Erlent

Gert að greiða nærri sjö milljarða króna vegna lyga um skot­á­rásina í Sandy Hook

Eiður Þór Árnason skrifar
Alex Jones í réttarsal á miðvikudag.
Alex Jones í réttarsal á miðvikudag. AP/Briana Sanchez

Bandaríski samsæriskenningasmiðurinn Alex Jones þarf að greiða rúmar 49 milljónir bandaríkjadala, jafnvirði um 6,8 milljarða íslenskra króna, vegna ítrekaðra staðhæfinga um að skotárásin í Sandy Hook grunnskólanum hafi verið sviðsett.

Kviðdómur í Texas úrskurðaði í dag að þáttastjórnandinn þyrfti að borga 45,2 milljónir bandaríkjadala í refsibætur til viðbótar við þær 4,1 milljóna bandaríkjadala skaðabætur sem hann var dæmdur til að greiða í gær.

Scarlett Lewis og Neil Heslin, foreldrar drengs sem var skotinn til bana í árásinni sóttu Jones til saka en tuttugu börn og sex fullorðnir voru drepin í fjöldamorðinu í Sandy Hook í Connecticut árið 2012.

Foreldrar hins sex ára gamla Jesse Lewis fóru fram á 150 milljónir bandaríkjadala frá Jones og sögðust hafa þurft að þola langvarandi áreitni og tilfinningalegar kvalir vegna ósanninda Jones, sem stofnaði og dreifði kenningunum á miðlum Infowars.

Vildu senda einföld skilaboð

Skaðabæturnar eiga að standa undir þeim kostnaði sem fjölskyldunni hefur hlotist vegna ærumeiðinga Jones, til að mynda vegna öryggisgæslu sem þau keyptu á meðan réttarhöldunum stóð af ótta við árás stuðningsmanns Jones. Á sama tíma eiga refsibæturnar að koma í veg fyrir að Jones endurtaki brot sitt.

„Við óskum eftir því að þið sendið mjög, mjög einföld skilaboð og þau eru: Stöðvið Alex Jones,“ sagði lögmaður foreldranna í réttarsal í dag og bætti við að hann hafi hagnast á lygum sínum og röngum upplýsingum.

Verðmetið á 270 milljónir bandaríkjadala

Fyrr í dag bar hagfræðingur sem foreldrarnir réðu fyrir rétti að Jones, fjölmiðlafyrirtækið hans Infowars og móðurfyrirtækið Free Speech Systems væru metin á allt að 270 milljónir bandaríkjadala. Þá sagði hann gögn gefa til kynna að Jones hafi dregið til sín 62 milljónir bandaríkjadala úr fyrirtækinu árið 2021 þegar aukinn þungi færðist í málaferli gegn honum.

Free Speech Systems hefur nú óskað eftir gjaldþrotameðferð. Við þau kom fram að fyrirtæki Jones hafi rakað inn um 800 þúsund bandaríkjadölum í tekjur á einum degi með sölu fæðubótarefna, skotvopnaaukahluta og búnaðar sem ætlað er að hjálpa fólki að lifa af hættuástand.

Afhentu öll SMS-skilaboð Jones fyrir mistök

Lögmenn foreldranna sökuðu Jones um að reyna að fela sönnunargögn en fyrr í þessari viku greindu þeir frá því að verjendateymi Jones hafi fyrir mistök sent þeim öll SMS-samskipti sem hann hafi átt síðustu tvö ár.

Jones viðurkenndi í dómsal á miðvikudag að það hefði verið óábyrgt af honum að halda því fram að skotárásin í Sandy Hook hefði verið sviðsett. Hann viðurkenndi að árásin væri „hundrað prósent raunveruleg“. Jones hafði ítrekað fullyrt í útsendingum Infowars að engin börn hafi fallið í skotárásinni og foreldrarnir sjálfir hafi verið leikarar. Fleiri foreldrar barna sem féllu í skotárásinni hafa stefnt Jones vegna fullyrðinga hans. 

Jones hefur áður sagt að bótaupphæð yfir tveimur milljónir dala myndi „sökkva“ honum.


Tengdar fréttir

„Þú veist hvað meinsæri er, er það ekki?“

Samsæringurinn Alex Jones viðurkenndi í dómsal í dag að það hefði verið óábyrgt af honum að halda því fram að skotárásin í Sandy Hook hefði verið sviðsett. Hann viðurkenndi að árásin væri „hundrað prósent raunveruleg“. Þá kom í ljós í dag að lögmaður hans sendi fyrir mistök mikið magn gagna til lögmanna foreldra sem hafa höfðað mál gegn honum.

Sam­særis­kenninga­smiður sekur um meið­yrði

Samsæriskenningasmiðurinn Alex Jones var í dag fundinn sekur í fjórum meiðyrðamálum sem aðstandendur barna sem létust í árásinni á Sandy Hook skólann höfðuðu gegn honum.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×