidda fyrir þetta kvöld, sem jafngildir um 3,5 milljarði íslenskra króna. 

Í nokkrum myndböndum virðist söngkonan haltra eftir tónleikana og halda einhverjir því fram að hún hafi nýlega þurft að fara í fótaaðgerð. 

Mæðgnastund

Beyoncé var hin glæsilegasta en með henni á sviðinu var sinfóníuhljómsveitin Firdaus. Hana skipa 48 konur frá Dubai sem allar voru klæddar í rauð pallíettudress.

Öllu var til tjaldað á tónleikum Beyoncé við opnun á hótelinu Altantis The Royal í Dubai.Kevin Mazur/Getty Images

Blue Ivy deildi sviðinu með móður sinni í laginu Brown Skin Girl sem þær sungu saman á plötunni Lion King: The Gift, frá árinu 2019. 

Blue Ivy, sem er nú ellefu ára gömul, klæddist rauðum pallíettu samfesting sem var hannaður af ömmu sinni, Tinu Knowles-Lawson, og Timothy White. Hún virtist ekki hafa upplifað neinn sviðsskrekk og naut sín vel á sviðinu en þessi mæðgna stund stóð upp úr fyrir marga í salnum.

Það má með sanni segja að eplið falli ekki langt frá eikinni þegar það kemur að dóttur Beyoncé, Blue Ivy. Kevin Mazur/Getty Images

Stórglæsilegt fataval

Fataval Beyoncé vakti mikla athygli en hún er þekkt fyrir úthugsaðar og þýðingarmiklar tískuákvarðanir. 

Hún opnaði tónleikana í glæsilegum gulum galakjól eftir hönnuðinn Mousa Al Awfi frá Óman, sem rekur tískumerkið Atelier Zuhra ásamt dóttur sinni með höfuðstöðvar í Dubai. Á bakinu bar Beyoncé gular fjaðrir sem minna á vængi en samkvæmt Al Awfi hefur dressið verið í vinnslu síðan í nóvember og sóttu þær innblástur í sólarupprás. 

Beyoncé var glæsileg í gulu.Kevin Mazur/Getty Images

Næst skartaði hún eldrauðum og glæsilegum samfesting með hanska í stíl eftir líbanska hönnuðinn Nicolas Jebran en þau unnu fyrst saman árið 2014 fyrir MTV verðlaunin og hafa í gegnum tíðina sameinað krafta sína við ólík verkefni. Samfestingurinn var skreyttur gullsteinum og gylltum útsaumi og rokkaði Beyoncé gyllta sólarkórónu við.

Rauða dressið hennar Beyoncé er eftir hönnuðinn Nicolas Jebran.Mason Poole/Parkwood Media/Getty Images

Fyrir lokaatriði tónleikana skipti Beyoncé svo yfir í bleikan kjól skreyttan kristöllum eftir úkraínska hönnuðinn Ivan Frolov. Frolov hannaði kjólinn í Kyiv í Úkraínu eftir að stríðið hófst en hann er enn búsettur í Úkraínu. Í samtali við Vogue um kjólinn segir Frolov: „Þetta sýnir bara að sama hvað þá munu úkraínsk merki halda áfram að sýna heiminum mótspyrnu sína og menningu.“

Þetta bleika undur er hannað af úkraínska tískuhönnuðinum Ivan Frolov sem rekur tískuhúsið FROLOV.Mason Poole/Parkwood Media/Getty Images

Umdeildir tónleikar

Ákvörðun Beyoncé að halda tónleika í Dubai hefur verið umdeild. Samkvæmt heimildum tímaritsins Stereogum tók Beyoncé engin lög af nýju plötunni sinni, Renaissance. Platan hefur vakið athygli fyrir að lofa hinseginleikann, danstónlist hinsegin fólks og svarta, en tæknilega séð er samkynhneigð ólögleg í Dubai. 

Undanfarin ár hefur tónlistarfólk verið hvatt til þess að koma ekki fram í löndum þar sem mannréttindi standa höllum fæti. Nicki Minaj hætti sem dæmi við tónleika í Saudi-Arabíu árið 2019 eftir að mannréttindasamtökin The Human Rights Foundation hvöttu hana opinberlega til þess. 

Fjölmiðillinn Variety veltir því þá fyrir sér hvort Beyoncé sé einfaldlega að geyma nýju plötuna fyrir atriði sitt á Grammy verðlaununum, sem haldin verða 5. febrúar næstkomandi. 


Tengdar fréttir

Beyoncé og Björk á lista Grammy verðlaunanna

Tilnefningar til Grammy verðlaunanna hafa verið tilkynntar. Beyoncé hlaut flestar tilnefningar fyrir plötuna sína Renaiss­ance, alls níu. Hin íslenska Björk Guðmundsdóttir hlaut einnig tilnefningu fyrir plötuna sína Fossora.

Beyoncé skín skært fyrir Tiffany & Co

Söngkonan Beyoncé skín skært klædd demöntum frá toppi til táar í nýju myndbandi frá skartgripafyrirtækinu Tiffany & Co. Í því má sjá hana dansa og syngja á fullum skemmtistað af fólki ásamt því að sitja á baki glitrandi hests. 

Beyoncé sendir frá sér nýja plötu og þakkar aðdáendum sínum

Söngkonan og ofurstjarnan Beyoncé var að senda frá sér sína sjöundu stúdíó plötu sem ber nafnið RENAISSANCE, eða Endurreisn. Er um að ræða sextán laga breiðskífu sem kom út á miðnætti og er þetta fyrsti hluti af þremur sem Beyoncé hyggst gefa út sem seríu.

Beyoncé gefur út fyrsta lagið af væntanlegri plötu

Söngkonan Beyoncé gaf út fyrsta lagið af væntanlegri plötu sinni í gær og heitir lagið Break My Soul. Platan sem kemur út í lok júlí mun bera heitið Renaissance og verður fyrsta sóló platan hennar síðan 2016.

Beyoncé tilkynnir næstu plötu sína

Beyoncé hefur tilkynnt næstu plötu sína, Renaissance, sem kemur út þann 29. júlí næstkomandi. Platan er sjöunda sóló-plata tónlistarkonunnar og sú fyrsta frá 2016 þegar hin mjög svo vinsæla Lemonade kom út.

Dóttir Beyoncé og Jay Z sláandi lík móður sinni

Jay Z mætti með dóttur sína Blue Ivy á úrslitaleik í NBA í gær og beindust allra augu að dótturinni sem þykir nú orðin sláandi lík móður sinni, poppgyðjunni Beyoncé. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×