Håland reimaði á sig marka­skóna

Þessir tveir ná leiðinlega vel saman að mati José Sá, markvarðar Úlfanna.
Þessir tveir ná leiðinlega vel saman að mati José Sá, markvarðar Úlfanna. Tom Flathers/Getty Images

Erling Braut Håland skoraði öll þrjú mörk Manchester City þegar liðið vann Úlfana 3-0 í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Þetta var fjórða þrenna framherjans í deildinni.

Það tók heimamenn í City sinn tíma að brjóta Úlfana á bak aftur en gestirnir eru í bullandi fallbaráttu. Á 40. mínútu gaf Kevin De Bruyne boltann á framherjann frá Noregi sem gat ekki annað en skorað og staðan 1-0 í hálfleik.

Í síðari hálfleik bætti Håland við tveimur mörkum á 50. og 54. mínútu, það fyrra úr vítaspyrnu. Riyad Mahrez kom boltanum einnig í netið en markið var dæmt af vegna rangstöðu.

Lokatölur 3-0 og Håland nú skorað 25 mörk í aðeins 19 deildarleikjum. Eftir sigur dagsins munar aðeins tveimur stigum á Arsenal og Man City á toppi deildarinnar. Skytturnar eiga þó leik til góða. Úlfarnir eru á sama tíma í 17. sæti með 17 stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira