Atlético yfir í 89 mínútur og raunir United-manna aukast Sindri Sverrisson skrifar 13. október 2026 18:30 Leny Yoro fékk rautt spjald fyrir þetta brot á Jonathan David í Madrid í kvöld. Getty/Angel Martinez Atlético Madrid vann 2-0 sigur gegn Manchester United í Meistaradeild Evrópu í fótbolta í kvöld eftir að hafa komist yfir strax á fyrstu mínútu leiksins. Rauða spjaldið fór á loft þegar korter var til leiksloka. Pablo Barrios skoraði fyrra mark leiksins eftir rúmar 50 sekúndur og Johnny Cardoso kom boltanum einnig í netið rétt fyrir hálfleik en markið var dæmt af eftir myndbandsskoðun vegna hendi. Þegar korter var til leiksloka braut Leny Yoro af sér sem aftasti varnarmaður og var rekinn af velli. Ademola Lookman nýtti sér liðsmuninn nánast um leið og skoraði seinna mark Atlético. Liðin eru því með þrjú stig hvort eftir fyrstu tvær umferðir keppninnar. Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Manchester United Fótbolti