Holland tryggði far­seðilinn í undan­úr­slit með sigri á Belgíu

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Virgil van Dijk skoraði sigurmark Hollands.
Virgil van Dijk skoraði sigurmark Hollands. James Williamson/Getty Images

Holland vann nágranna sína í Belgíu í hálfgerðum úrslitaleik um sæti í undanúrslitum Þjóðadeildarinnar. Lokatölur 1-0 lærisveinum Louis van Gaal í vil.

Hollendingar voru í góðri stöðu fyrir leik kvöldsins þar sem liðið var með 13 stig, þremur meira en Belgía. Þá var Holland með betri markatölu og svo hafði liðið unnið fyrri leik liðanna 4-1 svo Belgía hefði í raun þurft stórsigur til að eiga möguleika á að komast í undanúrslitin.

Fyrri hálfleikur var svokallað stál í stál og staðan markalaus að honum loknum. Áfram hélt stöðubaráttan í þeim seinni en þegar 17 mínútur lifðu leiks þá loks brotnaði ísinn. Hinn eftirsótti Cody Gakpo tók þá hornspyrnu sem fann pönnuna á Virgil van Dijk og sá skallaði boltann í netið.

Staðan orðin 1-0 Hollendingum í vil og reyndust það lokatölur leiksins. Holland vinnur því riðilinn á meðan Wales er fallið niður í B-deild.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira